Vísir - 02.11.1961, Blaðsíða 5

Vísir - 02.11.1961, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 2. nóvember 1961 V í S I R nnras i Katanga Það var tilkynnti í Leop- oldville í dag, að herir Kongóstjórnar hefðu í morg- un hafið innrás í Katanga- hérað. Sagði Mobuto, að herinn væri þegar kominn 50 km. inn í héraðið og yrði sóknin eigi stöðvuð fyrr en Katanga hefði verið sameinað Kongó. Flóttamenn — Framh. at 1. síöu. bricht: — Verkakona ein kom til mín og spurði mig, hvers vegna við gæturn ekki haft frjálsar kosningar? Þegar Ulbricht hafði mælt þessa setningu, klappaði ég állt í einu eins og ósjálfrátt. Eg var eini maðurinn sem klappaði. Ul- bricht horfði á mig grimmum augum og það vai'ð dauðahljóð í salnum. Ég hrökk við og mælti eins og til að afsaka mig: — Já, getum við ekki fengið frjálsar kosningar. Nei, æpti Ulbricht og síðan hélt hann langa tölu um það að svonefndar frjálsar kosning- ar væru nazistískar kosningar. — Urðuð þér fyrir óþægind- um af þessu? ^ — Ekki þá strax á eftir, en næsta dag, þegar ég kom til vinnunnar var mér sagt að koma upp á skrifstofu og varð J ég að þola þar umtölur og ávít- ur í 3 klst. og voru mér gerðir þeir úrslitakostir, að innan viku yrði ég að standa upp á fundi starfsmanna verksmiðj- unnar og lýsa yfir því, að ég væri mótfallinn frjálsum kosn- ingum. Auk þess yrði ég að skuldbinda mig til að vera hálft ár í sósíalistiskum ; I æfinga- flokki. Þó hefði ég ekki flúið, ef það hefði ekki einmitt gerzt þá að markalínunni var lokað. Þá þoldi ég ekki lengur við. Missti trúna á kommúnismanuni. Fréttamaður Vísis snýr sér þá að Ingrid Podlesch kvenlækni og spyr hana af hverju hún hafi flúið. — Það gegnir talsvert öðru máli með mig en ferðafélaga komnn. Ég var nefnil. sanntrú- aður kommúnisti. Ég trúði því statt og stöðugt að sósíalisminn myndi skapa okkur þjóðfélag velmegunar, frelsis og ham- ingju. — Hvenær komust þér á aðra skoðun? — Það gerðist smátt og smátt. Ég var i æskulýðsfylk- ingunni og starfaði í flokknum, en það var aðallega kringum júní-uppreisnina 1953, sem grunsemdir fóru að koma upp í mér. Á seinni árum hafa von- brigðin verið mest vegna hinn- ar sífelldu efnahagslegu aftur- farar. Til dæmis hinn mikli matvælaskortur sem enn ríkir í Austur-Þýzkalandi. Og þá vekur líferni flokksforingjanna andúð manna á stefnunni, því að þeir lifa í miklu óhófi, hafa allir einkabíla og einkabil- stjóra og enn fremur hafa þeir sérstakar verzlanir þar sem lúxusvörur og vestrænar vör- hin nýja aðalstétt getur keypt ur á mjög lágu verði. En þó held ég að ég hefði, reynt að þrauka áfram, ef ekki j hefði komið tilkynning um að: ætti að taka frá okkur læknum hið sérstaka vegabréf sem við höfðum og gaf okkur leyfi til að ferðast vestur á bóginn. Fjórir menn hætt komnir á ytri höfninni í morgun. Dönsk bókasýning NÚ er aftur að lifna yfir út- lendum bókakosti í bókabúðuni I bæjarins, og getum nú fengið yfirlit yfir allt það bezta, sem i út hefir komið í Danmörk hin síðustu misseri. Bókaverzlun j Sigfúsar Eymundssonar opnaði sýningu danskra bók í morgun. Þátttakendur í sýningunni j verða öll helztu forlög Dan- merkur, svo sem Gyldendal. ! Fremad, Hasselbach, • Jespersen og Pios, Hassing og Shönberg. Alls verða þarna til sýnis á átt- unda hundrað bóka, fyrst og fremst danskir höfundar, en að auki verða þar þýðingar ís- lenzkra bóka á danska tungu, svo sem íslendingasög- urnar og bækur þeirra Gunnars Gunnarssonar, Kiljans og Krist- manns. Einnig eru þarna dansk- ar þýðingar ýmissa annarra er- lendra höfunda. Bazar. Kvenfélag Háteigssóknar heldur bazar mánud. 