Vísir - 24.08.1961, Side 1

Vísir - 24.08.1961, Side 1
VISIR 51. árg. Fimmtudagur 24. ágúst 1961. — 192. tbl. Kaupir Tryggvi Bv. Keili? Ríkissióði hafa borizt 3 tilhoð. Svo sem kunnugt er var tog- arinn Keilir frá Hafnarfirði auglýstur til sölu um daginn, og hefur fjármálaráðuneytið þá sölu með höndum. í morgun skýrði Sigurður Ólason hrl. stjórnarráðsfulltrúi blaðinu frá því, að þrjú tilboð hefðu borizt og væri nú búið að opna þau. Eitt þeirra var frá togaraútgerð Tryggva Ófeigs- sonar, annað frá Bjarna Páls- syni, Reykjavík, og hið þriðja frá Eyjólfi Konráð Jónssyni lögmannij fyrir hönd Björgun- ar h.f. Tilboð Tryggva Ófeigs- sonar var hæst, 2.1 milljón, en tilboð Bjarna 2 millj. og tilboð Björgunar h.f. 1.7 millj. kr. Ekki hefur verið tekin ákvörð- un um, hvaða tilboði skuli tek- ið, sagði Sigurður, en verði ein- hverju þeirra tekið, þá sýnist augljóst, að það verði Tryggvi Ófeigsson er skipið hreppi. Sendiherrar hér heim- sækja Meistaravík. Tveir sendiherrar hér í Reykjavík, ætla í flugferð á mánudaginn kemur og er ferðinni heitið til Meistara- víkur í Grænlandi. — Þetta eru sendiherra Banda- ríkjanna, Penfield og sendiherra Dana, Bjarni Paulson. Þeir fara héðan með Dakotaflugvél frá Flugfélagi Is- lands. Konur sendiherranna munu verða með þeim í þessari för, og einnig tekur þátt í henni L. Storr ræðismaður Dana og kona hans. Það er Námafélagið í Meistaravík, sem býður þessum gestum. Stjórn þess kemur hingað nú um helgina. Með henni verða einnig bandarískir og sænskir nájnasérfræðingar. Erindið til Meistaravíkur er að kynna sér rannsóknir þær er fram hafa farið í fjalllendi 60 km fyrir sunnan ( Meistaravík á molidan, sem er málmur sem notaður er til málmherzlu. Eru þegar áætlanir um vinnslu þessa málms í hinum græn- lenzku fjöllum. Fyrirliggj- andi eru áætlanir um byrjunar- framkvæmdir, ef það þykir borga sig að hefja molidan- vinnsluna, og nemur sú fjár- festing 200 þús. milljónum danskra króna. Stjórn Námafélagsins og gestir hennar héðan úr Reykja- vík, mun verða þrjá daga í Grænlandi. Geta má þess að Penfield sendiherra, var fyrsti erlendi sendifulltrúinn í Græn- landi, þar var hann á stríðsár- unum er sambandið milli Græn- lands og Danmerkur var rofið. Mun þetta vera í fyrsta skipti frá stríðslokum sem sendiherr- ann fer til Grænlands. Fyrir framan húsið strasse 48 í Berlín í gær. — Blettur á stéttinni. Myndina hér fyrir ofan tók fréttamaður Þorsteinn Thorarensen í Berlín síðdegis í gær. Hún sýnir ekki mikið, aðeins blett á gangstétt fyrir framan húsið Bemauer-strasse 48 í Berlín, sem sagi heftir verið stráð yfir, — en bletturinn er úr blóði. Daginn áður hafði það gerzt að einn af íbúum húss- ins, 59 ára gömul kona, að nafni Ida Siekman, hafði gert tilraun til að flýja Austur-Berlín með því að stökkva af þriðju hæð hússins sem hún bjó í og niður á gang- stéttina. Áður en hún stökk hafði hún kastað fataböggli og fiðursæng niður á gangstéttina og ætlaði að reyna að koma niður á það, en hún lenti fyrir utan, stór- slasaðist og lézt er verið var að flytja hana í sjúkrabil til næsta sjúkrahúss. Lögregla í anddyri. Þessi staður, Bernauerstræti er alveg á mörkum Austur- og ir Austur-Berlín, en gangstétt- in Vestur-Berlín. Þegar kommúnistar ákváðu Skógareldar loka 8anderílugveP> Vestui-Berlínar. Húsið tilheyr- ag l0ka markalínunni settu þeir vopnaða herlögreglu á vörð í anddyri húsanna, sem vissu út að strætinu og auk þess vopnaðan vörð í hverja íbúð. ætlun hinna kommúnísku valdhafa, er að skapa autt dauðasvæði meðfram allri markalínunni. Er þetta gert til að hindra flóttamannastraum- inn. Frú Ida Siekman átti systur í Vesturv-Berlín. Til hennar vildi hún fara. í marga daga FLU G VELLINUM á Gander var lokað í íyrradag vegna þess að skógareldar geisa nærlend- is og lagði reyk yfir flugvöll- inn, en sjálfur var hann ekki talinn í hættu. Þörf var allra sjálfboðaliða, sem til náðist, til að hefta út- breiðslu eldsins, einnig starfs- fólks á flugvellinum. Síðar fréttist, að nokkrar flugvélar, sem nauðsynlega þurftu að lenda, hefðu fengið lendingarleyfi. Flugumsjóninni hér barst skeyti um það í gær, að flug- völlurinn á Gander væri ekki notaður í bili vegna skógarelda. Eiríkur rauði, hin nýja flug- vél Loftleiða, kom til Goose Bay á Labrador í gærmorgun á leið vestur. Hún fór héðan kl. 2,30 um nóttina. Múrað upp í glugga. Síðustu dagana hafa múrarar og smiðir síðan unnið að því undir hervernd, að negla hurð- irnar aftur og múra að innan- verður upp í gluggana á neðstu hæðunum. Og á þriðjudag var svo loks byrjað að flytja íbúa húsanna á brott með valdi, því Frú Ida Siekman. hafði hún heyrt fótatök og hælaskelli kommúnísku lög- reglunnar í göngum og stigum hússins. Loks þegar skipunin kom um að rýma húsið, ákvað hún að stökkva — yfir í frelsið, — en það vdrð stökk yfír í dauðann.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.