Vísir - 29.08.1961, Síða 6

Vísir - 29.08.1961, Síða 6
6 VISIR Þriðjudagur 29. ágúst 1961 Þér finnst konan þin vera fallegasta konan í heiminum ..'. eða þér fannst hún það einu sinni. En upp á síðkastið eru komnir drættir í andlit hennar og þreytusvipur. Göngulag hennar er líf- laust og hún er orðin full af leiðindum. Þá kemur það að Iitlu gagni, þó hún hafi verið fríð. En þú getur hjálpað henni til að öðlast gleði sína að nýju, hjálpa henni til að yfirvinna þreytuna og fá líkamlega heilbrigði, með því að kenna henni að slappa af og hvíla sig og gera vissar líkams- hreyfingar sem eiga að hvíla og stæla líkamann. annarri hlið til hinnar. GeriS þetta oft og í takt, en setjið enga áreynslu í hreyfinguna, iátið höfuðið velta máttlaust og árangurslaust. Súrefni í líkamann. Dragið hægri fótinn varlega upp, þannig að hnéð kreppist og snúi upp, en ilin snúi að gólfinu. Dragið vinstri fótinn varlega upp með sama hætti. Látið síðan iljar og hæla mæt- ast og hnén falla út til hliðar. Andið hægt og djúpt að yð- ur og lyftið handleggjunum hægt um leið. Andið frá yður og látið armana siga. Endur- takið þessa hreyfingu nokkr- um sinnum um leið og þér andið og lyftið örmunum smám saman hærra. Með þessum djúpa andar- drætti fyllið þér líkamann af súrefni. Svo andið þér einu sinni mjög djúpt að yður. Samtím- is og þér andið aftur frá yður, skuluð þér lyfta vinstra fæti svo hnéð komi upp að brjóst- inu. Andið enn að yður og látið fótinn síga aftur niður á gólf- ið. Endurtakið þessa hreyf- ingu mörgum sinnum og með báðum fótum til skiþtis. Gerið eins og þér væruð og látið andar- með. Nú skaltu kenna konunni þinni hreyfingar, sem eru ætl- aðar til að styrkja bakið, — hreyfingar sem eiga að hjálpa henni til að ganga bein. Hæg gönguæfing, sem fyllir þreyttan líkama hennar súrefni Þessi hreyfing getur með tím- anum hjálpað konu þinni til að halda höfðinu hátt. Taktfastar hreyfingar. Þessar hreyfingar hefjast einnig með því að liggja á bak- inu. Dragið hægri fótinn að yður, svo hnéð standi upp. Lyftið vinstra fæti og látið hann á hægra læri, eins og sýnt er á teikningum, sem hér fylgja. Látið fótinn vera þar nokkurn tima en síðan síga niður á gólf- ið. Endurtakið þetta nú með þvi að lyfta hægra fæti upp á vinstra læri og svo koll af kolli. Hér fylgir samskonar önd- unarhreyfing og áður. Andið að yður um leið og þér látið fótinn siga en frá yður um leið og þér lyftið fætinum upp á lærið. Og gerið þetta mörgum sinnum. Nú verður þetta dálitið flóknara Látið vinstri fótinn hvíla á hægra læri, andið djúpt að yð- ur. Lyftið handleggjunum svo að þeir standi beint upp. And- ið frá yður um leið og þér lát- ið armana síga. Endurtakið þetta nokkrum sinnum. Skiptið um fótstöðu þannig að setja hægri fótinn á vinstra lærið og endurtakið armhreyfingarnar. Mjaðmahreyfingar. Ef konan þin þjáist af bak- verk, getur eftirfarandi hreyf- ing verið hjálpleg, en munið hér sem annars staðar að gera þetta ekki harkalega. Setjið annan fótinn á hitt lærið eins og þér gerðuð hér að Þarf að lagfæra göngulagið? Nú skulum við snúa okkur að göngulagi og höfuðstellingu. Er göngulag konunnar þinn- ar slæmt ? Gengur hún með bakhlutann aftur, barminn spenntan fram og höfuðið fram á við? Jæja, þá getur verið að sumt af veikindum hennar og þreytu stafi beinlínis frá göngulaginu. Ef vaxtarlag konunnar er farið að verða breiðara og þykkara vegna göngulagsins, þá er kominn tími ti) að þú ráðleggir henni að gera lík- amsæfingar, eins og þessar: Leggist á gólfið. Réttið hand- leggi og fætur út í hvíldar- stöðu. Látið höfuðið velta frá A þessum tveimur myndum sést æfing, sem reynist oft vel til að Iosna við bakverk. En fara verður hægt og varlega í hana fyrst í stað eins og allar líkamsææfingar. Hreyfið fram- leistinn eins og myndin sýnir. framan. Standið þar í hælinn en hreyfið framleistinn upp og niður um öklann taktfastri hreyfingu. Meðan þessi hreyf- ing fer fram eru armarnir fyrst niður með síðunum, síðan fyrir ofan höfuð en áf ram hvíla þó enn á gólfinu. Þessi hreyfing réttir úr hryggnum og dregur inn mag- ann. Nú er komið að því að hún læri að teygja sig og velta sér til þess að fá rétt líkamslag. Liggið á bakinu, iljar við gólf og hné upp. Teygið úr hægra fæti svo jarkinn nemi við gólf og dragið hann síðan aftur til baka í sömu stöðu og áður og síðan með vinstra fæti og koll af kolli. Við þetta kemur rugg-hreyfing á mjaðm- imar. Þegar þér hafið endurtekið þetta nokkrum sinnum, gerið þá sömu hreyfingu aðeins breytta þannig að {óturinn komi ekki við gólf, heldur sé um 10 sentimetra fyrir ofan gólfið og gerið þá hreyfingu einnig mörgum sinnum. Nú skuluð þér enn hafa fæt- urna í sömu stöðu og áður, ilj- ar við gólf og hné upp, látið handleggina liggja máttlausa meðfram síðunum. Hreyfið mjaðmirnar hægt og rólega út til hliðanna, taktfastri hreyf- ingu sitt til hvorrar handar. Hafið hnén máttlaus og lofið þeim að fylgja mjöðmunum ti) skiptis niður á við. Haldið þessari mjaðmahreyf- ingu áfram og látið hnén smám saman síga nær og nær gólf- inu og færið armana smám saman út frá síðunum, fyrst í axlarhæð og síðan upp fyrir höfuðið, en. armarnir eiga all- an tímann að hvíla á gólfinu. Velta á báðar hliðar. Og nú kemur lokaæfingin. Liggið á bakinu, lyftið hnjánum upp að brjóstinu og haldið örmunum upp fyrir höfuð, en látið þá hvíla á gólf- inu. Andið djúpt að yður og veltið yður lítið eitt yfir á aðra hliðina. Andið frá yður um leið og þér teygið arma og fótleggi fram á við. Nú hvílir allur líkaminn í jafnvægi efst á mjaðmarvöðv- anum. Endurtakið þessa hreyf- ingu til hinnar hliðar o. s. frv. . Nú hafið þér lært undir- stöðuhreyfingarnar í þessari æfingaraðferð. Hvernig geturðu hjálpað konunni að halda æskunni

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.