Vísir - 15.09.1961, Qupperneq 8
8
VISIR
Föstudagur 15. september lí§p
UTGEFANDI: BLAÐAUTGAFAN VISIR
Rihtjórar: Hersteinn Pélsson, Gunnar G. Schram.
ABstoðarritstjórl: Axel Thorsteinsson. Fréttastjór-
ar: Sverrir Þórðarson. Þorsteinn Ó Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 27. Auglýsingar
og afgreiðsla: Ingólfsstrasti 3. Áskriftargjald er
krónur 45.00 ó mónuði — I lausasölu krónur
3.00 eintakið. Sími 1 1660 (5 llnur) — Félags-
prentsmiðjan h.f., Steindórsprent h.f., Edda h.f.
.V.'
!■■■■■■■■■!
!■■■■■■■■■■
V.V..ViV.V.VíV.V.V.,.,.,.ViViV.,.V.V.,A'.WA'V
Ný vinnulöggjöf.
Því hefir áður verið hreyft hér í forystugreinum að
brýna nauðsyn bæri til þess að endurskoða vinnulög-
gjöfina. Ekki til þess að svipta verkalýðsfélögin frelsi
eða fullum samningsrétti. Þvert á móti. Til þess að
gera starfsemi þeirra alla lýðræðislegri og tryggja það
að meiri hlutinn einn færi þar með völd.
Við íslendingar höfum hagað okkur eins og Mol-
búar í verkalýðsmálum. Sjö þernur á farskipum hafa
það í hendi sér að stöðva farskipaflotann, ef þeim sýn-
ist svo. Og þær hafa beitt því valdi eins og menn rekur
minni til. Lítill hópur félagsmanna í stóru verkalýðs-
félagi getur boðað til verkfalls, þótt meirihluti félags-
manna sé verkfalli raunverulega mótfallinn. Allt eru
þetta fúamerki í þjóðfélagsbyggingu okkar. Hér verð-
ur að reisa nýja máttarviði, ef byggingin á ekki öll
að hrynja.
Það er sannarlega gleðilegt að nú virðist komin
nokkur hreyfing á endurskoðun vinnulöggjafarinnar.
Ungir Sjálfstæðismenn hafa sent frá sér bæði raun-
hæfar og skynsamlegar tillögur um endurskoðun. Þar
er m.a. lagt til að stöðvun vinnu sé óheimil við varð-
veizlu verðmæta, sem til eru orðm áður en vmnu-
stöðvun hefst. Hér er drepið á mikilvægt atriði. I verk-
föllunum 1958 hótaði æðstiprestur ofstopamannanna,
Hannibal Valdemarsson því að kælivélar frystihúsanna
skyldu stöðvaðar og rafmagnið tekið af Reykjavík!
Það þarf að koma í veg fyrir að slíkar ofbeldisað-
gerðir sé nokkru sinni hægt að framkvæma og því er
ofannefnd regla mjög nauðsynleg. Þá er og kominn
tími til þess að aðilum sé óheimilt að gera heildarsamn-
inga um að fella niður ágreiningsmál fyrir dómstólum
vegna vinnudeilunnar og framkvæmdar á henni.
Meðan við búum í þjóðfélagi, sem á verkfallatímum
lætur stjórnast af valdi götunnar verður okkur með
sanni valið heitið ,,skrælingjaþjóð“. Því er brýn nauð-
syn að þegar í stað verði sett ný, réttlátari og lýðræðis-
legri vinnulöggjöf.
Batnandi maður.
örlygur Hálfdanarson formaður Sambands ungra
Framsóknarmanna og erindreki þeirra um langt skeið
fór um síðustu helgi í bandarískri herflugvél áleiðis
til Parísar í boði NATO til þ ess að kynna sér starfsemi
og varnarkerfi NATO. Fyrr í sumar talaði örlygur
hinsvegar á útifundi hernámsandstæðinga við Mið-
bæjarskólann og studdi þá af ráðum og dáð.
Batnandi manni er bezt að lifa.
