Vísir - 17.08.1961, Síða 7
Fimmtudagur 17. ágúst 1961
y ísir
7
Ólafur Ketilsson
að Laugarvatn.i kom að.máli
við mig um daginn og bað mig
að koma á framfæri eftirfai-
andi pistli: „Ég er sáróánægður
þeim; sem skrifuðu i blöðin um
ástandið á Laugarvatni um
Verzlunarmannahelgina. Sú
lýsing var ófögur en því mið-
ur stórlega ýkt, ég vildi helzt
segja ósönn. Ég og mínir starfs-
menn fluttum flest af fólkinu,
sem þarna var samankomið, að
og frá staðnum. Við urðum
ekki varir við óspektir eða
drykkjulæti í þeim ferðum og
útlit fólksins, er við fluttum
það til baka, bar ekki vott um
að það hefði eytt helginni í
drykkju og svall. Ég og fjöl-
skylda mín urðum ekki fyrir
neinu ónæði og var þó mikil
umferð í kringum hús okkar i'
sambandi við farmiðakaup og
annað. Ég hef andstyggð á
svalli og skrílslátum og hef séð
sitt af hverju af því tagi. En
ég hef jafnvel meiri andstyggð
á þeim, sem vísvitandi spinna
upp svona sögum bara til að
blöðin seljist betur. Sannleik-
ann mega þeir segja, en ekki
bera út ýktan óhróður.“
Ég fór á stúfana
til að kynna mér þetta mál
betur, átti tal við nokkra bil-
stjóra, sem óku fólki austur að
Laugarvatni, og aðra er dvöldu
þar um þessa helgi. Flestum
kom þeim saman um, að frá-
sagnir blaðanna hefðu verið
mjög ýkjukenndar. Þeim bar
saman um, að þarna hefðhver-
ið töluverð drykkja, en ekki
borið á ólátum eða slagsmál-
um. Dans var í braggasam-
komuhúsi inni í Laugardal eitt
kvöldið, og þar var auðvitað
=ukksamt. Það virðist því, sem
Ólafur Ketilsson hafi mikið til
síns máls, og mér er ánægja
að koma orðum hans á fram-
færi.
Humarver-
tíö lokið.
Þá er útrunninn vciðitími
humarbátanna og hefur at-
vinnumálaráðuneytið kallað
inn öll leyfi sem veitt voru í
vor. Nokkrir bátar í Hornafirði.
Grindavík, Keflavík og á Akra-
nesi, hafa fengið undanþágu til
•aframhaldandi veiða nú um
skeið.
Humarvarpan er mjög vand-
meðfarin, fyrir það, að hún
drepur allt sem hún fer yfir.
í sumar kom í Ijós að allmargir
bátar misnotuðu sér veiðileyfin
og voru 16 bátar í Vestmanna-
eyjum sviptir leyfi og tveir úr
Keflavík. — Undanfarið hefur
verið lítill afli hjá bátunum.
Reykjavíkursýningin 1961
er mikið umræðuefni þessa
daga, enda verður hún mik-
ili viðburður í bæjarlífinu.
Margt nýstárlegt verður þar að
sjá og heyra, enda verður sýn-
ingin áreiðanlega afar fjölsótt.
Eitt er það, sem mér þykir
vænt um í sambandi við þessa
sýningu og hef oft verið bæj-
aryfix-völdunum þakklátur fyr-
ir upp á síðkastið, en það er
aukin rækt við sögu bæjarins
og fornar minjar. Á sýning-
unni verður margt frá fyrri
tímum og mikinn fróðleik að
fá. Sjálfsagt verður það þó
gamla eimreiðin, sem kemur
til með að njóta einna mestra
vinsælda, ekki sízt hjá yngri
kynslóðinni. Sýningarferðirn-
ar um gamla og nýja bæinn
verða vonandi einnig fjölsótt-
ar, en mér er kunnugt um að
forráðamenn sýningarinnar
hafa lagt mikla vinnu í að
undirbúa þær vel. Það eru vist
tiltölulega fáir bæjarbúar, sem
þekkja Reykjavík til nokkurr-
ar hlítar. Þeir gömiu í hett-
unni vita litil deili á hinum
stóru nýju hverfum, er nú risa
upp hvert af öðru, kennd við
voga, mýrar, gerði, heima, holt
og skjól. Og hinir yngri og að-
fluttu vita áreiðanlega lítil
deili á gamla bænum og allri
hans auðlegð af sögum og
minjum. Því ættu allir sem
vettlingi geta valdið, að nota
þetta tækifæri til að kynnast
bænum okkar. sem okkur þyk-
ir nú bara vænt um, þrátt fyr-
ir ýmsa agnúa.
