Vísir - 05.10.1961, Blaðsíða 1
VISIR
51. árg. Fimmtudaeur 5. október 1961. — 228. tbl.
Þau tíðindi gerðust á
bridgemótinu í Torquay, í
15. umferð, að sveit ís-
lands sigraði Svía. — Nú
dregur til úrslita þar, 2
umferðir eftir. Hin fyrri
verður spiluð í dag og
mætir Island þá Líbanon.
f síðustu umferð keppa fs-
lendingar og Finnar sem
ásamt Líbanonmönnum
eru meðal neðstu sveita.
Sjá nánar um úrslit 15. um-
ferðar á bls. 2.
Nánast ördeyða
hjá togurunum.
ÞETTA er stóralvarlegt mál
fyrir togarana, sagði Hallgrím-
ur Guðmundsson í Togaraaf-
a
Rússar
farnir.
í MORGUN spurðist Vísir fyr-
ir um ferðir rússneska síldveiði
flotans hjá landhelgisgæzlunni.
Pétur Sigurðsson, forstjóri,
sagði að flotinn væri horfinn
af grunnslóðum við landið. —
Flotinn mun nú vera kominn
austur í haf, en þar heldur flot
inn sig venjulega á veturna.
greiðslunni í morgun, er blað-
ið ræddi stuttlega við hann um
aflabrögð togaranna hér á
heimamiðum. Þegar togararnir
koma inn eftir 13—15 daga úti-
vist er aflinn 50—65 tonn. Þá
er ekki hægt að tala um afla-
brögð. Það er miklu nær ör-
deyðu.
En svona hefur þetta verið
xmdafarið, og er enn. I gær var
Pétur Halldórsson hér inni með
innan við 50 tonna afla, og í
morgun kom Freyr inn með 50
tonn. Það sjá allir, að undir
slíkum kringumstæðum er nær
ógerningur að halda skipum úti
til veiða. Erlendi markaðurinn
er mjög ótryggur og togararnir
verða að ná góðum sölum, ef
útgerðin á ekki að bera skarð-
an hlut frá borði.
í MORGUN skutust ljósmynd-
ari og blaðamaður frá Vísi
vestur í Sundlaug Vesturbæj-
ar, til að sjá hvernig verkinu
miðar. Þegar þeir komu að laug
inni sáu þeir að vatn var kom-
ið í hana ög fengu þeir fljótlega
að vita, að ofsnemmt væri að
skjótast eftir sundskýlu og
handklæði, því verið væri að
prófa laugina og eingöngu kalt
vatn í lauginni. En þeir sem
þekkja vel til sögðu, að þess
myndi nú skammt að bíða úr
þessu, að sundlaugin yrði opn-
uð fyrir almenning.
í kjallara búningsklefanna
er hið flóknasta vatnskerfi fyr
ir sundlaugina, ásamt hreinsi-
tækjum. í þau var verið að
setja sand, sem hreinsar vatn-
ið, en það er gert þrisvar á sól-
arhring. Þessi tæki eru sögð
mjög fullkomin. Þar niðri eru
líka hitunartæki, sem hita upp
flísalögnina umhverfis laugina
svo þar myndist ekki ísing.
Laugin sjálf verður þannig
útbúin; að úr gluggum undir
vatnsborðinu er hægt að sjá
um alla djúpu laugina. Er af
þessu hið mesta öryggi. Auk
þess geta þjálfarar leiðbeint
sundmönnum, t.d. þegar þeir
eru að æfa sig í að snúa við og
spyrna sér frá vegg.
Það* var Erlendur Ó. Péturs-
son, hinn góðkunni íþrótta-
frömuður, sem hratt hugmynd
inni um sundlaug Vesturbæjar
af stað, með því að hefja fjár-
söfnun í því skyni. Verður
þessi sundlaug Vesturbæinga
mjög glæsileg. Til gamans má
geta þess að hún mun þurfa
um 3 sektl. af vatni við há-
marks vatnsþörf og í lauginni
eru um 700 tonn af vatni þeg-
ar hún er full.
Þrjú ný rækju
svæði fundin.
Járnsagarblaðinu var
smyglað til fangans
í GÆRKVÖLDI tókst ungum
gæzlufanga að strjúka úr Stein-
inum. Kom í ljós, að hann hafði
sagað í sundur rimla fyrir glugg
anum á klefanum. Hann var
handtekinn skömmu síðar.
Maður þessi, sem er ungur
að árum, hefir komið mjög
við sögu í sambandi við hvers-
konar lögbrot og ofbeldisverk.
Hann heitir Jóhann Víglunds-
son. Var honum sleppt í júlí-
mánuði í sumar út af Litla-
Hrauni. Hann hefir síðan hvað
eftir annað verið handtekinn í
sambandi við innbrot, þjófnaði,
rán og fleira, Er hann talinn
einn allra harðsvíraðasti af-
brotamaður, sem lögreglan hér
í bæ kemst í kast við.
Fullvíst er talið, að járnsag-
arblaði hafi verið smyglað inn
til Jóhanns, og með því hafi
hann sagað rimlana sundur.
Þetta gerðist um klukkan 9
í gærkvöldi. Nokkru síðar fóru
rannsóknarlögreglumenn á vett-
vang. Þeir höfðu fljótlega hend-
ur í hári mannsins. — Var hann
þá búinn að ná sér í verkfæri
og hanzka. Var þá ekkert að
vanbúnaði til innbrota, enda
mun það hafa verið tilgangur-
inn. Var komið með' Jóhann
upp í Stein aftur um miðnætti
í nótt er leið. -
INGVAR Hallgrímsson, fiski-
fræðingur, segir frá því í síð-
asta hefti af Ægi, að þrjú svæði
hér við land, Skagafjarðardjúp,
Axarfjörður og Seyðisfjarðar-
djúp séu líkleg rækjuveiða-
svæði og beri brýna nauðsyn
til að kanna þau nánar ineð
það fyrir augum að hefja
rækjuveiðar þar. Ennfremur
telur hann líklegt, að veiða
megi rækju á nokkrum úthafs-
svæðum svo , sem Halamiðum,
Hornbanka og Strandagrunni.
25 millj. kr.
Rækjuveiðar við ísland gefa
nú þegar í útflutningsverð-
mæti um 25 milljónir króna og
kveðst Ingvar ætla að þær eigi
eftir að aukast til muna frá
því sem nú er og geti orðið góð
búbót fyrir bátaútveginn á
nokkrum stöðum.
Þetta er niðurstaðan af rann
sóknum Ingvars í sumar, en
hann fór umhverfis landið á
vélbátnum Ásbirni frá ísa-
firði í rannsóknarferð. Hófst
leiðangurinn frá ísafirði 8.
júlí og lauk þann 7. ágúst. Tog-
að var fyrir rækju í 87 stöðum,
aðallega norðan lands og aust-
an. Víðast hvar varð vart við
rækju eða á 56 stöðum af 87,
en magn hennar víðast hvar
lítið.
Lítið á Húnaflóa og Eyjafirði.
Húnaflói var talsvert kann-
aður, en þar var lítið um rækju.
Einnig var lítið að finna á
Eyjafirði. Þó er auðvitað ekki
loku fyrir það skotið að rækja
geti verið þar á öðrum tíma.
Beztu svæðin reyndust vera
Skagafjarðardjúp, Axarfjörður
og Seyðisfjarðardjúp. Á síðast-
nefnda staðnum var mjög stór
rækja, en togbotn mjög slæm-
ur.