Vísir - 02.11.1961, Síða 16

Vísir - 02.11.1961, Síða 16
2. nóvember 1961 VÍSIR Megaton .4 .05 >1.1 5 .1 5 .1 5 .1.1 5 1 11 11 1 5 Éitíst ^--------------------------- / V...„.......................................... 5.08 .1 5 25 .1 1 50 Megatoh ----ÖCTOBER SERIES ■ ■ ■ 7 Plast vmtudagur Nefnd rannsakar fjár- mál Þjúðleikhússins Skipuð verður þríggja manna nefnd til að rann- saka fjármál Þjóðleikhúss- ins. Þjóðleikhúsið hefur óskað eftir að fá fjárveit- ingu á fjárlögum næsta árs, til að greiða lausa- skuldir að upphæð 1,7 milljónir króna. Þess vegna hefur þótt á- stæða til að láta þrjá menn, einn frá menntamálaráðuneyt- inu, annan frá fjármálaráðu- neytinu og þann þriðja frá fjárveitinganefnd líta yfir bók- hald leikhússins. Blaðamaður frá Vísi spurði menntamálaráðherra Gylfa Þ. Gísláson að.því í gær hvað hið opinbera hyggðist gera til að styrkja fjárhag Þjóðleikhúss- ins, en hann er heldur bágbor- inn um þessar mundir. Ráðherrann kvaðst mundi leggja fram frumv. á næstunni þar sem gert er ráð fyrir að vínveitingahúsin greiði skemmtanaskatt eins og aðrir dansstaðir. Þau hafa ekki látið greiða aðgangseyri og þess vegna ekki verið unnt að inn- heimta hjá þeim skemmtana- skatt, nema með breytingum á lögunum um skemmtanaskatt- 1 inn. Að öllum líkindum verð- ur frumvarpið samþykkt. Við það hækka heildartekjur af skemmtanaskatti um verulega upphæð, Þjóðleikhúsið mun fá 50% af þessarri aukningu eins og öðrum tekjum sem inn Pramh. á 5. síðu Glæpur Krúsévs. Uppdráttur þessi gef- ur nckkra hugmynd um hinar æðisgengnu kjarnórkuvopnatilraunir Rússa. — Sprengíngar þeirra sem fullvissa er fyrír munu nú vera orðnar 28, en sennilegt er talið að beir hafi sprengt á tveimur mán- uðum nærri 40 sprengj- ur og eru þær að sprengimagni og geisla- virku úrfalli margfaldar á við allar sprengjur sem sprengdar höfðu verið fram til þess tíma. Stærsta sprengjan er sýnd lengst til hægri. Hún var að sprengikrafti yfir 50 milljón tonn af TNT sprengiefni. Mun það vera álíka mikið eða meira en allar sprengj- tir, sem notaðar voru í síðustu heimsstyrjöld. Tekinn tvær nætur í röð fyrir ölvun við akstur. Þau tíðindi gerðust hjá götu- lögreglunn hér í bænum í nótt og fyrrinótt, að einn og sami maður var báðar næturnar tekinn fyrir ölvun við akstur. Þetta var maður utan af landi, sem var á ferð í bifreið sinni hér í bænum. í fyrrinótt þótti lögreglumönnum maður þessi aka næsta undarlega um götur bæjarins, stöðvuðu hann og kom þá í ljós að hann var ölvaður. Hann var fluttur til blóðrannsóknar, en í gær, þegar runnin var af honum víman, var honum fengið ökuskírteinið, svo sem oft er gert, ef • ekki hendir hinn drukkna nein ó- höpp eða slys við aksturinn. En maðurinn hefir líklega ver ið „timbraður“, og þurft að fá sér „afréttara“, því í nótt rák- ust lögreglumenn á hann á nýj- an leik ölvaðan við stýrið. í fyrrinótt tóku lögreglumenn einnig réttindalausan mann við bifreiðarakstur. Hafði sá mað- ur nokkru áður verið sviptur ökuréttindum. Alexandra, brezka prinsess- an, er lögð af stað í opin- bert ferðalag um Vancouver Betra en 10 heimsmet. Þess má geta, að sam- kvæmt finnsku stigatöfl- unni, þá jafngildir þetta af- rek 8,46 m í langstökki (nú- gildandi heimsmet 8,28 m) og 16,80 í þrístökki með at- rennu, og er betra en 10 nú- gildandi heimsmet, og sprengir nýju stigatöfluna í öllum greinum. Vilhjálmur setur heimsmet í fyrsta skipti í sögu ís- lenzkra íþrótta hefur Is- lendingur sett heimsmet í frjálsum íþróttum. — Vilhjálm Einarsson setti í gær heimsmet í hástökki án atrennu. Hann stökk 1.75 cm., en fyrra metið átti Norðmaðurinn Evans, 1.74 cm. Með þessu afreki sínu hefur Vilhjálmur ekki að- eins varpað enn einu sinni ljóma yfir íslenzkar íþrótt- ir, heldur hefur hann enn einu sinni sýnt og sannað hversu mikilhæfur íþrótta- maður hann er. Olympíuverðlaun hans, orðstír hans sem þrí- stökkvara og nú síðast þetta heimsmet hans sann- ar og staðfestir, að Vil- hjálmur býr yfir þeim stökkkrafti og einbeitni, sem aðeins afreksmönnum er gefið. Afrekið vann Vilhjálmur í gærkvöldi í Í.R.-húsinu við Túngötu á innanfélagsmóti f.R. Viðstaddir voru Jóhannes Sölvason fðrmaður FRÍ og Örn Eiðsson, sem báðir eru fullgild- ir dómarar, Ólafur Unnsteins- son íþróttakennari og þeir stökkvararnir Jón Ólafsson og karl Hólm. Fyrst var keppt í langstökki án atrennu og tóku þeir Jón og Vilhjálmur þátt í þvi. Vil- hjálmur stökk 3.22, sem er 11 Framh. á 2. síðu

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.