í næsta dálk
mun ég minnast nokkuð á
þýzkt ferðafólk. Ég gerði það
að umtalsefni fyrir 2 árum
vegna umkvartana í þess garð.
Þessar umkvartanir eru enn að
berast og nokkuð víða að. Því
ætla ég að kveða upp úr aftur.
Víðförli.
Reikningar
stúkunnar.
Stór-
Herra ritstjóri.
Vilduð þér sýna Stórstúku
íslands þá velvild að birta
eftirfarandi greinargerð í
heiðruðu blaði yðar:
Vegna greinar í Nýjum viku-
tíðindum, þar sem Stórstúku
Islands er ámælt fyrir að halda
hulu yfir reikningum sínum og
jafnframt gefið i skyn, að það
sé í óheiðarlegu skyni gert, vill
Stórstúkan taka fram eftirfar-
andi atriði:
1. Fjárhagsáætlun Stórstúk-
unnar er jafnan rædd og sam-
þykkt á Stórstúkuþingi og síð-
an birt í þingtíðindum Stór-
stúkunnar.
2. Reikningar Stórstúkunnar
eru endurskoðaðir af fimm
manna milliþinganefnd, sem
kosin er á Stórstúkuþingi. Síð-
an eru reikningarnir ræddir og
samþykktir á Stórstúkuþingi
og loks prentaðir í þingtíðind-
um þess.
3. Þingtíðindi Stórstúkuþings
með fjárhagsáætlun og endur-
skoðuðum reikningum í eru
send fjármálaráðuneyti og
dómsmálaráðuneyti. Auk þess
er ráðherrum, fulltrúum þeirra
Kal'j frændi
og endurskoðendum ríkisreikn-
inga að sjálfsögðu veittar allar
þær upplýsingar um reikninga
og allar fjárreiður Stórstúk-
unnar, sem þeir kunna að óska
á hverjum tíma.
Að öðru leyti verður ofan-
nefndri grein svarað á viðeig-
andi hátt á öðrum vettvangi.
Reykjavík, 9. ágúst 1961.
í framkvæmdanefnd
Stórstúku fslands.
B. S. Bjarklind,
stórtemplar.
Ólafur Þ. Kristjánsson,
stórkanzlari.
Fréttaaukann
í gærkvöldi
flutti séra
Emil Björns-
son, og' sagði
hann frá móti
þar sem sam-
an eru komn-
ir á kirkju-
setri í Englandi klerkar og
kennarar, sem starfa á vegum
kristinna kirkjufélaga, víða
um heim. Frásögn séra Emils
var of hraflkennd til þess að
hún gæti orðið hlustendum eft
irminnileg.
Hallgrímur Jónasson kenn-
ari og ferðagarpur flutti þátt,
sem hann kallaði Kvöld í Arn-
arfirði. Hallgrímur lýsti mjög
vel fossinum Dynjanda og um-
hverfi hans. Var lýsingin ná-
kvæm og þó yfir henni blær
hartnær skáldlegi-ar hrifni og
myndauðgi. Þá drap Hallgrím-
ur á tengsl sögunnar við Geir-
hjófsfjörð op Glámubeiði, og
tókst honum að varpa skup«-
um harmrænna og hugstæðra
örlaga á þessar stöðvar, og um
leið minnti hann hlustendur á,
að sá færi mikils á mis. sem
ferðaðist um landið, án þess
að tengja saman nútíð og for-
tíð.
