Vísir - 05.10.1961, Page 2
VÍSIR
Fimmtudagur 5. október 1961
Skothríð í Berlín.
Austur-þýzkur lögreglu-
maður særðist á borga-
mörkunum í Berlín í gær-
kvöldi, er vcstur- og aust-
ur-þýzkir lögreglumenn
skiptust á skotum, meðan
gerð var enn ein flóttatil-
raun þar, en það voru
tveir menn, sem voru að
reyna að flýja að þessu
sinni.
Eltu austur-þý^ku lögreglu-
mennirnir þá eftir húsaþökum
og skutu á þá af skammbyssum
og vélbyssum og náðu öðrum
manninum. Vestan markanna
fyigdust margir með því, sem
IViinning:
Ásgeir Sigurðsson
Skipstjóri.
Þcssi mynd cr hin síðasta sem tekin var af Ásgciri hcitnum
Sigurðssyni. Flytur hann hér ræðu sína í hófinu í Stavanger,
eftir að hann hafði verið gerður að heiðursfélaga í Norsk-
íslenzka-félaginu þar. Sama dag andaðist hann.
Ásgeir Sigurðsson.
Síðasta förin heimleiðis hafin,
hafin út kista fánanum vafin,
Ásgeir er borinn um borð,
stefnt er á djúpið — til Ölvusárósa,
æskunnar stranda og norðurljósa. —
Ættland og starfanna storð
fagnar nú syni til síðustu dvalar,
særinn við Gróttu og Laugarnes hjalar,
mild eru móður orð:
Velkominn heim af hafinu sonur,
hamingja lands og íslenzkar konur
eiga ástmögu um borð
í íslenzkum skipum á úfnum höfum.
alltaf er bjart yfir ferli og gröfum
fullhuga er féllu í val. —
Velkominn Ásgeir, heill af hafi,
fagnar þér land undir fanna trafi
á fjöllum, — og frjómold í dal.
Á. G. E.
gerðist, og viðbúnaður var til
að hjálpa mönnunum, ef unnt
væri, m.a. höfðu slökkviliðs-
menn öryggisnet tilbúið og
breiddu það út niðri á götunni
og héldu á lofti. Reyndi annar
að stökkva niður í netið, en
honum misheppnaðist stökkið
og beið bana í fallinu. Tveir
lögreglumenn á götunni aust-
an markanna skutu yfir höfuð
fólks sem safnazt hafði saman
vestan megin og svöruðu þeir
vestur-þýzku skothríðinni. —
Félagar hins særða drógu hann
burt með sér.
Fréttaritarar segja þetta al-
varlegasta atburðinn í Berlín
síðan kommúnistar lokuðu
borgamörkunum.
Mæðiveíkin —
Framh. af bls. 16
Vísir innti framkvæmdastjór
ann eftir því hvort til tals hafi
komið að skipta þessu fjár-
marga hólfi niður í smærri hólf
til að draga úr sýkingarhætt-
unni. Sæmundur svaraði því til
að um þetta hafi verið rætt af
og til síðustu 10—12 árin, án
þess að nokkur endanleg niður
staða hafi fengizt eða ákvörðun
verið tekin, Landslagi er þann
ig háttað á þessu svæði að
mjög erfitt er að girða af
smærri hólf, öðru vísi en að
girðingar verði á ýmsum stöð-
um undir snjó mestan hluta árs
ins, og verða því hvorttveggja
í senn ótraustar og endingar-
litlar, Landið hefur verið marg
skoðað og mikið um skiptingu
á því rætt en menn alltaf kom-
izt að sömu niðurstöðu, að það
sé illframkvæmanlegt svo að
fullu gagni komi.
Afmælishátíð stúdenta
Stúdentar í Háskólanum ætla
að efna til mikillar afmælis-
hátíðar á 50 ára afmæli skóla
síns.
Verður hátíðin í Lido á
föstudagskvöldið og verður
vandað til dagskrárinnar. Það
er Stúdentaráð Háskólans sem
stendur fyrir hátíðinni og hefst
hún með ávarpi formanns
stúdentaráðs Ólafs B. Thors.
Almennur söngur verður milli
skemmtiatriða.
Aðgöngumiðar að afmælishá-
tíðinni verða seldir í bókasölu
stúdenta á miðvikudag, fimmtu-
dag og föstudag og ennfremur
í Lido á fimmtudag og föstu-
' dag.
Fulltrúaráð —
Frh. af 16. s.
hannesson og Sveinn Helgason.
