Vísir - 02.11.1961, Blaðsíða 2
2
V í S I R
Fimmtudagur 2. nóvember 1961
Frábær markvarzla
knsn í rcfj ftjrir ósifjur
K.R. og danska liðið Efter-
slægten léku að Hálogalandi í
gær. Leikar enduðu jafnt —J
16 : 16.
Oft hefur meiri spcnningur
verið að Hálogalandi. Oft hafa
betri lið lcikið þar. En sjald-
an hefur sézt annar eins mark-
vörður. Markvarzla sú, sem
Bent Mortcnscn sýndi í mark-
inu, sérstaklega fyrstu 10 mín- j
úturnar var einhvcr sú glæsi- (
lcgasta sem sést hefur hér. Það
var Mortensen og Mortensen
einn, scm bjargaði þessu danska 1
annarrar dcildar liði frá all-1
stórum ósigri fyrir K.R.
Leikurinn var harður, vel J
leikinn á köflum, en mark-
varzla Mortensens og þá skot
Reynis Ólafssonar settu fyrst
og fremst sinn skemmtilega blæ
á leikinn. Lið Efterslægten er
jafnt og allgott án þess að vera
sterkt. Skyttur erú fáar og ekki
góðar og vornin er hvergi nógu
þétt. En samleikurinn er oft á
tíðum skemmtilega hraður en
virkar á köflum ómarkviss og
án tilgangs. Línuspil er óvnju
lítið og yfirleitt virðast dönsku
leikmennirnir nokkuð stirðir.
Það tvennt vekur athygli.
KR-liðið átti hins vegar góðan
leik, sérstaklega í byrjun seinni
hálfleiks. Þá lék það af öryggi
og festu. Vörnin var traust, og
Mortensen átti furðu erfitt með
lymskuleg skot Reynis, Reynir
skoraði þannig ein 7 mörk og
auk þess skoraði hann tvö úr
vítaköstum, samtals níu mörk.
Hann átti og mikittn þátt í flest-
um hinna, sýndi beztan leik
KR-inga ásamt Guðjóni í mark
inu, sem virtist smitast af koll-
ega sínum í hinu markinu, því
hann varði oft á tíðum ótrúleg.
ustu knetti. Karls var vel
gætt allan leikinn og fékk hann
lítið að aðhafast. Þó komst hann
þrívegis í færi og þá var ekki
að sökum að spyrja, knöttur-
inn lá óverjandi í netinu.
Efterslægteh þriavar
i byrjun án þss að KR. tækist
að svara fyrir sig. Þá komu tvö
mörk (Reynir og Heinz) en
Danir bættu strax við. Fljót-
lega náðu Danirnir 4—8. K.
R. minnkaði bilið (6—8) og í
hálfleik stóð 7—10.
Um 10 minútur af seínni
hálfleik án þess að mark væri
Karl Jóhannsson í .gó'ðu færi
við Danina í leik KR við
Efterslægtcn í gærkvöldi á
Hálogalandi. Fyrir ofan hann
standa tveir dönsku leik-
tnannanna. (Ljósm.: Bjarn-
Ieifur).
skorað, einkum vegna frábærr-
ar markvörzlu beggja mark-
varða, og varði þá Guðjón aft-
ur og aftur frækilega. En svo
komu mörkin og KR seig hægt
á og áður en varði höfðu þeir
jafnað í fyrsta sinni (Karl með
glæsilegu skoti). Komst nú all-
mikil spenna í leikinn og hark-
an jókst. Liðin fylgdust að, 12
-*12 og 13—13, en þá komst
KR yfir (Þórir). Enn jafna
Danir og komast yfir 15—14,
en Reynir og Þórir bæta tveim
við, nokkrar sekúndur eru til
leiksloka og allt lendir í bendu
og biðu á miðju vallarins. Dan-
irnir taka upp ,,maður og mann
taktik“ og fyrr en varir er Guð-
jón kominn út á miðjan völl.
Þar fær hann dæmt á sig frí-
kast, og áður en hann komst í
markið, skora Danirnir í tómi
markið, 16—16,
Þannig endaðí þesi leikur og
mega bæði liðin vel við una.
KR-ingar að skora 16 mörk hjá
hinum snjalla Mortensen, en
Danirnir að ná jafntefli við sér
sterkara lið.
Heimsmet Vilhjáims
Framh. af bls 16
cm. lakara en hans bezti árang-
ur, en Jón stökk 3,20,
Síðan hófst hástökkskeppnin
og bættist nú Y t 1 Hólm í hóp-
inn. Byrjað var á 1.50 og fóru
allir yfír, 1.55 stökk Karl en
þeir Vilhjálmur og Jón slepptu
þeirri hæð. Síðan var hækkað
í 1.60, Þá hæð fór Vilhjálmur í
fyrstu tilraun en þeir Karl og
Jón félldu báðir í öll skiptin.
