Vísir - 17.08.1961, Blaðsíða 2
VÍSIR
Fimmtudagur 17. ágúst 1961
v^>
^ ^ Ll Lf— ~T* “] o V,
mmm -Æm
Járnsmiöurinn ógnar einveldi
bandarísku kúluvarparanna.
Bandaríkin sýndu í
keppni sinni við Rússa á
dögunum, að þau bera enn
höfuS og herSar yfir allar
aSrar þjóSir í frjálsum
íþróttum. Samt vantaSi í
liSiS marga beztu íþrótta-
ef svo mætti aS orði komast.
En nú virðist það einveldi
einnig vera að hrynja. Með
kasti, sem mœldist 19.55, sló
Englendingurinn og járn-
smiðurinn Arthur Rowe sitt
eigið Evrópumet, klauj hinn
volduga kvartett og stefnir
nú hraðbyri að 20 metra
'-’V ■
P^jlÍpií; ::::
menn Bandaríkjanna.
En ef viS lítum á Evrópu
sem eina heild og drögum
alla hennar afreksmenn
saman í einn hóp, þá fer aS
þrengjast hagur Banda-
ríkjamanna.
Þjóðverjarnir Hary og Lauer
hafa báðir sett heimsmet á
stuttu hlaupavegalengdunum,
þar sem Bandaríkjamenn voru
áður einráðir, og Berutti hinn
ítalski vann jú 200 metrana á
Olympíuleikunum. Kryszkawi-
ak hefur sett heimsmet í 3000
m hindrunarhlaupi, rússneski
hástökkvarinn Brumel hefur
fjórum sinnum borið sigurorð
af „stærsta trompi“ Bandaríkj-
anya í Róm, John Thomas, og
er nú tvímælalaust bezti há-
stökkvari heims,
Jafnvel í köstunum sækja
Evrópumenn á. Pólverjinn Piat.
kowski átti til skamms tíma
heimsmetið í kringlukasti, og
Rússinn Rudenkov sigraði í
sleggjukasti í Róm.
í einni grein hafa Bandaríkja-
menn þó algjörlega „dominer-
að“, í kúluvarpi hafa skyttulið-
arnir fjórir, Bill Nieder, Parry
O’Brien, Dallas Long og Davis
háð innbyrðis keppni, og gert
kúluvarpið að bandarískri eign,
f dag birtum
við grein um
enska kúlu-
varparann
Arthur Rowe
en hann er sá,
sem mesta at-
hygli h e f u r
vakið í frjáls-
íþróttaheimin
u m síðustu
dagana.
markinu og heimsmetinu.
Aðeins heimsmetshafinn Ni-
eder er ofar en hann á af-
rekaskránni, og hann er
hœttur keppni. Long er óör-
uggur og misjafn og O’Brien
er búinn með sitt bezta. í
augnablikinu er því hœgt að
segja að Rowe sé bezti kúlu-
varpari heimsins,og 20 metra
kast cetti ekki að vera fjar-
stœðukenndur draumur, þar
sem hann hefur kastað 20.12
á œfingu. Það fœr auðvitað
ekk{ staðfestingu, en það
sýnir þó, hvers Rowe er
megnugur, Heimsmet Nied-
ers er 20.06 m.
Það hefur verið sagt, að Ro-
we sé ekki maður stórmótanna,
og satt er það, að aðeins hefur
kveðið að honum á smámótum.
Sjniðurinn virðist vera við-
kvæmur og taugaóstyrkur.þrátt
fyrir rammlegan og þrekmikinn
6úk. Hann er byggður eins og
eikartré, jafnbreiður að ofan
sem neðan.
En hans öru framfarir: tveir
metrar á þrem árum, og met-
kastið á brezka meistaramótinu
á White City, fyrir þúsundum
áhorfenda, segir aðra sögu, og
gefur til kynna meiri tauga-
styrk.
Rowe segist sjálfur „ekki ótt-
ast neinn keppinaut í Evrópu,
ekki einu sinni ftalann Meconi,
sem hefur kastað 18.62, og ég
hlakka til Olympíuleikanna í
Tokíó 1964, því þá ætla ég að
sigra Bandaríkjamennina“.
Ég hef átt í erfiðleikum með
að einbeita mér að kúluvarps-
æfingunum, og það er fyrst og
fremst ástæðan fyrir því, hve
óviss ég hef verið hingað til.
Eftirlætisiðja mín er að spila
,,billiard“. Mér hefur verið boð-
ið að gerast atvinnu-rugbyspil-
ari og í eina tíð hafði ég mun
meiri áhuga fyrir hnefaleikum
en kúluvarpi. Nú æfi ég lyfting-
ar og hlaup. Þrátt fyrir minn
þunga og stóra skrokk, hleyp
ég hundrað hetrana á 11.1 sek,
og stökk 6.80 í langstökki.
Eins og þið vitið, þá hef ég
kastað 20.12 á æfingu. Ég er
vanur, þegar líða tekur á
keppnistímabilið að kasta í
keppni lengra en ég hef gert á
æfingum. Gæti það ekki alveg
eins skeð núna?“
Járnsmiðurinn og kúlu-
varparinn Arthur Rowe virð.
ist ekki aðeins hafa öðlazt
taugastyrk, heldur líka sjálfs-
traust, og það gœti endað
með þvi að heimsmetshafinn
í kúluvarpi yrði ekki lengur
bandarískur — heldur brezk-
ur!
