Vísir - 15.09.1961, Blaðsíða 6

Vísir - 15.09.1961, Blaðsíða 6
6 V I S I R Föstudagur 15. sept. 1961 STEPHAN G, STEPHANSSON, 5C3 mannamyndir prýða bókina, sem erL biaðsíður með 455 æviskrám og samtals 6615 mannanöfnum. títgáfa Vestur-íslenzkra æviskráa þjónar tvenns konar tilgangi. Annars vegar er þar skjalfestur og um leið gerður lieyrin kunnur á Islandi nokkur þáttur af þeirri sögu, sem landar vorir hafa skapað í Vesturheimi, og gefið sýnishom af þeirri þjóðfélagsaðstöðu, sem þeir hafa skapað sér, þar sem þar er getið starfa og stöðu mikils fjölda manna af íslenzkum stofni. Á hhm bóginn á bókin að skapa mögu- leika á, að koma á fót beinum persónulegum kynnum milli manna yfir hafið. Ætt- færslur til manna á íslandi gera mönnum hér heima kleift að hafa upp á ætt- mennum sínum vestra, og þeim vestan hafs gefur hún einnig möguleika til að leita uppi frændur á íslandi. — Þannig '--—r geta skapazt ný tengsl á milli þjóðanna. Umfram allt er rit þetta mikilvægt tillag til íslenzkrar ættfræði og persónusögu, og það hefur mikið * *■ þjóðernislegt gildi, VESTUII-ISLENSKAR ÆVISKRAR eftir Benjamín Kristjánsson ættu sem flestir að reyna að eignast og notfæra sér sem lykil tii aukinna samskipta milli íslendinga austan hafs og vestan.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.