Vísir - 15.09.1961, Blaðsíða 3
Föstudagur 15. september 1961
VÍSIR
3
\
Það var glaðvær hópur,
sem stóð við borðstokkinn á
strandferðaskipinu Heklu, er
hún lagði af stað í Noregsför
sína í gærkvöldi. Það var
auðséð að þeir 150 farþegar
sem með voru hlökkuðu til
að heimsækja frændur og
vini austanhafs. Fæstir far-
þeganna hafa áður komið til
Noregs.
Myndir þær sem hér birt-
ast í Myndsjánni tók Ingi-
mundur Magnússon ljós-
myndari Vísis við brottför
Heklu. Efst sést hinn glað-
væri hópur við borðstokkinn.
Á miðri síðunni sést for-
sætisráðherra Bjarni Bene-
diktsson ásamt tveimur
stjórnarandstöðumönnum,
sem áttu sæti í Ingólfsnefnd-
inni, þeim Hannibal Valdi-
marssyni og Halldóri Sig-
urðssyni.
Neðst er Árni Helgason,
hinn kunni gamanvísnahöf-
undur, og sést að hann er
þegar kominn í ferðaskap og
unir sér vel í góðum félags-
skap.
Loks kemur mynd af fólk-
inu sem eftir situr heima,
sem langaði til að koma með
en gat ekki komizt af ýmsum
ástæðum.