Bikarkeppnin byrjuð
NÚ eru aðeins tveir leikir eft-
ir í íslandsmótinu Valur og
Akureyri, og úrslitaleikurinn
KR og Akranes. Ekki er þó
hægt að segja að um hægist hjá
knattspyrnumönnum, því nóg-
ir eru kappleikirnir og keppn-
isferðirnar á næstunni.
Fram hefur lagt land undir
fót, eins og kunnugt er, og
haldið til Rússlands og meist-
araflokkur Vals, fer auðvitað
til Akureyrar um næstu helgi.
Þá fer KR til ísafjarðar og
reynir við ósigrað lið ísfirð-
inga. Verður gaman að fylgj-
ast með því, hváf’nig þeir
standa sig í viðureign sinni
gegn fyrstudeildarliði.
Nú þegar er Bikarkeppnin
hafin og hafa tveir leikir
farið fram. FramB sigraði
Breiðablik 4:2, en jafntefli
NGLUKASTSMÁLÍÐ
Kringlukastsmálið var tek-
ið fyrir á fiindi stjórnar
FrjálsíþróttaKambands ís-
lands í gærkvöldi.
Stjórn FRÍ hcfur borist
kæra frá Hallgrímj Jónssyni
(kringlukastara) en henni
fylgja tvær ítarlegar grein-
argerðir, og var henni vísað
til sér dómstóls FRI.
Þar mun málið fljótlega
verða tekið fyrir, í þessum
dómstól eiga sæti þrír menn
þcir Stefán Kristjánsson, í-
þróttakennari, Jón M, Guð-
mundsson frá Reykjum og
Þórarinn Magnússon,
Fyrsti varamaður er Jón
Kaldal.
Danir til Ítalíu.
Tveir Danir enn halda nú
suður á bóginn. Þeir heita Knud
Petersen, 1001, og Jörgen Peter-
sen, 1903. Þeir eru að vísu enn
ekki formlega keyptir, en þeim
hefur verið boðið til Ítalíu, af
félaginu Lugano, til að sjá sig
um og — láta aðra sjá sig.
Jörgen hefur leikið með ung-
lingaliði Dana og er hægri inn-
herji, Knud aftur á móti er út-
herji, og mun þekktari. Fyrir
þrem árum, komst hann, í
landsliðið og þótti vænlegur til
mikilla afreka. En einmitt þeg-
ar hann stóð sig sem bezt,
meiddist hann og hefur verið
frá knattspyrnu þar til fyrir
stuttu síðan, Knud er 26 ára,
en Jörgen 22,
varð hjá ValB og Þrótti A
1:1. Bikarkeppni þessari er
þannig háttað, að 10 liðum
er stillt upp í svokallaðri
undankeppni. Aðeins tvö lið
af þessum tíu komast síðan
upp í aðalkeppnina, en í
henni verða öll fyrstudeild-
arliðin 6.
í undankeppninni voru sig-
urstranglegust Þróttur A og ís-
firðingar. Eftir leik Þróttar og
Vals, virðist lið Þróttar ekki
eins sterkt og vænzt var, en
aftur á móti teflir Fram fram
mjög sterkum mönnum í B-liði
sínu. Ætti það lið því að vera
líklegast til þess að komast í
aðalkeppnina.
Annars er það skemmtileg-
ast við bikarkeppnir hve ó-
vænt úrslitin vilja oft vera og
er því ómögulegt að spá
nokkru um væntanleg úrslit
undankeppninnar, hvað þá að-
alkeppninnar. KR sigraði í
fyrra og óneitanlega dettur
rnanni þeir fyrst í hug, þegar
gizkað er á sigurvegara í ár.
En nú virðist KR-liðinu aftur
á móti fara hrakandi méð
hverjum leik, svo hin fyrstu-
deildarliðin hafa öll -jafna
möguleika. Hver veit nema
Fram fari að spjara sig eftir
Rússlandsferðina.
Nú líður að því að til úrslita
dragi • yngri flokkunum. f 2.
flokki lejka Vestmannaeying-
ar vlð Þrótt, en leikdagur er
enn óákveðinn.
KR og Valur eru í úrslitum í
3. flokki en þeim Jeik hefur
verið frestað vegna utanfarar
Vals. Valur er Rvíkurmeistari
í III. flokki.
í 4, flokki leika KR og Fram
í úrslitum en Víkingur og
Fram í 5, flokki, Þeir leikdagar
eru cinnig óákveðnir.
Golf:
Ólafur Bjarki Ragnarsson
vann olíubikarinn nýja.
Golfklúbltur Reykjavíkur
veltti í vor móttöku nýjum
Olíubikar í stað þess eldri, er
vannst til eignar x fyrra af
Jóhanni Eyjólfssyni.
Þessi veglegi silfurbikar var
gefinn af Olíufélögunum Esso,
Skeljungi og BP, sem einnig
gáfu eldri bikarinn, og skal
hann vinnast til eignar ef unn-
inn er 3svar í röð eða 5 sinnum
alls.
Keppnin um þennan nýja
bikar, sem er holukeppni, hófst
fyrir tveimur vikum síðan, og
fóru úrslit fram um síðustu
helgi milli Ólafs Bjarka Ragn-
arssonar og Ólafs Hafberg sem
léku saman 36 holur. Ólafur
Bjarki bar sigur úr býtum, átti
8 holur upp þegar 7 voru eftir
og verður nafn hans þvi hið
fyrsta sem skráð verður á
þennan nýja bikar.
Næstkomandi laugardag, 19.
ágúst hefst Reykjavíkurmeist
aramótið í golfi (úrslit 26.
ágúst). — Fyrirhugað er að
kylfingar heimsæki félaga sina
f Vestmannaeyjum 2. sept.