Vísir - 11.07.1961, Síða 10
10
V I S I B
Þriðjudagur 11. júlí 1961
Myndin sýnir þjóðhöfðingja Laos á Genfarf undinum, Boun Oum prins, t.h. Hann skrafar
hér við frú Nosavan, konu eins áhrifamesta mannsins í Laos og sendiherra Vietnam í
Túnis, en hann er forseti sendisveitar lands síns á Genfarráðstefnunni.
Að utan -
Framh. a? 8 síðu
Framfarir og
framtíðarskilyrði.
í yfirliti frá bandaríska
landfræðifélaginu um Mong-
ólíu segir, að 20. aldar brag-
ur sé nú smátt og smátt að
komast á margt í landinu,
eikanlega í höfuðborginni
Ulan Bator, þar sem — eft-
ir 40 ára kommúnistastjórn
— séu að rísa verksmiðju-
og skrifstofubvggingar og
skólar, en meginhluti þjóð-
arinnar lifi enn hjarðmanna-
lífi. Þó er svo komið. að syn-
ir og dætur hjarðmanna eru
farin að stunda nám við
æðri skóla. Ríkisháskóli var
stofnaður 1942 og voru nem-
endur 90 fyrsta árið. en nú
innritast 2500 árlega. Börn
lands hinna gróðurlitlu
auðna eru mörg að verða
lækngr, kennarar, hjúkrun-
arkonur o. s. frv. Samkvæmt
yfirlitinu býr yfir milljón
manna í þessu landi á há-
sléttu, sem er meiri að flat-
armáli en öll lönd sammark-
aðslandanna sex. en áherzla
er löeð á bað að Mongólía
sé ekki það land auðnanna,
sem margir hyegi. landinu
svipi í rauninni að mörgu
til hins víðáttumikla slétt-
lendis í nm-ðurhluta Bandar.
og Kanada, og norðan
Gobi-auðnarinnar sé feikna
landsvæði með miklum og
góðura grasgróðri og villi-
blómum prýtt beitiland
milli fjallgarðanna. Kuldar
eru miklir háveturinn og
hitar miklir hásumarið, en á
vorin og haustin sé meiri
hluti landsins grænn og
blómstrandi og nægilegt
vatn, loftið tært og heil-
næmt. Mestur hluti landsins
sé háslétta 3000—5000 ensk
fet yfir sjávarmál.
Minnzt er á leiðangra
bandaríska landkönnuðar-
ins, Roy Chapmans Andrews
til Mongólíu fyrir um 40 ár-
um, en honum fannst margt
minna á „villa vestrið" í
Bandaríkjunum. f Urga, en
svo hét höfuðborgin þá, voru
flest hús bjálkabyggð. Það
var Roy Chapman Andrews
sem á þessum ferðalögum
fann fyrstu risaeðlueggin.
Þá lágu engar járnbrautir
um landið.
Ulan Bator er nú ein helzta
millistöð á flugferðum milli
Moskvu og Peking.
íbúatala Ulan Bator er nú
180.000 og í 4 bæjum mun
ibúatalan yfir 10.000. — í
skólum landsins eru um
100.000 nemendur að full-
orðnum meðtöldum. — Hús-
dýrafjöldinn er yfir 21 millj.,
segir Time. Hrossafjöldinn
er mikill, sauðfé margt,
nautpeningur og geitfé. —
Iðnaður er á uppsiglingu.
Hafin er framleiðsla á olíu,
kolum, málmum og vefn^ð-
ardúkum.
Forsætisráðherrann, Ymu-
zhagin, hefir unnið að því, að
landið vrði í sannleika sjálf-
stætt. Auk þess sem hann
hefir sent viðskiptanefndir
til ýmissa landa hefir hann
komið á stjórnmálasambandi
við eftirtalin lönd, auk hinna
kommúnistiskú, sem áður
var getið- Indland, Nepal,
Burma, Júgóslavíu. Cambo-
dia og Guineu — og hann
vinnur að viðurkennineu
Bandarikjanna á .siálfstæði
landsins og aðild Mongólíu
að Sameinuðu bjóðunum,
Time segir: Vafalaust er
Mongólía kommúnistiskt
leppríki. En svo virðist sem
spyrja megi: Hvaða ríkis?
(þ. e. Sovétríkjanna eða
Kína).
Eigíiimaðurmn bíður -
»
Framh af 9. síðu.
ingardaginn sinn. Um leið og
henni var ekið inn í skúrðstof-
una, sagði hún við mann sinn:
„Vertu hjá mér, þar til þessu
er lokið.“
Hún hefir verið í dái, síðan
skurðaðgerðin var hafin, og
Ashworth hefir verið hjá henni
öllum stundum síðan. Hann
starfar við olíuhreinsunarstöð,
en hefir ekki farið til vinnu
sinnar síðan konan sofnaði í
sjúkrahúsinu. Húsbændur hans,
Central Petroleum-félagið, hafa
hann á hálfum launum, og Ash-
worth hefir komið sér fyrir í
einu horninu á sjúkrastofú
konu sinnar. Starfslið sjúkra-
hússins bauð honum rúm til að
sofa í, en hann er hræddur um,
að hann muni ekki vakna nógu
fljótt, ef hún skyldi koma tíl
meðvitundar, svo að hann sefur
aðeins í stól — eða dottar öllu
heldur.
