Vísir - 21.06.1961, Side 16
VISIR
Miðviðudagur 21. júiíí 1961
Stjórn Dagsbrúnar kærð.
Samið var á
Siglufirði
Frá frcttaritara Vísis.
Siglufirði í morgun.
í nótt tókust samningar milli
verkamannafélagsins Þróttar á
Siglufirði og stjórnar Síldar-
verksmiðja ríkisins. Samning-
arnir eru í aðalatriðum þeir að
kaup hækkar um 10 iirósnt og
eftirvinna úr 50 í 60 prósent.
Stofnaður vcrði sjúkrasjóður
og greiði verksmiðjurnar 1 pró-
sent af dagkaupi í sjúkrasjóð-
inn. Það var áskilið að annar
endurskoðandi sjúkrasjóðsins
skyldi skipaður af stjórn síld-
arverksmiðjanna og sérstök
rcglugerð yrði samin fyrir
sjóðinn.
Vinna hófst í verksmiðjunum
í morgun en þær hafa ekki enn
tekið á móti síld til bræðslu. í
nótt var lítil veiði. Aðeins fjög-
ur skip komu inn með slatta.
Veður hafði versnað á miðun-
um, kominn vestan stinnings-
kaldi. Síldin er djúpt og því
erfitt að ná til hennar ef eitt-
hvað er að veðri.
Alls mun vera búið að salta
í 6000 tunnur í þessari fyrstu
síldarhrotu. Það hefði varla
verið hægt að taka á móti meiri
síld til söltunar því stúlkurn-
ar voru orðnar gersamlega
svefnlausar og þvi mál á hvíld.
Enn er hér mikill skortur á
kvenfólki. Það eru nær ein-
göngu sigifirzkar stúlkur á
plönunum enn sem komið er,
en vonandi rætist úr því í næstu
viku.
Hækkuð söltunarlaun.
Með hinum nýju samningum
sem gerðir hafa verið, hafa
söltunarlaun hækkað. Fá stúlk-
urnar nú kr. 30.13 fyrir að salta
í heiltunnu af hausskorinni og
slógdreginni síld. Fyrir hálf-
tunnuna eru greiddar kr. 15.62
að viðbættu orlofi.
Rannsókn er þegar hafin.
Kristján Jóhann Kristjáns-
son forstj. Kassagerðar Rvík-
ur hefur kært Guðmund J. Guð
mundsson og stjórn Dagsbrún-
ar svo og aðra þá sem á sannast
að hafi staðið fyrir ólöglegum
verkfallsaðgerðum við Kassa-
gerðina dagana 29. maí, 30. maí,
13. júní og 15. júní.
í ákæruskjalinu sem sent var
yfirsakadómaranum í Reykja-
vík eru þessir aðilar sakaðir
um að bera ábyrgð á ofbeld-
isaðgerðum og hótunum í garð
starfsfólks Kassagerðarinnar.
Eru verkfallsmenn sakaðir um
að hafa brotið umferðarlögin,
ákvæði almennra hegningar-
laga og lögreglusamþykkt Rvík
ur.
Rannsókn málsins er hafin
og hefur Kristján Jóhann
Kristjánsson mætt og staðfest
ákærur sínar, en Guðmundur J.
Guðmundsson er væntanlegur
fyrir réttinn.
Hér sézt stórmeistáfiníiTriðrik Ólafsson (til hægri) ræða við E. Vasjúkov og Smyslov,
sem urðu í 1. og 2. sæti á Moskvumótinu. — Friðrik varð 3. sem kunnugt er. Mynd þessi var
sínisend til London frá Moskvu og hingað með flugvél í gær.
ísland í frönsku
sjónvarpi*
Hér á landi er nú stadd-
ar kvikmyndatökuflokkur
frá franska sjónvarpinu.
Vísir náði í morgun sam-
bandi við leiðsögumann
flokksins hér, enskan
blaðamann, Mangeot að
nafni.
