Vísir - 21.06.1961, Side 5
Miðvikudagur 21. júní 1961
VISIR
5
Sendiherraspjall
um handritamálið.
Vísir hitti snöggvast að máli
í gær Stefán Jóhann Stefáns-
son, sendiherra í Kaupmanna-
höfn, en hann er nýkominn
hingað til lands. Mun hann
dveljast hér heima til 29. júní,
en hingað er hann kominn
til skrafs og ráðagerðar við ís-
lenzk stjórnvöld og þá auðvitað
fyrst og fremst til þess að gefa
þeim skýrslu um handritamál-
ið.
Frestunin í handritamálinu
var mikil vonbrigði, sagði
sendiherrann. Vinir okkar fs-
lendinga munu fæstir hafa trú-
að því að það tækist að fá 60
undirskriftir undir mótmæla-
skjalið. En það tókst, enda
sýndu forystumenn undir-
skriftasöfnunarinnar afburða
dugnað og beittu ýmsum harð-
vítugum ráðum til þess að fá
þingmenn til þess að rita undir.
Persónulega er ég sannfærð-
ur um að handritin koma heim
og verður lengst biðin í þrjú
og'' hálft ár. Stjórnarflokkarnir
hafa gefið hér þær yfirlýsingar,
sem ótvíræðar eru.
Ég vona aðeins að ekki komi
til breytingar á frumvarpinu,
þegar það kemur aftur til um-
ræðu, á hinu nýkjörna þingi,
en búast má við því að and-
stæðingar afhendingar reyni að
koma inn breytingum. Er mörg-
um Dönum í Höfn mjög tregt
að sjá af Flateyjarbók og Eddu.
— Það hefir mikið gengið á
í Höfn út af þessu máli undan-
fari?
— Já, það tók mjög hugi
manna. Þótt það sé að sumu
leyti kannski ótrúlegt þá hefir
handritamálið verið efni í að-
alfyrirsagnir dönsku blaðanna
nú um alllangan tíma.
— Hvað um heiðursdoktors-
nafnbót Jörgensen menntamála-
ráðherra á afmæli Háskólans í
haust?
— Ekkert vil ég um það
segja, en full ástæða er að við
sýnum honum sóma. íslending-
ar, svo drengilega hefir hann
Stefán Jóhann.
barizt í þessu máli. Veit ég að
frestunin hefir valdið honum
vonbrigðum.
— Að lokum vil ég leggja
á það áherzlu, sagði Stefán
Jóhann, að þótt nú verði frest-
un á afhendingu þá eigum við
fjölmarga vini og stuðnings-
menn í þessu máli meðal
dönsku þjóðarinnar, sem mjög
vel skilja hin íslenzku sjónar-
mið.
Lögbann —
Kleppsveg framkvæmda af
starfsmönnum fyrirtækisins,
sem ekki eru félagsbundnir í
launasamtökum, er eiga í verk-
falli.
Þetta þýðir að Kassagerðinni
er heimilt að láta framkvæma
þau störf, sem verkfallsverðir
Dagsbrúnar stöðvuðu með of-
beldi fyrir nokkrum dögum og
ber lögreglunni að sjá um að
þau fari fram hindrunarlaust
Krafist er tryggingar af
Kassagerðinni því að svo kann
að fara að síðar verði leitað
staðfestingar Hæstaréttar á
undirréttarúrkskurðinum. —
Verður að tryggja að Dagsbrún
skaðist ekki, ef svo skyldi fara
að sá dómur félli félaginu í vil
UndanfariS hafa birtzt af
því fregnir í dagblöðum að
erlendir kaupmenn hyggðu
bér á húsgagnakaup í stór-
um stíl.
Hefur sá fyrsti þeirra,
Bandaríkjamaður, nýlega gert
samning um kaup á Akureyri
og í Reykjavík fyrir á þriðju
millj. króna.
Hafa stjórnarandstöðublöðin
glaðst yfir þessum tíðindum,
ekki síður cn blöð stjórnar-
flokkanna.
A það er vert að benda að
útflutningur íslenzkra hús-
gagna hefði verið með öllu ó-
hugsandi ef gengisbreytingin
hefði ekki verið gerð fyrir
rúmu ári. Þá hefði verð hús-
gagna verið svo hátt að enginn
erlendur aðili hefði viljað líta
við þeim.