Ashworth hefir bæði útvarp
og sjónvarp til að stytta sér
stundirnar, og þeir eru orðnir
nokkuð margir kaffibollarnir,
sem hann hefir drukkið til að
halda sér vakandi. Tvívegis
hefir hann brusðið sér frá! í
fyrra skÍDtið skranp hann heim
til að mála svefnherbergi þeirra
hjónanna. því að læknar höfðu
við orð að bráðum fengi kona
hans jafnvel að fara heim. í
hitt skiptið skranp hann í einn
skóla borgarinnar, þar sem
yngsta dóttir hans — af þrem
— var að Ijúka t*aanfræðanrófi.
- Stundum virðist frú Ash-
worth heyra hávaða í kringum
sig, og fyrir kemur. að kippir
fara um andlit h°nnar. en enn
hefir hún samt okVí komið t.i1
meðvitundar Vonandi fær mað-
ur hennar þó laun tryggðarinn-
ar bráðlega.
Verða ítalskar konur sondi-
herrar bráðSoga
Fánfaní liefir lofafb að víuna að
framgangi inálsins
Ef loforð forsætisráðherra I Fyrsta tilraunin til þess að
ítala, Amintore Fanfanis, fá, láta á sér bera í þessum mál-
byr í þinginu, sem skipað er um var gerð af fallegri konu
yfirgnæfandi meirihluta karl-' rómverskri, sem heitir Maria
manna, mun Ítalía brátt fá sína Antonietta Piatti. Hún reyndi
fyrstu kven-ambassadora. i að taka próf í opinberu prófi,
ítalskar konur hafa stigið sem utanríkisráðuneytið átti
stór spor til jafnræðis við karl- að. .Það var árið 1956.
menn á síðustu 15 árum. Þær
höfðu engan kosningarrétt
fyrr en á síðari heimsstyrjald-
arárunum. En í dag sitja þær
á þingi með karlmönnum, og
hefir jafnvel tekizt að umbæta
refsilöggjöfina. Þeim hefir tek-
izt að leggja þyngri refsingar á
giftar konur fyrir hórdómsbrot,
en þær tiltölulega léttu refsing-
ar sem lagðar eru á kvænta
jkarlmenn fyrir samskonar.
Eitt svið er það þó sem kon-
um hefir ekki tekizt að mynda
í hina minnstu sprungu. Það
er sá þétti varnarveggur er
stjórnarerindrekar hafa skap-
að með sér. Allar tilraunir
kvenna til þess að komast í
tölu stjórnarerindreka hafa
hingað til gersamlega brugð-
izt.
En þetta mál mun bráðlega
ná hámarki sínu, því að vakin
hefir verið athygli á því
fyrir ríkisdómstólunum — en
hingað til hefir því verið
hafnað þar.
Hún vildi fá stöðu í einhverju
af sendiráðum ríkisins.
En stjórnarvöldin höfnuðu
henni á þeim grundvelli, að
konur væru ekki teknar í slík
ar stöður.
Ungfrú Piatti kvartaði þeg-
ar fyrir ríkisráðinu — sem er
flokkur lögfræðinga er gerir
út um deilumál innan stofnana
ríkisins. Ráðið dæmdi ákaflega
tvíræðan dóm, þar sem þeir
sögðust að vísu fyllilega viður-
kenna grein nr. 51 í stjórnar-
skrá ríkisins, sem fjallar um
jafnrétti kynjanna, en þeir
höfnuðu máli ungfrú Piatti af
því að hún hefði kært yfir bréfi
frá utanrikisráðuneytinu, sem
neitaði umsókn hennar, í stað
þess að hún hefði átt að kæra
yfir reglum þeim, sem settar
voru um þátttöku í prófinu.
Annar umsækjandi um
vinnu í sendiráðum var ungfrú
Anna Maria Sternberg Mont-
aldi og hafði hún sömu reynslu
Framh. á 5. síðu.
Kennedy hefir nú úrskurðað að fyrrv. aðalritari bandaríska
kommúnistaflokksins skuli látinn laus úr fangclsi. Hann
heitir Henry Winston og var dæmdur í fangelsi fyrir föður-
landssvik 1949, en kommúnistaflokkurinn er bannaður
með lögum í Bandaríkjunum sem kunnugt er. Winston er
blindur og þjáist þar að auki af æxli á heilanum. Á mynd-
inni leiðir vörður hann frá ríkisspítalanum í Staten Island
| til bifreiðar.