Vísir - 15.09.1961, Blaðsíða 5

Vísir - 15.09.1961, Blaðsíða 5
Föatudagur 15. september 1961 VÍSIR FÁHEYRÐUR STRÁKSSKAPUR Björgunarsveit Vestmannaeyja göbbuð í aftaka sjögangi. AFSPYRNUVEÐUR gekk yfir Ves.tmannaeyjar í fyrradag og fyrrinótt og sjógangurinn var afskaplegur. Um það leyti sem veðrið var hvað mest sáu Vestmannaey- ingar neyðarblysum skotið á loft. Eru þetta blysljós, sem bátar hafa jafnan með sér þeg- ar þeir fara á sjó og skjóta úr til þess gerðum byssum ef þeir lenda í sjávarháska. Ljósin eru rauð á lit og svífa drykklanga Viðtalið við Jóhann Hafstein. í viðtali, sem Vísir átti við hinn nýja dómsmála- ráðherra Jóhann Hafstein í gær féll niður hluti sam- talsins, sökum mistaka við umbrot í prentsmiðju. Er Jóhann Hafstein hafði rætt um hið nýja starf og þau átök, sem framundan eru á stjórn- Jóhann Hafstein málasviðinu vék hann að starfi sínu í Utvegsbankan- um á þessa leið: Ég sakna þess, heldur Jó- hann áfram, að fara héðan úr Útvegsbankanum. Hér hefi ég verið frá því 1952 og líkað hér mjög vel og átt að ' fagna góðu samstarfi við starfsmenn bankans, held ég að mér sé óhætt að segja. Vænt þykir mér um að Jón- as G. Rafnar, alþingismaður hefur verið valinn til þess að gegna störfiun banka- stjóra þann tíma, sem ég sinni ráðherrembættinu. stund í loftinu í einskonar fall- hlíf. Var tveimur skotum skotið í Vestmannaeyjum um tíuleyt- ið í fyrrakvöld með nojckurra mínútna millibili og bárust blysin inn yfir kaupstaðinn og féllu þar niður. Töldu menn víst að bátur væri 1 sjávar- háska fyrir utan og og björg- unarsveitin kvödd á vettvang. Bjuggust menn til að sigla út úr höfninni í leit að hinum nauðstadda farkosti þrátt fyrir aftaka veður. En áður en af því yrði kom í ljós að skotið hafði verið úr landi, austan til á Heimaey, og þarna mun hafa verið a.m.k. um einn drukkinn sjómann að ræða, sem tekið hefur neyðar- skotsbyssu úr báti og gert sér leik að því að gabba björgun- arlið Eyjamanna. Eru menn mjög reiðir út af þessu tiltæki mannsins og telja það flestum glæpum verra, því það gat riðið á lífi margra manna ef illa hefði til tekizt. í þessu veðri var sjógangur meiri en gerist á sumrin eða haustin og var brimið óskap- legt. Sáust kvikur við Yzta- klett sem gengu upp í græn grös, en svo hátt gengur sjór ekki nema í allra mestu aftök- um á vetrum. í Vestmannaeyjahöfn var geysimikið flóð, enda stór- streymt, og kalla Eyjarskeggj- ar það sjófyllu. Þá myndast og geysilegt sog og við það vilja bátarnir slást saman og brotna. f þetta skipti varð þó ekki um alvarlegt tjón að ræða, en menn vöktu yfir bát- unum um nóttina til öryggis. Landlega hefur verið undan- farna daga sökum veðurofsans en í morgun fóru fyrstu bát- arnir út á veiðar aftur. Framh. af 1. síðu. að Pétri og Páli úti í bæ leik- ritið til lesturs. Þetta er hel- ber lygi. Þjóðleikhúsið hefir undir höndum eintökin af leik- ritinu og þau hafa ekki farið til annarra en þýðenda minna og útgefenda. Ég get sagt yður það, að aðalpersónuna samdi eg með það í huga, að