í þcssum sandhaug var sprengiefnið falið. Ef kviknað hefði í því var úti um de Gaulle. /
Munaði harsbreidd I
:■ Á þessum fögru sept-
emberdögum ríkir enn
!■ friður og ró í Frakk-
■“ landi. Signa rennur jafn
:; hægt og venjulega gegn-
;: um Parísarborg og
:; manngrúinn drekkur
í kaffið á gangstéttar-
I; veitingahúsunum við
í Óperu-torg.
;• Samt munaði aðeins
■: hársbreidd fyrir nokkr-
í um dögum, að allt ryki í
Tilrœðismaðurinn eftir
handtökuna.
háaloft í Frakklandi.
Það þykir jafnvel ganga
kraftaverki næst, að
de Gaulle forseti skyldi
sleppa lifandi úr bana-
tilræðinu sem honum
var sýnt um helgina.
Og ef forsetinn hefði
skaddazt, særzt eða látið
lífið, þá telja menn að
annaðhvort myndi nú
geysa borgarstyrjöld í
landinu, eða að öfgafull-
ir hershöfðingjar hefðu
komið á einræðisstjórn.
Tœknileg mistök.
Það voru samtök þessara
öfgafullu hershöfðingja, sem
stóðu að samsærinu, og hafa
sumir þeirra nú verið hand-
teknir. Tilræðið var framið
við þjóðveginn, sem de
Gaulle ekur um, er hann fer
frá París til sveitaseturs síns
austar í landinu. Það var
mjög vel skipulagt.
.Rétt við vegarbrúnina ut-
an í svolitlum sandhaug,
höfðu samsærismenn komið
fyrir 4 kg af plastsprengi-
efni. Af einhverjum tækni-
legum galla kviknaði ekki i
sjálfu aðalsprengiefninu, en
krafturinn frá hvellhettunni
einni var svo mikill að hægri
framluktin á bíl de Gaulles
brotnaði og eldblossi brenndi
málninguna á hlið bílsins,
sem stóð í einu vetfangi í
reykmökk.
Allt var þetta svo vei
skipulagt, að ef sprengingin
hefði orðið, hefði aðeins bíli
de Gaulles eyðilagzt.
Tilrœðismaðurinn
handtekinn.
Maður sá, sem átti að fram-
kvæma sprenginguna, var
handtekinn samdægurs. —
Hann heitir Martial de Ville-
mandy, er 35 ára og hefur
áður starfað sem þulur í
frönsku herútvarpi, fyrst í
Indó-Kína og síðar í Alsír.
Hann er sjálfur sagður ó-
pólitískur, en mun hafa tekið
verkið að sér fyrir mikla
borgun.
Ástæðan til þess, að hann
var handtekinn svo skjótt
var sú, að hann kom sjálfur
á staðinn af forvitni til þess J
að sjá verksummerki. Þar /
kom í ljós, að hann hafði bú- Ji
izt við sprengingu og tók
lögreglan hann glóðvolgan
höndum. \
■
c
OAS-samtökin. \
Sprengjutilræðið fór fram •'
seint að kvöldi, en það var
ekki fyrr en síðdegis næsta í;
dag, sem tilkynning var gefin
út um atburðinn og er óhætt
að segja, að fréttirnar ollu
skelfingu meðal frönsku þjóð
arinnar, er fólkið skildi til ;■
fulls, hve de Gaulle forseti \
hafði verið nálægur dauðan- J.
um. %
Öflugar öryggisráðstafanir I;
höfðu þegar verið gerðar og /
náðist skjótlega í ýmsa her-
foringja, sem voru við sam-
særið riðnir. Leikur enginn ;
vafi á því, að það er félags-
skapur öfgafullra herforingja /
sem stendur að baki samsær- ;■
inu, hin svokölluðu OAS-
samtök, og er álitið að Raoul S
Salan hershöfðingi sé æðsti \
stjómandiþeirra. \
\
.v.v.v.\v.v.v.v.v.v.v>r.v.
f