Vísir - 11.07.1961, Blaðsíða 1
7
VISIR
Reykvíkingur nærri
drukknaður nyrira.
Datt í höfnina á Akureyri og
lengi heyrði enginn til hans.
Á sunnudaginn var dagur gerð af sprengjuþotu, sem er þó ekki staðfest af sovózk
flughersins haldinn hátíð- þá var sýnd ásamt fylgiþot- um yfirvöldum. Flugsýning-
Iegur skammt frá Moskvu, um af orustuvélagerð. Fregn in fór fram yfir Tosjinovelli
og er hér inynd af nýrri ir herma, að þota þessi fari nærri Moskvu. (AP-mynd
liraðar en hljóðið, en það með einkarétti).
Akureyri í morgun.
Kaupsýslumaður úr Reykja-
vík var hætt kominn hér í
höfninni í nótt, og munaði liltu,
að hann drukknaði.
Maður þessi var nokkuð við
skál, þegar hann gekk niður að
höfninni um miðnætti. Var
hann einn á ferð og hélt út á
Torfunefsbryggju. Ranglaði
hann um bryggjuna, en missti
þá allt í einu jafnvægið og
steyptist í sjóinn. Einhvern
veginn tókst honum að komast
að bryggjunni, og þar gat hann
haldið sér í stólpa, en enginn
heyrði lengi vel til hans, þegar
ahnn kallaði á hjálp, enda fá-
farið við höfnina um þetta
leyti sólarhringisns. Loks varð
þó gangandi vegfarandi þess
var, hvernig komið var, og
tókst honum að ná manninum
upp á bryggjuna, þótt erfitt
væri. Var Reykvíkingurinn
orðinn allþjakaður og kaldur,
svo að hann var máttfarinn
nokkuð og þungur á sér.
Frægasti sýningar-
gripurinn
Gagarin kemur til London.
Hinn heimsfrægi rússn-
eski geimfari Júri Gagarin
átti að lenda um hádegi í
dag á Lundúnaflugvelli.
Þetta er í fyrsta skipti sem
hann sýnir sig á Vestur-
löndum, ef frá er talin stutt
heimsókn til Finnlands. —
Eins og geta má nærn er
komu hans beðið með mik-
illi eftirvæntingu. Gagarin
er ekki gestur ríkisstjórnar
innar heldur kemur hann
sem einskonar sýningar-
gripur á stóra rússneska
vörusýningu sem opnuð
var í London á föstudaginn.
Scotland Yard með varúðar-
ráðstafanir
Þar sem ekki er um opin-
bera heimsókn að ræða mun
enginn hinna æðstu manna
Breta verða á flugvellinum til
að taka á móti honum, heldur
aðeins fulltrúi brezka flug-
málaráðuneytisins. Þær raddir
hafa heyrst í Bretlandi, að
engri átt nái að ráðherra skuli
ekki vera á flugvellinum til
að taka á inóti geimfaranum.
Framh. á 5. síðu.
Grein fjár-
málaráðherra.
Fjármálaráðherra Gunnar
Thoroddseri mun rita grein
hér í blaðið á morgun um
efnahagsmál. Ber greinin
nafnið „Lánstraust þjóðar-
innar endurvakið“.
Island verðnr ail vera
Endanleg ákvörðun um inngöngu í sameigin-
lega markaðinn enn ekki tímabær.
I ræðu sem Gylfi Þ. Gíslason, viðskiptamálaráðherra
flutti um hádegið í dag í Verzlunarráði Islands gaf
hann þá mikilvægu stefnuyfirlýsingu fyrir hönd ríkis-
stjórnarinnar, að ef Vestur-Evrópa rennur saman í eina
viðskiptaheild, eins og nú eru horfur á, getum við ís-
lendingar ekki staðið utan þeirrar heildar.
Aðild Breta að Sam-
markaðnum á dagskrá
Þetta þýðir að ef frí-
verzlunarbandalag sjöveld
anna leysist upp og þau
ríki gerast þátttakendur í
saméiginlega markaðnum,
þá mun Island einmg sækja
þar um aðild.
Ríkisstjórnin telur ekki
tímabært fyrir íslendinga
að taka ákvarðanir sínar í
Ayub Khan, forseti Pakist-
an, kom til London »' þriggja
daga heimsókn s.l. föstudag, og
sagði við komuna, að Pakistan
væri því ekki mótfallið, að
Bretland gerðist aðili að sam-
tökum Sammarkaðslandanna
sex.
Hann sagði, að sér litist vel
á það, ef Bretland stigi þetta
skref. Eny leiðtogar í ýmsum
öðrum samveldislöndum eru
aðildinni andvígir. Þeirra með-
al er Robert Menzies forsætis-
ráðherra Ástralíu, sem hefur
varað Sandys samveldisráð-
herra við afleiðingunum. Að-
ild Bretlands gæti haft hættu-
legar stjórnmálalegar afleið-
ingar innan samveldisins. Ind-
landsstjórn hefur og miklar á-
hyggjur af því, ef Bretland
gerist aðili að samtökunum.
Brezka stjórnin kynnir nú
ríkisstjórnum samveldisland-
anna afstöðu sína í málinu.
Á fundi utanríkisráðherra
sammarkaðslandanna sex 1
Rómaborg í gær var samþykkt,
að óska eftir því, að brezka
stjórnin tæki þátt í viðræðum
við þau 1. næsta mánaðar um
hinar stj órnmálalegu _ hliðar að-
ildarinnar. Sambandslöndin
eru öll sem kunnugt er í Vest?
ur-Evrópu bandalaginu, svo og
Bretland, og fara viðræðurnar
fram innan vébanda þess.
Sölusamningar
ekki komnir á.
Laust fyrir hádegi í dag
skýrði Gunnar Flóvenz, fram-
kvæmdastjóri síldarútvegsnend
ar, blaðinu frá því, að samning-
ar við Rússa um sölu Norður-
landssíldar, væru ekki komnir
á, eins og fregnir blaðanna"
hermdu.
þessum efnum fyrr en í ljós
kemur hver niðurstaðan
verður af þeim tilraunum,
sem nú er verið að gera til
sameiningar bandalag-
anna.
Við hljótum að óska þess ein
dregið að eiga aðild að viðræð-
um um viðskipti um sjávaraf-
urðir í sambandi við samein-
ingu bandalaganna tveggja. Við
getum ekki lagt á það of ríka
áherzlu við vinaþjóðir okkar í
Vestur-Evrópu að þær ákveði
ekki framtíðarskipan á þeim
viðskiptum án samráðs við
okkur, sagði ráðherrann.
Ráðherrann lagði áherzlu á,
að ef slík yrði þróunin þá verð-
um við jafnframt þátttöku að
kappkosta að halda þeim mörk-
uðum, sem við höfum nú ann-
ars staðar og eru okkur hag-
stæðir. í ræðu ráðherrans kom
það skýrt fram, að við íslend-
ingar höfum ekki efni á því, að
standa utan við viðskiptaheild
Evrópu. „Ef viðskiptatengsl
pkkar rofna við þau ríki, sem
ætíð hafa verið aðal viðskipta-
lönd okkar og þar sem eru
miklir framtíðarmarkaðir fyrir
afurðir okkar, hlyti það að ha/a
örlagaríkar afleiðingar fyrir
efnahag okkar og lífskjör,“
Framh. á 16. síðu.