Útflutningurinn er því bein
afleiðing af efnahagsráðstöfun-
um ríkisstjórnarinnar oir þá
fyrst og fremst gengisbreyting-
Dragnótaveiði nú
leyfð i Eyjum
Frá fréttaritara Vísis
Vestmannaeyjum í gær. j
Sex bátar voru tilbúnir dag- j
inn, sem leyfi var gefið til;
dragnótaveiða. Lítið hefur enn
borizt: á land af dagnótabátum, j
því verið hafa frátafir vegna
veðurs og svo vegna helgidaga.
Ekki er tekið á móti fiski í
frystihúsum á laugardögum.
Sá háttur mun verða hafður
á að e.ins mikið verður tekið til
frystiij».gar af flatfiski og unnt
er, en það sem fram yfir er,
munu. frýstihúsin flytja út ísað
á érlendan fnarkað. Verður
flatfisjkurinn fluttur út ísaður
í kössum og tók m.b. Eyjaberg,
sem riú er á heimleið 400 tóma
fiskkassa í Englandi.
Afli hefur verið ágætur í
vor. Er hér um að ræða mikið
blandaðri afla en gerist á ver-
tíð, þegar nær eingöngu berzt
þorskur á land. Togbátarnir
landa hér afla. Þá eru humar-
bátarnir með humar og flat-
fisk og bætast nú við dragnóta-
bátarmr með bolfisk. Auk þess
hafa síldarbátar lagt hér upp
síld, esn það er óvanalegt um
þetta Ieyti árs, þó ekki sé það
einsdasmi.
Nú á skömmum tíma er búið
að landa hér 10 þúsund mál-
um af síld. Gert var ráð fyrir
að sildarbræðslan gæti brætt
2.500 málum á sólarhring, en
vinnslan hefur aldrei orðið það
mikil og ekki eru tök á að láta
miklar birgðir af síld bíða
bræðslu í einu, þar sem ekki
eru til þrær að geyma síldina.
Mikil vinna
og margt fólk.
Hér er óvenjulega mikil
vinna um þessar mundir, einna
líkast því sem er á vertíð. —
Unnið er fram eftir á hverju
kvöldi og veitir ekki af til að
hafa undan að ganga frá afl-
anum sem daglega berzt á
land.
Hér er líka óvenju margt að-
komufólk. Á götunum, í sam-
komuhúsnum og á vinnustöð-
um sér maður mörg ókunn
andlit eins og á vertíðinni. —
fólk hefur komið víða og margt
af því frá Reykjavík, bæði karl-
ar og konur sem leita úr verk-
fallsbæjum í atvinnuna.
■jlf Fasteignasali nokkur í Lon-
don er að reyna að koma
af stað kappsmidi yfir Erm-
arsund 3. ágúst. Hann býður
ýmis verðlaun en enga pen-
inga.
ítalskir aðilar hafa gcfið
Elisabet Bretadrottningu
gullið Hkan af Kolosseum í
þakklætisskyni fyrir heim-
sókn hennar til Rómar í sl.
mánuði.
Skuldir ríkis við bæinn
stórlega lækka&ar.
Þjóðviljinn í morgun ger-
ir mikið veður út af óskil-
vísi ríkisins við Reykjavik-
urbæ og segir að ekki hafi
þokast um greiðslu skulda
ríkisins þótt Gunnar Thor-
oddsen hafi leyst Eystein
Jónsson af hólmi sem fjár-
málaráðherra.
★ Hér er mjög málum
blandað. í fjármálaráðherra
tíð Eysteins Jónssonar var
ríkið í mjög miklum vanskil
um við Reykjavíkurbæ.
Skuldir þess við bæinn hlóð-
ust upp ár frá ári þrátt fyr-
ir ítrekaðar tilraunir af
hálfu borgarstjóra og bæj-
aryfirvalda til þess að fá
þær greiddar.
★ Algjör umskipti urðu á
síðasta ári i þessum efnum
eftir að Gunnar Thoroddsen
hafði tekið við embætti fjár-
málstráðherra. Á síðasta ári
lækkuðu þartnig skuldir rík-
isins við Reykjavíkurbæ úr
20.9 milljónum í 14.8 millj.
króna. Er það lækkun um
6.1 tnilljón á einu ári.
★ Míun víst öllum ljóst,
nenin Þjóðviljanum, að hér
hefur mjög færzt ti! betra
horfs og er það fyrst og
frenist fyrir atbeina núver-
andi fjármálaráðherra.
Einar: „Það er ekkert að þakka, Eysteinn minn, þú
kemur bara eins oft og þú þarft.“