Vísir - 15.09.1961, Blaðsíða 1

Vísir - 15.09.1961, Blaðsíða 1
I ! -Maður barinn og rændur. LJÓST er af þeim fréttum, sem blaðið hafði í morgun af strand ferðaskipinu Heklu, sem nú er á Ieið til Noregs, að skipið hef- ur hreppt hið versta veður. KI. 9 í morgun var skipið 60 sjó- mílur SA af Dyrhólaey. KI. 11 voru 10 vindstig hjá skipinu. Kröpp Iægð um 500 km SA af Hornafirði olli þessu óveðri, sem var á stóru svæði. Fór lægðin með 60 km. hraða í átt upp að landinu. Var kominn stormur á SA-Iandi í morgun. í gærkvöldi kærði maður nokkur í Vesturbænum til rann sóknarlögreglunnar, líkams- árás og rán, er hann hafði orð- ið fyrir vestur á Landakotstúni, nokkru eftir miðnætti aðfara- nótt fimmtudagsins. Maðu'rinn kvaðst hafa verið á lieimleið og gengið eftir stein- lagða stígnum yfir túnið. Hafi hann ekki vitað fyrri til en á hann var ráðizt og honum veitt höfuðhögg svo þungt að hann féll til jarðar og rotaðist. Telur hann sig hafa legið góða stund meðvitundarlaus. Er hann kom til meðvitundar á ný komst hann fljótt að því að peninga- veski hans, með 900 krónum, var horfið, einnig hattur hans. Við höggið hafði tanngarður í neðra gómi hrokkið út úr mann- inum og enn fremur var gerð tilraun til að ná af honum arm- bandsúri. Maðurinn komst heim til sín hjálparlaust, en gat engar upp- lýsingar eða lýsingu gefið á árásarmanninum. H. K. L. ((Smábæjarkjaftatíkaræði“ Segir Kiljan um blaðaskrif um Strompleik. „ÞaS eina, sem rétt hefir verið sagt frá efni þessa leikrits míns, er það, aS þetta er gamanleikur með alvarlegum undirtón, nánar tiltekiS þjóSfélagsá- deila, og þaS er fyrst og fremst hún, sem er aSal- áhugamál mitt í verkinu,“ sagði Nóbelsskáldið Halldór Kiljan Laxness í einkaviðtali við Vísi í morgun, þegar frétta- maður spurði hann um „Strompleik“ og allar þær til- gátur, sem komið hafa fram um efni hans, síðast í morgun. — Hvernig stendur á allri þessari leynd um leikritið? — Mér hefir skilizt, að Þjóð- leikhúsið vilji hafa þann hátt á, þegar það fær ný íslenzk leikrit til sýningar, að ekkert verði gert opinskátt um efni þeirra, og ég hef farið eftir því. En svo skeður þetta furðulega, að einhverjir blaðamenn í Reykjavík eru haldnir alveg ó- trúlegri róghneigð í sambandi við leikrit mitt og gefa í skyn, að það fjalli um ákveðna fjöl- skyldu, sem hefir verið vina- fólk mitt mörg ár. Þetta er al- veg fádæma ósvífið. Það er hreint enginn tengiliður milli persóna leikritsins og þessara vina minna. Ég set aldrei lif- andi persónur inn í verk mín, svo að það er hreint enginn sem getur bent á þær í verkum mínum og sagt, þarna eru þær. Ég á ekki orð til að lýsa hneykslun minni út af þeim kjaftasögum, sem ganga staf- laust um bæinn í sambandi við þetta leikrit og alsaklaust fólk, það er . svo gersamlega fyrir neðan allar hellur, svo vansæm- andi er það að slíkt skuli koma upp í stað, sem á að heita borg. Þetta er bara smábæjar-kjafta- tíkaræði, sem gripið hefir lítil- fjörlegustu karla. Og kalla þessi ósköp blaðamennsku! — Hvað segið þér um þær „upplýsingar“, sem Morgun- blaðið gefur \ í dag um efni leiksins og persónur? — Flest af því er aukaatriði utan við meginefnið, og því miður ekki laust við, að það sé verið að sneiða áðurnefnt á- gætis vinafólk mitt, og það er vart hægt að koma nokkrum vörnum fyrir, þegar svona eit- urtungurógur er gosinn upp. — Væri nú ekki bezt, svo sem komið er, að segja saklaus- gar ljosmyndan Visis leit inn á Norrænu myndlistarsýninguna * Iista- safninu í gær, var þessi lag- lega stúlka að skoða högg- myndirnar á ganginum í krók og kring, og tj,l að slá tvær flugur í einu höggi, hætti Ingimundur ekki fyrr en hann náði báðum á eina mynd, ungfrúnni, Krist- jnu Þorsteinsdóttur (kölluð Kiddý og vinnur í Hljóð- færaverzlun Sigríðar Helga- dóttur) og myndinni „Þrí- hljómur” eftir sænska myndhöggvarann Ame Jon- es. Þessi fallega fyrirsæta á máske eftir að koma við sögu myndsjárinnar á mánu- dag. um lesendum hið sanna um helztu persónur leiksins? — Þá man ég eftir því, að eitt Reykjavíkurblaðið var að þvaðra um það, að ég hafi lán- Framh. á 5. síðu. 51. árg. Föstudagur 15. septenjber 1961. — 211. tbl. VÍSIR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.