6. nóv. í Góðtemplarahúsinu, upp.i Allar gjafir eru vel þegnar a'á velunnurum Háteigskirkju. Gjöfum veita móttöku Hall- dóra Sigfúsdóttir. Flókagötu 27, Lára Böðvarsdóttir, Barma hlíð 54, María Hálfdánardóttir, Barmahlíð 36, og Sólveig Jóns- dóttir, Stórholti 17. •jif Hin árlega aksturskeppni í gömlum bílum millí London og Brighton á suðurströnd- inni er fram nk. sunnudag. Skráðir hafa /erið um 250 bílar, þeir elztu um 65 ára. 1 MORGUN sökk einn hafnsögubátanna hér á ytri höfninni er verið var að leggja rússnesku olíu- skipi við múrningar. —- A bátnum voru fjórir menn og voru þeir allir mjög hætt lcomnir, er bátnum hvolfdi við afturstefni hins stóra skips. Ástæðan til þessa óhapps var sú að dráttar- vír úr bátnum fór í skrúfu olíuskipsins, en hún var í gangi. Þrír mannanna voru í sjónum í stundarfjórðung áður en tekizt hafði að bjarga þeim. — Það sem bjargaði okkur var krók- stjakinn úr hafnsögubátn um, sagði einn þessara þriggja manna í viðtah' við blaðið. Rússneska Olíuskipið, sem heitir Izjaslav, átti, í morgun al leggjast við múrningar framan við Essostöðina í Örfir- isey. Á vettvang fóru Magni og hafnsögubáturinn Nóri. Á bátn- um voru einn starfsmaður Reykjavíkurhafnar og þrír starfsmenn frá Esso er jafnan aðstoða við að leggja hin stóru olíuflutningaskiþ við múrning- arnar. Einn þeirra manna sem á bátnum var er Sölvi Valdi- marsson vélstjóri, Hátröð 4, Kópavogi, starfsmaður hjá Esso. f samtali við Vísi í morg- un um þennan atburð sagðist honum frá á þessa leið: . Við vorum að leggja á bátn- um að afturenda skipsins. Við vorum allir uppi, nema Sveinn Axelsson, hafnsögumaður, er var í stýrishúsinu. Við áttum að rétta upp í skipið dráttarvír og var búið að gera klárt hjá okkur, festa hann í Nóra. Er við komum að afturstefni skipsins voru þeir á skipinu ekki tilbúnir að taka við vírn- um. Olíuskipið var á hægu skriði aftur á bak og var skrúf- an í gangi. Þegar þeir á skip- inu voru ekki tilbúnir, reynd- um vð í skyndi að bakka frá. Þá skeði óhappið. Dráttarvír- inn, sem við ætluðum að rétta upp, lenti í skrúfu olíuskipsins og það skipti engum togum. Við heyrðum ægilegan skruðn- ing. og um leið hvolfdi bátnum yfir okkur, við afturstefni skipsins, er skrúfan hafði grip- ið bátinn. Þegar mér skaut upp, en ég er lítt syndur. kom Haraldur Ólafsson sjómaður.. Safnargötu 10. unp^rétt um leið. og hánn greip í mig. Ég sá rétt fyrir framan mig krókstjakann úr Nóra. Ég greip hann og sá lykkju hátt uppi á skipssíðunni. Mér tókst á augabragði að krækja í hana! Skrúfa skipsins hélt enn áfram að snúast og það maður. Hefði hann gengið mjög nærri sjálfum sér. Sverri Axelssyni hafði orðið ógköp kalt en var ómeiddur. Hafnsögumenn munu vera