1.09 fór Vilhjálmur i þriðju til-
raun og nú var hækkað upp í
1.75, 1 cm, hærra én skráð
heimsmet. Vilhjálmur bjó sig
vel undir stokkið, og..., hóf
sig á loft, hann snerti slánna
sig á loft, hann snerti slána
og húh hoppaði á okunum —
sett heimsmet.
Viðstaddir áttu bégt með að'
trúa þessu, Hæðin var mæld
aftur ög aftur og reyndist
meira að segja rúmlega 1.75,
nærri 175 og Vz cm.
Ekkert reyndist athugavert
og heimsmetið var orðinn
raunveruieiki.
„Mér hafðí nú varla dottið
heimsmet í hug,“ sagði Vil-
hjálmur, þegar við hr.ingdum í
hann í gærkvöldi, „Samvinnu-
skólinn (en þar er Vilhjálmur
kennari) er í námsför hérna í
bænum, svo við í Í.R. ákvéðum
að nota tækifærið oð halda inn-
anfélagsmót. Til þess vai* aug-
lýst á löglegan hétt. Eg hef
frekar lítið æft þarna upp frá,
og það er ef til vill þvi að
þakka, hve stökkin tókust vel.
Strax og maður byrjar stífar
þols og þrekæfingar missir mað-
ur þá snerpu sem nauðsynleg
er í stökkum sem þéssum.“
Það má geta þess að hástökk
án atrennu var ein af keppnis-
greinum á þrem fyrstu Olymp-
íuleikunum, „þótt nú upp á
síðkastið hafi það lítið verið
reynt erlendis. Hérna heima
höfum við hinsvegar mikið
gert af því að stokkva án at-
rennu innanhúss, einkum vegna
þess hve stuttan tíma við get-
um verið úti.“
f hástökki án atrennu verð-
Ur að stökkva jafnfætis upp og
í spyrnunni má ekki hreyfa eða
„skrúfa fótinn að neinu gagni.
Mikla nákvæmni þarf til og
mikið reynir á stökktæknina.
Við notuðum tækifærið og
spurðum Vilhjálm um und-
irbúning hans fyrir næsta
kcppnistímabil, en hann
vildi lítið um það segja að
sinni. Óvíst er hve mikið
hann getur æft, enda erfitt
um vik í Borgarfirðinum,
þar sem engin braut, lífæð
þeirra þrístökkvaranna, er
nálæg. Mátti þó heyra á
honum, að hann hefur full-
an httg á að æfa og keppa
næsta sumar og er það vel.
Það er ástæða til að óska
Vilhjálmi til hamingju með
afrekið og um leið íslenzk-
um fþróttum mcð þennan
glæsilega afreksmann.
Stalin —
Framh at 7 síðu.
unni um að ittlðstjórn rúss-
ncska kommúnistaflokksins
hafi ákvcðið að Krúsév verði
aðalritari flokksins. — Þá
var sól hans að byrja að rísa
yfir spirunum á Krcml,
®
ennan sama dag birtir
svo Jóhanncs skáld úr
Kötlum hátt úr Moskvuför:
„Slgurvcgari i stríði og
friði,“ — helmsókn skáids-
ins í Stalinsafnið í Moskvu.
í greininni varpar skáldið
m.a. fram spurningunni: Ef
Josef Stalin hefði ekki stað-
ið í fararbroddi alþýðunnar
liljóður og öruggur og sigrað
þessi öfl, hvar stæði þá
heimurinn nú?
En skáldið var búið að
svnra þessari spurningu
sjálft mörgum árum áður í
kvæðinu dagskipun Stalins.
þar situr Josef Djugasvili,
sonur skóarans.
Þar situr hann cr ttngur valdi
einn hinn byngsta kost,
og lagði. út í þennan heim
með Iítinn geitarost.
og furðulegra en nokkurt
skáld gat frairt í tímann séð:
í ostsins stað nú hverfist
djarft í hendi þessa manns
hinn ægifagri hnöttur vor
og örlögsíma hans.
Og síðar í hetjukvæðabálki
þess unt Stalin:
— Það er náhljóð dimmt
um sinn.
Nú stara augu milljónanna
á Stalín, marskálk sinn.
Vestur-Þýzkaland hefir boð-
að, að 5000 varaliðsmenn
vcrði kvaddir til vopna í
næsta mánuði.
Til leigu.
SUÐURSTOFA og herbergi
til leigu. Aðeins reglusamir
einstaklingar koma til greina
Uppl. í síma 11190. (00