Vísir - 08.12.1961, Síða 1
51. árg. Föstudagur 8. desember 1961. — 252. tbl.
illjón kr.
á mánudag.
Á mánudaginn kemur
verður dregið í Happdrætti
Háskólans um stærsta
happdrættisvinning, sem
nokkurn tíma hefur verið
dregið um hér á landi. Gr
það fyrsti milljón króna
vinningurinn hér á Iandi.
Þessi eini vinningur er jafn
hár og allir vinningarnir
samanlagt i Happdrætti
Háskólans á fyrsta starfs-
ári þess 1934.
Breytt með lögum.
Vísir átti í morgun stutt við-
tal við Pál H. Pálsson fram-
kvæmdastjóra Háskólahapp-
drættisins. Hann skýrði frá því
að hæsti vinningurinn í Happ-
drætti Háskólans hefði fram til
þessa verið V2 milljón króna,
en um síðustu áramót fékkst
þessu breytt með lögum og hef-
ur nú verið leyfður ’fyrsti
milljón krónu vinningurinn,
Samtals 8 milljónir.
Venjulega er dregið í Happ-
drætti Háskólans þann 10.
hvers mánaðar, en þar sem 10.
desemer ber upp á sunnudag
verður dregið á mánudaginn
þann 11.. Verður þá dregið um
3150 vinninga samtals að upp-
hæð um 8 milljónir króna.
Mjög lítið er afgangs af mið-
um í Happdrættinu, því að sala
hefur verið um 95%. Þó það sé
alldýrt að byrja í 12 flokki er
töluvert um að fólk vilji kaupa
miða í honum einum, því að
vinningar eru mestir þá.
ÞETTA er Soffía frænka,
ag sýna telpunum fallega
brúðu en hin vinsæla frænka
úr Kardimommubænum, er
nú við afgreiðslustörf í leik-
fangadeildinni hjá Liverpool.
Hún sagði telpunum Anitu
Fríðu og Sigríði Grétu, að
brúðan hefði það m. a. til
síns ágætis, að hana má baða,
og þvo hárið og leggja, svo
nokkuð sé nefnt.
Mikið var um hryðjuverk
eða tilraunir til hryðjuverka
um helgina í ýmsum bæjum
Frakklands. í bæ nálægt
landamærum Belgíu voru
4 Múhammeðstrúarmenn
drepnir og 1 særðist, en í
öðrum bæjum særðust marg-
ir menn.
Stórfelldar framkvæmdir
Revkjavíkur á næsta ári.
Útsvör verÖa óbreytt 1962, framlag til
íbúÖarbygginga hækkar um 100%, fram-
lag til gatnagerðar um 25%, gerÖar miklar
framkvæmdaáætlanir fram í tímann.
★ Áætlað er að gjöld borgarsjóðs á þessu ári
verði 1.8 millj. krónur undir fjárhagsáætlun en tekjur
6.4 millj. yfir áætlun. Sagði Geir Hallgrímsson borgar-
stjóri á borgarstjórnarfundi í gær að gera mætti ráð
fyrír að greiðslujöfnuður borgarsjóðs á þessu árí mundi
verða hagstæður.
•jfr Þegar borgarstjórinn
ræddi fjárhagsáætlun fyrir
næsta ár sagði hann að kaup-
gjaldsliðir áætlunarinnar
myndu hækka að meðaltali um
16.5% vegna kauphækkananna
en aðrir liðir um 10%. Er reikn-
að með að gjöldin muni nema
268.583.000.00 kr. en tekjur
336.068.000.00 kr.
Láta Bretar sprengjur
til nota í Katanga?
Brezka stjórnin hefur til
íhugunar beiðni um sprengjur
handa gæzluliði Sameinuðu
þjóðanna í Katanga. Eru Bretar
settir í vanda með þessari
beiðni, þar sem yfirlýst stefna
þeirra er, að gæzluliðið komi á
lögum og reglu, en heyi ekki
styrjöld.
Meðal flugvéla þeirra, sem
gæzluliðið ræður yfir, eru ind-
verskar Canberra-sprengjuflug-
vélar, en þær eru brezk fram-
leiðsla. Nú munu birgðir á þrot-
um, enda verið gerðar sprengju-
árásir á flugvelli, olíustöðvar og
brýr á valdi Katangaliðs.
Framh. á 6. síðu.
^ Útsvör verða ekki hærri
á sömu tekjur en í fyrra. En
heildarupphæð útsvara mun
væntanlega hækka vegna fólks-
fjölgunar, aukinna tekna ein-
staklinga og félaga o. s. frv.
^ Þau munu eins og áður
standa að mestu leyti undir
margvíslegum framkvæmdum
borgarstjórnarinnar, á sviði fé-
lagsmála, húsnæðismála, gatna-
gerðar, holræsagerðar o. s. frv.
Verða útgjöld til gatnagerðar
aukin um 25% en framlag til
íbúðabygginga hækkar væntan-
lega um 100%. Lagðar verða
11 milljónir króna til Borgar-
sjúkrahússins, byggðar 25
skólastofur, hækkaðir styrkir
til ýmissa menningarfyrirtækja,
t. d. Barnavinafélagsins Sumar-
gjafar, Leikfélags Reykjavík-
ur, verkamannahúss o. fl.
^ Hitaveita verður lögð í
öll hús bæjarins samkvæmt
skipulagi á næstu 4 árum, og
lokið verður við að malbika all-
ar götur borgarinnar á næstu
10 árum.
<>
Þegar borgarstjóri ræddi um
fjáröflunarleiðir til gatnagerð-
ar sagði hann tvær leiðir eink-
um koma til greina. í fyrsta lagi
kæmi til greina hlutdeild hús-
eigenda í kostnaði við fullnaðar-
Geir Hallgrímsson.
frágang gatna og í öðru lagi
hlutdeild sveitarfélaga í benz-
ínskatti.
í sambandi við fyrra atriði
sagði borgarstjóri að hlutdeild-
in y.rði aldrei meiri en svo að
hver húseigandi ætti að geta
staðið undir slíkum greiðslum.
Heildarupphæðin yrði ekki há
og yrði greidd á nokkrum ár-
um með jöfnum afborgunum.
Borgarstjóri kvað benzínskatt-
inn ekki koma til greina, nema
menn vildu hækka hann. En ef
benzínlítrinn hækkaði um 50
aura og þungaskattur samsvar-
andi fengi Rykjavíkurborg um
FramVi. á 3. síðu.