Garðar Víborg flutti siðari
hluta erindis síns um slysa-
varnir. Hann fjallaði að þessu
sinni um slysahættu á vegum
og drap á margt af því, sem
vegfarendum er nauðsynlegt að
minnast — og ennfremur ým-
islegt. sem þeir, er umferðar-
og vegamálum stjórna, þurfa
að láta til sín taka. Þegar hann
drap á notkun stefnuljósa,
sleppti hann atriði, sem mikil
nauðsyn er á, að ökumenn og
umferðarlögregla veiti athygli.
Seyðfirðingar töku á uióti
nokkrum gestum í gær.
SEYÐISFIRÐI, 16. ágúst:
Hingað er von á nokkrum gest-
um í dag sunnan frá Reykjavík
og er í hópnum sendiherra
Rússa hér á landi og nefndar-
menn í síldarútvegsnefnd. Á
föstudaginn kemur fara héðan
til Rússlands fyrstu 6Q00 tunnur
a fsíldinni sem hér var söltuð
í sumar. Hefur matsmaður met-
ið af kappi undanfarna daga og
1 dag er von á rússneskum
matsmanni frá kaupendunum
Prodintorg.
í tilefni af komu síldarút-
vegsnefndarmanna og hins
rússneska sendiherra ætlar bæj-
arstjórinn hér Gunnþór Björns-
son, að hafa móttöku í barna-
skólanum fyrir gesti þessa og
fleiri.
Hingað inn er stöðugur
straumur norskra síldveiðiskipa
af síldinni sem hér var söltuð
sem eru að fara heim, og taka
hér vatn til heimferðarinnar.
ÓI.
Það er mjög algengt, að þeir,
sem telja sig fullnægja skyldu
sinni um notkun stefnuljósa
noti þau ekki fyrr en um leið
og þeir hægja ferðina í þeim
vændum að beygja. Þannig
notuð ná þau lítt tilgangi sín-
um í hraðri umferð. Þá lagði
hann áherzlu á eitt mik-
ilvægt atriði. Það er engan veg
inn fátítt, að þegar ökumaður
verður var við, að bíll ætlai
fram úr honum, auki hann
stórum hraðann, og hygg ég,
að þetta sé aðalástæðan fyrir
þvi, hve umferðarslys eru tíð
þegar e.inn ekur fram úr öðr-
um. Keppni reiðhesta á ekki
við í akstri. Það, sem erindrek-
inn sagði um háskann, sem af
hinni sivaxandi umferð öku-
tækja er búinn börnum ibú-
anna beggja megin Hafnar-
fjarðarvegar, var orð i tíma
talað. Aðgerðaleysið um breikk
un vegarins og aðrar umbætur,
sem dregið geti úr slysahætt-
unni, er furðulegt og óverj-
andi, og er trúlegt, — svo
hörmulegt sem það er — að
þangað til verð; beðið með úr-
bætur, að svo hryllilegt slys
verði á veginum, að jafnvel
forystumenn í dauðadái
hrökkvi upp með andfælum.
Eitt hið athyglisverðasta í er-
indi erindrekans var það, sem
hann sagði út af akstri ungl-
inga undir áhrifum áfengis,
unglinga, sem eru undir lög-
aldri ökumanna og auk þess
yngri en svo, að þeim megi
selja áfengi. Hann spurði,
hvort þau slys, sem slíkir ungl-
ingar yllu, þá eru þeir ækju
undir áhrifum áfengis á stoln-
um bílum, ættu fyrst og fremst
að teljast á ábyrgð ungling-
anna sjálfra? Mundu ekki
fleiri telja ástæðu til að spyrja
þannig? Nýlega fluttu blöð
fregn af því, að kunnur veit-
ingastaður í höfuðborg Banda-
ríkjanna hefði verið sviptur
veitingaleyfi í þrjá mánuði fyr
ir að selja unglingi áfengi, og
það fylgdi fréttinni, að yrði
veitingastaðurinn brotlegur á
ný, yrði hann sviptur leyfinu
til fulls — og að bannið fylgdi
honum, þótt eigendaskipti
yrðu! Þannig þarf að taka á
brotum, þar sem lífi manna er
teflt í voða sakir viðurstyggi-
legra gróðasjónarmiða.
Hljómlistin var í gærkvöldi
sérlega fjölbreytt og skemmti-
leg.
Guðm. Gíslason Hagalín.