Vísir - 27.07.1961, Side 15

Vísir - 27.07.1961, Side 15
Fimmtudagur 27. júlí 1961 V I S I R að við töluðum saman uppi. Ef ske kynni að ... Hann kom aftur eftir f imm mínútur og fylgdi mér upp stigann. Adam var kominn á fætur þegar ég kom inn. Alklæddur og nýrakaður. Hárið ný- greitt, og hann var svo líkur því sem forðum var, að mér fannst allt það nýliðna vera eins og martröð, sem ég væri vöknuð af. Og að við værum hérna saman í löglegum er- indagerðum. Að við værum að koma frá Camperdown til að líta eftir hvemig gengi með viðgerðina á húsinu. . . . En allt í einu var martröðin komin aftur. Við vorum í dimmum skógi og vorum að berjast við að komast út í birtuna. En það dimmasta í skóginum var horfið, því að hann var hérna, kom til mín og horfði á mig, hélt í hend- urnar á mér. Hann hélt báð- um höndum mínum í annari hendi sinni — annari hend- inni, sem hafði þrýst að háls- inum á Seamon. Og það stóð mér alVeg á sama um, þessa stundina . . . Hvorugt okkar sagði orð, fyrst í stað. Kata . .. sagði hann loksins. Svo beygði hann sig og kyssti mig. Ég gat ekki hindrað að tár- in rynnu niður á' kinnarnar á mér. Þetta kom svo óvænt... 31 — Ertu að örvænta um allt? spurði hann. — Nei, vitanlega ekki. — Ef svo væri. .. 'Hann kyssti mig aftur og nú var kossinn hægari og lengri. Ég sýndi enga mótstöðu. — Hvers vegna ertu að gráta? —1 Af því að ég er svo sæl. — Það finnst mér heldur léleg ástæða . . . Hann sleppti höndunum á mér og svipur- inn harðnaði. — Þú hefur ganað út í nokkuð, sem senni- lega hefur mjög óþægilegar afleiðingar. Og hugsaðu til hans Nichols gamla. Ég hef verið svo aumur að ég hef látið þetta viðgangast án þess að malda í móinn . . . — Þú varst eiginlega ekki í því ástandi, að þú gætir mótmælt — hvorki Nichols né mér. En þú ert hressari núna? — Ég held það .. . — Miklu hressari, sagði ég glaðlega. — Ég sé það. Og þá getum við talað saman. — Um hvað? — Ég var í Fanshawe Mewsí gær og skoðaði númer þrjú. Konan sem á heima í nr. 2 hleypti mér inn — hún var eins konar ráðskona hjá Sea- mon. Það var hún sem fann hann dauðan. Og það var hún, sem sá þig koma út úr húsinu, og þessi bílstjóri sem skammaði þig fyrir að rekast á sig, var maðurinn hennar. — Skammaði mig? Hann horfði spyrjandi á mig. •— Ég man ekki til að ég hafi rekizt á neinn bíl. — En þú gerðir það. Hann skrifaði hjá sér bílnúmerið þitt. Og þau gerðu lögregl- unni aðvart... — Þarna geturðu séð hve vonlaust þetta er. Það er enn verra en ég hélt... — En hún gaf mér vísbend- ingu. Ég þóttist vera ágeng stúlka, sem vildi fyrir hvem mun ná í vinnustofu og setti ekki fyrir mig þó morð eða manndráp hefði verið framið í húsinu. Hún gat ekki stað- izt freistinguna að segja mér hvernig aðkoman var þarna. Og nú kem ég að dálitlu, sem er athugunar vert. Hann lá vi ðarininn, með höfuðið inni í eldstónni. — Nú, og hvað svo? — Skilurðu það ekki? Þú flaugst á Seamon og gerðir tilraun til að kyrkja hann við vínskápinn. Hann var að blanda í glös — þú manst það. Þú ætlaðir að slá hann, en hafðir ekki olnbogarúm til þess, og þess vegna þrýstir þú að hálsinum á honum — þetta hefurðu sagt mér sjálf- ur. — Já, ég gerði það, svar- * SKYTTtRNAR ÞRJAR 42 D’Artagnan rak sverðsoddinn að hálsi hins særða og hótaði að stinga hann í gegn ef hann segði ekki hver hefði mútað þeim til að drepa hann. „Náð, náð, liðsforingi, það var kona, sem kallar sig Mylady, er lét mig hafa þetta bréf," stundi hermaðurinn og d’Artagnan greip bréfið og las það: „Þar sem þið létuð stúlkuna sleppa til klaustursins, þá reynið þið a. m. k. að klófesta hann. Mis- heppnist það, þá verður það ykk- ur dýrt spaug“. Hermaðurinn skýrði frá, að hann og félagi hans hefðu átt að senda frú Bonacieux á brott, og vissan um það, að Constance hans væri enn á lífi róaði d’Artagnan og hann lofaði hermanninum að þyrma lífi hans. Þeir komust aft- ur til herbúðanna og sögðu sinar farir ekki sléttar. Það hve d’Art- agnan var rólegur stafaði fyrst og fremst af þvi, að hann þ°kkti ekki Mylady nógu vel. Þegar þetta skeði, hafði d’Art- agnan