Flokkurinn er hér i þeim er-
indum að taka myndir fyrir
sjónvarpsþátt, sem á íslenzku
mætti kalla 5 dálka frétt þ. e.
a. s. þátt um eitthvað, sem er
ofarlega á baugi þá og þá
stundina. Þáttur þessi er einu ■
sinni í mánuði og stendur í |
eino og hálfa klukkustund i
í hvert skipti. — Hann J
skiptist í 4—5 hluta og er ætl-|
unin að taka tvo hluta eins j
þáttar hér á landi. í öðrum i
þættinum verða yfirlitsrnyndir.
frá fslandi um fiskveiðar, land-
búnað og annað þesshátar svo
og frá Reykjavík, einnig munu
kvikmyndatökumennirnir taka
eitthvað úr íslenzku stjórn-
málalífi.
Hinn þátturinn verður um
franska hafrannsóknaskipið
„Pourqoi Pas?“ sem fórst 1936,
en flakið af því hefir nú fund-
izt vestur við Mýrar. Þannig
vill til, að einn af fulltrúum
Frakkalnds á alþjóða skipamæl-
ingarráðstefnunni, sem þessa
daga er haldin í Reykjavík,
var eitt sinn foringi á skipinu
og mun hann ætla að fara vest-
ur á Mýrar að flakinu. Einnig
munu' þeir hafa samband við
eina manninn, sem komst af
skipinu og gera þátt um flakið.
Mun jafnvel í ráði að fá hing-
í morgun kl. 10,30 hófst
prestastefnan 1961 með messu
í Dómkirkjunni, séra Bjarni
Jónsson prédikaði. Kl. 2 var
prestastefnan sett í kapellu Há-
skólans.
Kl. 4 verður rætt um veit-
að froskmann, sem gæti tekið
myndir af því neðansjávar.
Stjórnandi leiðangursins er
einn af beztu útvarps- pg sjón-
varpsmönnum Frakklands,
Jacques Sallebert að nafni.
Leiðangurinn kom hingað á
laugardag og mun verða hér á
landi til sunnudags að minnsta
kosti. Flokkurinn hefir ekki
getað athafnað sig hér að vild
sinni, þar sem allar flugsam-
göngur innanlands hafa eins
og kunnugt er stöðvast vegna
verkfallsins.
ingu prestaembætta. Á morgun
kl. 10 verður rætt um nýjar
leiðir í kirkjulegu starfi. Kl. 6
flytur séra Jakob Jónsson guð-
fræðilegt erindi. Á föstudag kl.
10 ávarpar Róbert A. Ottósson,
söngmálastjóri, prestastefnuna.
Gengi lækkað
Kanadastjórn hefur ákveðið
að lækka gengi kanadíska doll-
arsins.
Þessi yfirlýsing var gefin út
í kanadíska þinginu af fjár-
málaráðherranum Mr. Fleming
í fjárlagaræðu. Ráðherrann tók
ekki fram, hve lækkunin mundi
verða mikil, en talið er, að hún
verði að minnsta kosti 5%.
Árangurinn með lækkun-
inni mundi verða mikil.
Tilgangurinn með lækkun-
inni er sá að draga úr innflutn-
ingi í Kanada og auka útflutn-
ing. Þetta er einnig hugsað til
að bæta úr alvarlegu atvinnu-
leysi, sem ríkt hefur í Kanada
nú um skeið og verið eitt helzta
vandamál Kanadastjórnar.
Kl. 2 verður fundur með pró-
föstum og kl. 6 verða synodus-
slit. Bænagjörð er á hverjum
morgni meðan prestastefnan
stendur í kapellu Háskólans.
Prestastefnan 1961.
FA EKKI
AD LANDA
Dagsbrúnarmenn hafa ' nú
stöðvað löndun á fiski úr drag-
nótabátum. Stöðvunin kom til
framkvæmda í fyrradag. í gær
var ekkert róið og mun svo
verða um sinn nema þeim tak-
ist að selja aflann í Keflavík og
annars staðar þar sem samið
hefur verið.
Afli í fyrstu róðrunum hefur
verið ágætur og allmargir bát-
ar voru byrjaðir á dragnót.
Gera má ráð fyrir að nýr fiskur
verði takmarkaður í fiskverzl-
unum á næstunni, sérstaklega
ef ekki gefur á sjó fyrir færa-
báta, en frá þeim og dragnóta-
bátunum hafa bæjarbúar feng-
ið fisk að undanförnu.
Veðrið:
Vestan átt,
skúrir, bjart
með köflum.