Lárus Pálsson léki þann karl, en svo varð Lárus að leggjast á sjúkra- hús um stundarsakir, og það verður Jón Sigurbjörnsson, sem fer með hlutverkið. Já, þetta með efni leiksins, það er tæp- lega hægt að endursegja skáld- verk með fáum orðum, það verður að lesa þ-ð, heyra og sjá, til að nokkurt gagn sé að. Já, sko, þetta fjallar nokkuð um vandamál skreiðarfram- leiðanda, sem er áð reyna að koma sér upp kúltúrpersónu, allskyns undarlegt brask í sam- bandi við það, sem tekur á sig hlægilegustu myndir. Hvað þfjfuðpersónan heitir? Eg get sVo sem sagt yður það, það er kúnstner Hansen, hann er hinn móralski ás verksins, sérkenni- legur karl, sem Lárus átti að leika. Svo eru tyær mæðgur utan af landi, sem búa í bragga, kaupmannsekkj a með dóttur sína, tveir sérkennilegir kaupa- héðnar og þeirra hyski, já, og söngkennari er þar líka. Það er ýmislegt skoplegt, en alvaran, þjóðfélagsádeilan er mergurinn málsins. Nú fer að styttast í að allir geti svo séð þetta hver fyr- ir sig. En að hér séu raunveru- legar lifandi persónur til að benda á, hvað þá vinafólk mitt, það er af og frá. Það er hörmu- legt að einhverjir snápar gangi lausir til að terrorisera, hræða alsaklaust fólk og verða sjálf- um sér til háborinr.ar skamm- ar. Áfengií á sama stað. Áfengiseinkasalan liefur í langan tíma haft huga á því að fjölga útsölustöðum sínum eða breyta eitthvað til með þá, og hefur nokkrum sinnum verið auglýst eftir húsnœði fyrir slíka útsölu. Hingað til hefur ekki tekizt að fá hæfilegan stað, því að ekkert hentugt húsnæði hefur fengizt. Eitt höfuðskilyrði fyrir góðum útsölustað er að góð bíla- stæði séu fyrir hendi, því að allur meginþorri viðskiptavina kemur akandi 1 bílum, enda vör- uraar -fyrirferðarmiklar og þungar. Þar til slíkur staður finnst, er sennilegt að Reykvík- ingar þurfi að sækja sína sterku drykki áfram niður á Skúlagötu eða inn á Snorrabraut. Orðrómur komst á kreik um skrímsli í Bassenth- waite-vatni nýlega, en það er í Cumberland, Englandi. Froskmenn köfuðu, en urðu ekki varir. Norræn fegurðarsam- keppni í It'eyLjavík í næstu viku verður efnt til fegurðarsamkeppni Norður- Ianda. Er það fyrsta samkeppni sinnar tegundar og mun hún fara fram hér í Reykjavík. Keppnin á að fara fram í Austurbæjarbíói á fimmtudags- Leiðrétting. í FREGN hér í blaðinu í gær var sagt að heildarverð afurða bænda myndi verða 900 milljónir króna, ef geng ið yrði að kröfum þeirra um breytingu á verðlagsgrund- vellinum. Rétt er að heildar verðmætið er í dag 900 milljónir. Kröfur bænda um 30—35% hækkun á verði landbúnaðarafurða nema 270—315 mi'llj. króna, sem bætist þá við þessa tölu. kvöld, en kynningar- og krýn- ingarhátíð verða að Hótel Borg á föstudags- og laugar- | dagskvöld. Lýkur þeim sam- jkomum með því að „Ungfrú 1 Norðurlanda“ verður krýnd á Hótel Borg seint á laugardags- kvöldið. María fyrir ísland. A fegurðarsamkeppni þessari koma fegurðardrottningar frá öllum hinum Norðurlöndunum og eru þær væntanlegar með flugvéi Loftleiða frá K.höfn á