mestar áhyggjur af því, að hann heyrði ekkert frá vinum sínum. Hann var því ákaflega glaður við, þegar ekill nokkur færði honum tólf flöskur af víni og bréf: Eftir veizlu, sem ég und- irritaður hélt, gerðu herrarnir Porthos, Aramis og Athos slik ó- læti að hallarstjórinn setti þá í stofufangelsi. — Vinir yðar báðu mig þvi um að senda yður þessar flöskur af Anjou-víni til þess að þér gætuð skálað i eftirlætisvíni ykkar. — Virðir.garfyllst, Godaeu, bryti skyttuliðanna. aði hann. — Og hvað gerðist svo? — Ég sagði þér að ég hefði verið ruglaður — þetta er allt svo óljóst fýrir mér. — Já, þú hafðir með öðr- um orðum fengið eitt aðsvif- ið. Þau hafa verið talsvert mörg upp á síðkastið, er það ekki? Þess vegna fórstu til Cleves læknis. Og hann sagði þér berum orðum, að þú yrðir að taka þér hvíld. En arinað hvort gaztu það ekki eða vild- ir það ekki. Þennan sama.dag hafðirðu fengið aðsvif í skrif- stofunni, manstu það ekki? Og svo kom annað. Þú hélzt höndunum um kverkarnar á Seamon, og svo fékkstu að- svifið. — Þetta er kannske rétt hjá þér, sagði hann ólundar- lega. — Ég hef fengið aðsvif. Skiptir það nokkru máli í þessu sambandi? — Hugsanlegt er það, sagði ég, ofurlítið skjálfrödduð. Hann var ótrúlega skilnings- sljór, af greindum manni að vera. Eða var hann að hlífá Rosemary? — Og allt þetta gerðist við vínskápinn, er það ekki áreiðanlegt? En lík Sea- mons var í hinum enda stof- unnar — og ég sá ekki betur en hún væri að minnsta kosti átján feta löng. Hvernig komst það þangað? — Það ætti ekki að vera nein gáta. Ég geri ráð fyrir að Seamon hafi gert mót- spyrnu og leikurinn borizt í hinn endann. — Jæja, segðu mér þá hvernig Seamon var í vexti. Sterkur og stór? — Æ, ég veit ekki — ég held hann hafi verið fremur pervisalegur. — Hár? — Nei, eitthvað um fimm fet og sjö þumlungar, eitt- hvað nálægt því. — Og þú ert sex fet og hálfur annar þumlungur á sokkaleistunum. Ég get ekki skilið annað en að þetta byrj- aði í horninu við vínskápinn. Hann sneri baki að þilinu og horfði út í stofuna. Þú hafð- ir snúið honum þannig að þú snerir sjálfur bakinu að þil- inu. Og samt gat Seamon — hálfkyrktur — ýtt þér, sem ert bæði hærri og þyngri en hann, í hinn enda stofunnar áður en hann hneig niður. Það var vel af sér vikið, af ekki stærri manni. Hvar varst þú þegar þú rankaðir við þér ? — Ég hef ekki hugmynd um það, sagði hann dauflega. — Ofan á honum? — Sjálfsagt ekki. Ég hef sagt þér að ég muni þetta ekki... — Þá finndist mér það ráð að þú reyndir að muna, sagði ég áköf. — Skilurðu ekki, Adam, að ... Ég hrökk við, því að ég tók eftir að nú notaði ég for- nafnið hans í fyrsta skipti svo hann heyrði, en ég varð ekki hrædd, — ég var vaxin upp úr öllum formsatriðum. — Góða Kata ... Hann strauk hárið á mcr. — Ég vildi óska að ég væri verðari þessarar baráttu þinnar en ég er... Við þögðum bæði um stund og fyrst nú tók ég eftir hvemig umhorfs var þama í herberginu. Það var nokkuð stórt, og rúmið stóð í einu hominu. Kringlótt eikarborð stóð nærri glugganum. Fá- ránlegt blómamunstur var á gömlu veggfóðrinu. — Þessi blái litur fer þér vel, Kata. Er þetta nýr kjóll? — Nei, ég hef margsinnis verið í honum í skrifstofunni. — Einkennilegt að ég skuli ekki muna til þess. Hann fer þér að minnsta kosti vel. Hann minnir á þýðan vorblæ. — Hvemig á vorblærinn að líta út? — Frískur og fallegur og heilnæmur... Og blæs öllu húsaskúmi á burt. Ég ranka sjálfsagt við mér bráðum, sagði hann, og ég sá að fing- urnir skulfu, þegar hann tók við vindlingabréfinu sem ég rétti honum. — Ég ligg sjálf- sagt undir einhverju lim- gerði og rigningin fossar yfir mig. Hvar hefurðu náð í vindlingategundina mína ? — Ég náði í eitt bréf dag- inn sem þú hvarfst, en svo gerðist svo margt og það hefur legið óhreyft í tösk- unni minni síðan. Ég kveikti í vindlingunum hjá okkur báðum. — Þetta var gott! sagði hann og reykti Síg-iHl notkunarlist. Þú skalt ekitl liíifa áliyggjur af {>eim. Þetta eru bara tveir af vinum mínum sem eru af- brýðisamir.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.