Að lokum sagði forsætisráðherr
ann nokkur orð. Birgir Kjaran,
formaður Fulltrúaráðsins, setti
fundinn og stjórnaði honum.
Hvert sæti var skipað í fund-
arsalnum og undirtektir áheyr-
enda við ræður frumælenda
prýðisgóðar.
Engin lán til
bilakaupa.
í stuttu samtali sem blaðið
átti í gær við VW-umboðið, var
það réttilega haft eftir tals-
manni þess, að útilokað væri að
veita kaupendum bíla nokkur
lán eða afborgunarskilmála, í
svipuðu formi og tíðknst með
heimilisvélar.
Þetta hefur nokkuð verið
rætt í blöðunum undanfarið. —
Um svo ólíkar fjárupphæðir og
nauðsyniegan lánstíma er að
ræða, að útilokað er með öllu að
taka upp slíkt fyrirkomulag á
sölu bíla. Vissulega væri æski-
legt að geta veitt slíka fyrir-
greiðslu. — Það er einmitt þessi
óskhyggja, sem misskilningnum
olli í samtali umboðsins og
blaðamannsins.
Bjargaðist —
Frh. af 16. s.
stofu. Þar tóku læknarnir við
piltinum og losuðu þeir hendi
hans úr gaddavölsunum.
Nákvæm rannsókn fór síðan
fram á hendinni. Hún. leiddi í
ljós að einn fingur hafði brotn-
að. Var búið um hann í gibs.
Þó hér væri farið óvenjulega
að, þá telja menn víst, að ef
reynt hefði verið að losa hendi
bakaranemans á annan hátt, til
dæmis með því að snúa kvörn-
inni aftur á bak, myndi hendin
hafa stórskaddazt við það. Það
mun hafa verið sjálfur bakara-
meistarinn Guðmundur R-
Oddsson, sem réði því hvernig
brugðizt var við er slysið bar
að höndum. Bakaraneminn
heitir Sigmundur Stefánsson.
Bridge.
Vctrorstarfsemi Áttahagafc
lag' Kjós-verja í bridge hefs
miðvikudaginn 11. október
Breiðfirðingabúð (uppi) kl. f
Ollum heimil þátttaka.
Island van
Opni flokkurinn: 15. umferð.
ísland 4 Sviþjóð 2 (78:73
Belgía 6 Þýzkaland 0 (91:36)
Nor. 6 Egyptal. 0 (139:86)
Ítalía 6 Líbonon 0 (118:89)
Danmörk 6 Spánn 0 (133:39)
írland 6 Finnland 0 (103:71)
England 6 Sviss 0 (129:68)
Frakkl. 6 — yfirseta.
Holland 6 — yfirseta.
Hausttízkan.
SÖKUM mistaka í prentsmiðj-
unni Eddu víxluðust síður
blaðsins í nokkrum hluta upp-
lagsins í gær. Myndirnar af
hausttízkunni áttu að birtast
á opnunni í miðju blaðinu, en
þau mistök voru gerð í prent-
smiðjunni að 9. síðan var flutt
fram á 3. síðu. Eru lesendur
beðnir velvirðingar á þessu
síðubrengli.
Ríkharður —
Frh. af 5. s.
um að tala um, nauðsyn þess,
að aga sjálfan sig.
Við vorum að ganga niður
af íoftinu. Ég spurði Ríkharð
enn-
— Hefur þú aldrei verið
haldinn kvíða fyrir lands-
leik, eða við skulum segja í
hinum hörkumiklu úrslita-
leikjum á móti KR-ingum
um fslandsmeistaratitilinn?
— Nei, ekki hef ég fundið
til þess; ég hef stundum farið
með bæn áður en ég geng til
leiks.
Við kvöddumst á hlaðinu.
— Hver veit nema von þín
um að spila fótbolt fram að
fertugu eigi eftir að rætast,
Ríkharður. Ég þori að full-
yrða, að allir taki einlæglega
undir þá ósk. — Góða ferð!
— Sv. Þ.
Fyrir ísland spiluðu Stefán
og Lárus Eggert og Sveinn.
Kvennaflokkur: 10. umferð.
Finnl. 6 ísland 0 (74:53)
Noregur 6 Frakkl. 0 (121:88)
frl. 6 — Egyptal. 0 (107:72)
Svíþjóð 6 Belgía 0 í96:40)
England 6 Holland 0 (82:41)
Þýzkaland 6 — yfirseta.