Vísir - 27.07.1961, Side 4

Vísir - 27.07.1961, Side 4
i VISIR Fimmtudagur 27. júlí 1961 jKastar kngst allra Imanna í heimi. Halldór Erlendsson kennari hefur kastað lengra en heimsmet í tveim greinum kastkeppni. Það var verið að segja veiðisögur, og þið vitið nú hvernig þær eru svona yfir- leitt. Þið hefðuð bara átt að sjá þennan, sem ég veiddi í Laxá í fyrra sagði einn og baðaði út höndunum. Gg er bara ekki nógu handleggja- langur til að sýna ykkur . . . Binni, stattu þarna upp við vegginn og haltu út annarri hcndinni. Sko, alveg frá hendinni á honum Binna . . . Blessaður vertu ekki að rembast við þetta, sagði þá annar í hópnum, segðu held- ur einhverja sannar Iyga- sögur, eins og t.d. af hon- um Halldóri Erlends . . . tún og fer að slá heims- met ... þ. e. a. s. '---- hann er ekki að Sonurinn Ásgeir. Hvað gerði hann? Hann Dóri . . . ? Bæði gerði og gerir, þegar hann langar til. Hann slær, skal ég segja þér, heimsmet í köstum og hefur aðra hend- ina í vasanum á meðan. Eg hætti að hlusta, þvi þótt fyri sagan væri e. t. v. dálítið vafasöm, þá var þessi greinilega helber uppspuni, svo maður notist aðeins við siðsamleg og guði-þóknan- leg-orð. En þegar ég heyrði þetta aftur einhvernsstaðar ann- arsstaðar einhverntíma seinna. Þá fór ég smátt og smátt að leggja við hlust- irnar og loks tók ég í mig kjark og spurði einhvern: Hver er annars þessi Hall- dór? Hann heitir Haldór Er- lendsson, skal ég segja þér, og er íþrótta- og handa- vinnukennari við unglinga- deild Miðbæjarskólans. Á sumrin dundar hann við að smíða og gera við veiði- stengur, búa til flugur og annað svoleiðis, en þess á milli labbar hann sig út á Nú fór ég að leita að þess- um Halldóri, og fann hann loks þar sem hann sat í „hobby-herberginu sínu á- samt syni sínum Ásgeir, en þar voru þeir báðir önnum kafnir við að vinna við ný- smíði og viðgerðir á stöng- um Er það satt, sem ég heyri, Haldór, að þú hafir slegið heimsmet í köstum . . . ? Það er bæði satt og ekki satt. Þú mátt nefnilega ekki orða þetta þannig. Það er að vísu satt, að ég hefi kastað á mótum hér heima, lengra en staðfest heimsmet í al- þjóðakeppni, en það segir ekkj alla söguna. Þvi er þannig varið, að það eru ákaflega misjöfn skilyrði hverju sinni til að kasta flugu, og það fer að sjálfsögðu aðalega eftir veðr- inu — eða réttara sagt vindi Það er svo kveðið á i al- þjóðalögum um slika keppni, að ávallt skuli kasta með vindi, en um vind- styrkleika eða annað er ekk- ert sagt. Þess vegna er það. að árangur verður misjafn milli mótanna, en innbyrðis hlutföll keppenda á hverju móti er það, sem ræður hverju sinni. Heimsmet i köstum eru þvi aldrei við- urkennd, nemg þau séu sett á alþjóðamóti, þar sem aðrir keppendur hafa sömu að- stöðu og möguleika. Þessi köst, sem ég hefi hér heima — og hafa farið fram úr heimsmeti, eru gerð við mjög góð skilyrði. . . En hefur ekki komið fvrir að slík „mjög góð skilyrði" hafi verið fyrir hendi á slík- um alþjóðamótum? Það má e.t.v. segja það, jú, en það er ekki svo gott að eiga við slíkan saman- burð . . . I Hvað er heimsmetið? Bíddu nú aldeilis hægur. Það eru til að byrja með 1 keppnisgreinar á kastmótum Það eru allskon ar hittiköst, þar sem maður á að hitta ákveðinn blett. Svo eru lengdarköst, þar sem einungis er hugsað un að kasta sem lengst .... Og það er þar, sem þú ert harðastur? Já. f lengdarkg?tj ar handar með flugu, mun heimsmetið vera 51,24 metr ar. Þetta met var sett á heims meistaramótinu í Englandi haustið 1959. en þá skilyrði sæmilega góð. Á fs- landsmótinu í vor kastaði lengst 52 metra Þar skilyrði aftur á móti mjög hagstæð Hefirðu svipaðan árangur í fleiri greinum? Já. Það er í með kasthjóli Þar á ég landsmetið, sett á mótinu 1959, sem er 97 metrar. Heimsmetið mun vera metrar, sett 1960. Svo að mér er óhætt að segja að enginn maður hafi kastað lengra en þú í þess- ari grein? Betri árangur hefur ekki náðst á heimsmeistaramót- um og ég hefi ekki heyrt um betri' árángur frá öðrum landsmót^um. Er það aðeins i eitt skipti, eða oftar, að þú hefur farið fram úr heimsmetinu? Þetta var í hitteðfyrra. í fyrra kastaði ég aftur 96,80 lengsta kast á innanlands- móti. Svo þetta hefur ekki ver- ið nein tilviljun? Þetta getur vel verið til- viljun að einhverju leyti, og áreiðanlega líka veðurskil- yrðum að þakka, Hvað hefir þú kastað lengst með línu? Lengst? Lengst hef ég kastað 131 metra, en þar á ég. ekki einu sinni fslands- met. Það er ungur maður, Einar Þórir Guðmundsson. Hann hefur kastað 134 metra rúma i þeirri grein. Það er 10. greinin á keppn- isskránni og nefnist „Lengd arkast með „special“ spinn- hjóli“. Það eru algjör keppn isverkfæri, sem aðeins eru notuð til keppni, en ekki til veiða. Ertu ekki að hugsa um að koma þér út á eitthvað al- þjóðamót, til að reyna við meistarana þar, og e.t.v. ná í fyrsta heimsmetið, sem við fslendingar fáum? Það er ekki gott að segja. Víst mundi mig langa til þess, en það er ekki víst hvernig viðrar með það. Hér eru tvö félög, sem hafa stað- ið að kastkeppni, Stanga- veiðifélag Reykjavíkur og Framh. á bls. 5. 1 MÝTT r Gulrætur ri ÍUUaUöldi, Halldór við stangirnar

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.