miðvikudaginn. íslenzki þátt- takandinn verður María Guð- mundsdóttir. Keppt verður um verðlaun og eru þau frí ferð til Mallorca á vegum ferðaskrif- stofunnar Sunnu. Það er Einar Jónsson framkvæmdastjóri, sem hefir beitt sér fyrir þessari norrænu keppni. Dómnefndin. í keppninni munu stúlkurnar bæði koma fram í kjólum og baðfötum. Dómnefndin verður skipuð einum fulltrúa frá hverju Norðurlandanna, en formaður hennar verður Jón Eiríksson læknir. Dómnefndin ræður ein úrslitum, en áhorf- endum mun þó gefast kostur á að láta álit sitt í ljós. í dómnefnd keppninnar eru, fyrir Danmörk, Asta Stoklund, er vinnur í danska sendiráð- inu í Reykjavík, fyrir Finnland Barboro Skogberg, lyfjafræð- ingur, fyrir hönd íslands Jón Eiríksson, læknir, sem er for- maður dómnefndarinnar, fyrir Noreg Hans Danielsen, formað ur fyrir Normarislaget i Reykja vík, og loks fyrir hönd Svíþjóð- ar einn af starfsmönnum SAS flugsamsteypunnar. Bilar Frh. af 16. síðu: uðum bílum einnig hafa áhrif. Vísir sneri sér í morgun til Bílasölu Guðmundar og innti eftir því, hver áhrif hinn frjálsi innflutningur myndi hafa á sölu á notuðum vögn- um. Guðmundur svaraði því til, að vafalaust myndi draga eitt- hvað úr sölu á notuðum vögn- um, og salan á nýjum vögnum aukast. Hins vegar taldi hann að ekki myndi verða um sér- stakt verðfall að ræða á not- uðum bílum, nema þá kannske mjög nýlegum vögnum, en verð á þeim hefur verið all- hátt. í slíkum tilfellum myndu menn vafalaust heldur kaupa nýja vagna. Hins vegar sagði Guðmund- ur, að alltaf væri mikil eftir- spurn eftir notuðum vögnum, hjá þeim sem ekki hefðu efni á að kaupa nýja. ■ Geislavirkni Framh. af 4. síðu. [ ínurit 2 sýnir mánaðar- meðaltöl á geislavirkni í lofti hér á landi frá október 1958 til júní 1961. Nokkur hlé urðu á mælingum vegna endurbóta á mælitækjum. •— Línuritið sýnir sömu ein- kenni og línurit 1. Um mitt ár 1959 fellur geislavirknin snögglega og hefur haldizt mjög lítil síðan. Á þessu ári hefur hún verið um 0,01 pc/m3. Eftirtektarvert er, að geislavirkni hér á landi er allmiklu lægri en í Evrópu yfirleitt. Geislavirkni er tölu vert meiri á belti milli 30° og 50 breiddargráðu en utan þess. Stafar þetta einnig af gerð gufuhvolfsins, sem áður var getið. Síðustu mælingar Eðlis- fræðistofnunar • háskólans sýna, að dagana 8.—11. september var geislavirknin í lofti um 0,01 pc/m3, nema 10. september, en þá jókst hún nokkuð, en hækkaði aft- ur næsta dag. Er því greini- legt, að áhrifa frá fyrstu kj arnorkusprengingum Rússa er farið að gæta hér. Áhrifa frá stóru megatonna sprengj. unum, sem sprengdar voru 9. og 12. september mun ekki gæta fyrr en seinna í þess- i um mánuði. Rétt er að leggja álierzlu á, að geislun frá kjamorku- sprengingum fram til þessa er aðeins mjög lítill hluti af þeirri geislun, sem kemur frá náttúrunni og mannkynið hefur búið við frá örófi alda. Verður fjallað nánar um þetta í grein, sem mim birt- ast í blaðinu á næstunni. Magnús Maguússon.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.