Vísir - 22.06.1961, Blaðsíða 16

Vísir - 22.06.1961, Blaðsíða 16
‘kBí BRYGGJUNNI VAR LOKAD. Hlaup í fjarað. Hlaupið, scm kom í Súlu á dögunum, cr fjarað, og varð aldrei nema smáskvetta að því er Hannes bóndi á Núpstað tjáði Vísi í morgun. Hlaup koma orðið árlega í Súlu, það síðasta á undati þessu, kom í fyrra. Það er vegna þess hve jökullinn við Grænalón er lágur orðinn og lítið getur safnazt þar fyrir af vatni í einu. Fyrir bragðið eru Súluhlaup heldur ekki nema svipur hjá sjón miðað við það sem áður var og í raun og veru ekki nema smáskvett- ur sem fjara út á skammri stund. Vatnsmagnið verður heldur ekki teljandi og í þetta skipti bjóst Hannes ekki við að það hafi verið meira en fer- fallt miðað við venjulegt vatnsmagn árinnar. Um gullleitarmennina á Framh. á 5. síðu. Súlu Eins og kunnugt er af fréttum er hér í höfninni stödd snekkja frá Berlín. A snekkjunni eru 7 manns, 6 j karlmenn og ein stúlka. j Fólk þetta er að æfa sig und j ir siglingakeppni á Atlants- j hafi, sem fram á að fara eft- J ir 3—4 ár. Ljósmyndari Vís- j is, Oddur Ólafsson tók þessa t mynd af 3 af áhöfninni í ( gær. þeir eru talið frá < vinstri: Jóachim Nolte, Diet- j er Vocke og Kino Berenste- j cher. t M.s. Gullfoss kom til Reykjavíkur í morgun. Sami háttur var hafður á afgreiðslu skipsins og fyrra skiptið er hann kom eftir að verkfallið hófst, að dráttarbáturinn Magni dró skipið inn og hélt því að bryggju, með '■ an farþegar fóru í land með farangur sinn. Verkfallsverðir fjöl- menntu á bryggjuna, en höfðu sig ekki í frammi. Enginn fékk að fara um borð í skipið og var bryggjan nú afgirt. — Urðu farþegar því að bera farangur sinn upp bryggjuna (Sprengi- sand) að bílunum, sem biðu upp á götu. Skipið fór því næst út á ytrihöfnina, þar sem það bíður til brottfarar- dags. Fjöldi farþega var með skipinu. Hlífarsamkomulagið grund- völlur samninga í Reykjavík? KVIKMYNDAÐ NEÐANSJÁVAR. Eins og Vísir skýrði frá í gær, var þá í ráði, að franski sjón- varpsflokkurinn, sem hér er, feng sér til aðstoðar kafara, fengi sér til aðstoðar kafara, flakinu af Pourquoi Pas? Nú mun það ákveðið að hing- að komi kafaraflokkur frá franska flotanum til þesss að annast þetta verk. í þessum flokki verða að minnsta kosti 3 kafarar. Flokkurinn mun að öllum líkindum koma hingað um eða eftir næstu helgi. Samkomulagið, sem í gær náðist í Hafnarfirði milli samninganefnda Hlífar og atvinnurekenda sýnir að unnt er að binda skjótan enda á verkfallið ef vilji er fyrir hendi hjá fúlltrúum verkalýðsfélaganna. Má telja að Hlífarsamkomulagið sé grundvöllur fyrir svipuðum samningum hér í Rcykjavík og má ætla að atvinnurck- endur séu fúsir til þess að semja um svipaða lausn, og hafa reyndar boðið 11% k^uphækkun fyrir löngu síðan. Hingað til hefir aðeins unni í Dagsbrún, sem hefir dregið verkfallið á langinn og bakað verkamönnum með því mikið fjárliagstjón. ^ Höfuðatriðið » Hlífar- samkomulaginu er að styrkt- arsjóðurinn er gerður óháð- ur. Er þar með tryggt, að hann verður ekki misnotað- ur í pólitísku augnamiði af óhlutvöndum aðilum. — í Hafnarfirði mun þannig Hlíf skipa einn stjómar- manninn, atvinnurekendur Framh. á 5. síðu. Guömundur J. Utsala á spíruoum kartöflum. mætti ekki! Búðirnar eru enn orðnar kartöflulausar, en úr því verður væntanlega bætt næstu daga, að því er Grænmetisverzlun ríkisins tjáði Vísi í morgun. Mikið umtal hefir spunnizt urn það, að mikið magn af kartþflum liggi undir stór- skemmdum í jarðhúsunum við Elliaðaár. Hið rétta er, að í húsunum er mikið af kartöfl- um, sem orðnar eru misjafnlega spíraðar, en að oðru leyti ekki teljandi skemmdar. Nú þykir Grænmetisverzlun- inni ekki taka því að brjóta spírurnar af og flokka kartöfl- urnar, en allar voru þær fyrsta flokks. Nú er unnið að því að sekkja kartöflurnar í 25 kg. poka og verða þær seldar á niðursettu verði, 35 krónur pokinn, í dag og næstu daga bæði í Jarðhúsunum og vöru- geymslu Grænmetisverzlunar- innar við Sölvhólsgötu um leið og búið ei' að sekkja þær. Annars standa vonir til þess, að verkfallsverðir leyfi send- ingu á kartöflum til bæjarins að nórðan, svo að búðirnar verða ekki lengi kartöflulausar. í gær boðaði Sakadómari Guðmund J. Guðmundsson til yfirheyrslu vegna kæru Kristj- M.s. Magni verkfallsbrjótur. Jafnvel í verkföllum getur ýmislegt spaugilegt komið fyrir. Guðmundur J. fékk þá hugmynd í morgun að drátt- arbáturinn Magni væri í rauninni verkfallsbrjótur. Þessa hugdettu sína til- kynnti hann hafnarstjóra, sem að sjálfsögðu gat ekki annn i hlegið að. / , • ’ áns Jóhanns Kristjánssonar, for stjóra Kassagerðarinnar á hendur honum fyrir ofbeldi og brot á lögreglusamþykkt Rvík- ur. Hins vegar leið dagurinn án þess að kempan Guðmundur léti sjá sig á skrifstofum saka- dómara. Mun hann væntanlega enn telja sig geta sett sín eigin lög sjálfur, engu síður en í verkfallinu 1955! HIU,!:' Veðurhorfur: Breytileg átt, súld, léttskýj- Æm að síðar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.