einu starfsmenn bæjarins sem vinna áhættusöm störf, t.d. eins og strætisvagnastjórar, slökkvi- liðsmenn, en fá ekki neina á- hættuþóknun í starfi sínu. Sölvi Valdimarsson vélstjóri. var mikil ólga við skipið. Ót- aðist ég að við myndum lenda í skrúfunni. Starfsfélagi okk- ar, ungur piltur, kom nú líka á stjakann. Nú sáum við hvar Nóri var á hvolfi skammt frá okkur og hafði Sverri Axels- sni, hafnsögumanni, tekizt að komast á kjöl. Það var ægilega kalt í sjón- um. Við þorðum ekki að sleppa stjakanum. Við vorum allir í fullum olíugala. Rússarnir köst- uðu bjarghringum út en þeir flutu svo langt frá að við þorð- um ekki að sleppa. Okkur fanst skipsskrúfan ganga lengi með- an við biðum eftir björgun. Mikil ólga var við skipið og starfsfélag minn Haraldur Ól- afsson mun hafa sopið nokkuð af sjó. Við biðum líklega í full- an stundarfjórðung eftir að okkur bærist hjálp. Gunnar Magnússon stýrimaður hjá Esso, kom niður til okkar á kaðli úr olíuskipinu. Skotið var stiga niður en við vorum orðnir svo þungir og kaldir að við þorðuip ekki að sleppa stjakan- um. Nokkurt bil var á milli stigans og okkar. Tollbáturinn kom okkur til bjargar.— En ef krokstjakinn hefði bilað meðan við biðum eftir björgun, þá hefðu við sennilega allir drukknað. Ef báturinn hefði komið fáeinum augnablikum siðar, hefðum við allir verið horfnir, því við vor- um að gefast upp, sagði Sölvi að lokum. Hann kvaðst vera slæmur í öxl, sennilega brák- aður. Hann taldi Halldór vera við slæma líðan enda eldri Verilaun fyrir vísmdastörf. Árið 1954 stofnaði frú Svan- hildur Ólafsdóttir, stjórnarráðs- fulltrúi, sjóð til minningar um föður sinn, dr. Ólaf Daníelsson, og eiginmann sinn, Sigurð Guð- mundsson, arkitekt. Nefnist sjóðurinn „Verðlaunasjóður dr. phil. Ólafs Daníelssnar og Sig- urðar Guðmundssonar, arki- tekts“. Tilgangur sjóðsins er m. a. að verðlauna íslenzkan stærð- fræðing, stjörnufræðing eða eðl- isfræðing, og skal verðlaunum úthlutað án umsókna, en þau nemá 20 þúsund krónum. Stjórn sjóðsins hefur að þessu sinni veitt dr. Trausta Einars- syni, prófessor, verðlaunin fyrir vísndastörf á sviði jarðeðlis- fræði. ÞjéðSeikhiísið — Frh. af 16. s. koma í skemmtanaskatti. Þetta á að nægja Þjóðleikhús- inu, sagði ráðherrann. Jafnframt gat hann þess að Þjóðleikhúsið hefði óskað eftir fjárveitingu til greiðslu á 1.7 milljónum króna í lausaskuld- um. Það mál yrði að rannsaka, sagði ráðherrann og þess vegna hefur verið skipuð nefnd þriggja manna frá mennta- málaráðuneytinu, fjármála- ráðuneytinu og fjárveitinga- nefnd Alþingis, einn frá hverjum aðila til að rannsaka þessa beiðni. Blaðamaðurinn spurði ráð- herrann hvort ákveðið væri að veita Leikfélagi Reykjavík- ur undanþágu frá greiðslu skemmtanaskatts. Ráðherr- ann svaraði því til að þetta væri óútkljáð mál. Hann komst svo að orði, að Leikfé- lagið væri elzta leikfélag landsins og alls góðs maklegt. En önnur leikfélög, t. d. í Kópavogi, Hafnarfirði og víðar mundu óska sömu undanþágu og væri þá tæplega hægt ann- að en að verða við því. En þetta mál þarfnast frekari at- hugunar sagði ráðherrann að lokum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.