Vísir - 08.12.1961, Side 6
6
V í S I R
Föstudagur 8. desember 1961
UTGEFANDI. BIAÐAÚTGAFAN V/ISIR
Ritstjórar: Hersteinn Pólsson Gunnor G Schram
Aðstoðarritstjóri Axel Thorsteinsson Frettastjór
ar: Sverrir Pórðarson Þorsteinn ó Thorarensen
Ritstjórnarskritstofur. Laugavegi 27 Augiýsingar
og afgreiðsla: Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjold er
krónur 45,00 o mónuði - 1 lausasÖlu krónur
3,00 eintakið Slmi I 1660 ,5 linur). — Félags
prentsmiðjon h.t Steindórsprent h.t. Eddo h.t
Framfarir án hækkana.
Það er mikilsvirði að höfuðstað landsins sé stjórnað
af röggsemi og framfarahug, en þó ýtrustu sparsemi og
hagsýni gætt í bæjarrekstrinum. Þetta tvennt fer ekki
alltaf saman sem kunnugt er, í daglegu lífi, en víst
munu Reykvíkingar vera á einu máli um að óvenju vel
hafi tekizt að sameina þetta tvennt í stjórn Reykjavíkur.
Bæjarbúar hafa átt því láni að fagna að síðustu ára-
tugina hafa stjórnsamir atorkumenn farið með starf
borgarstjóra og bærinn hefir dafnað og vaxið sem
aldrei fyrr. Munu þær upplýsingar Geirs Hallgrímsson-
ar að aðeins hafi verið fjölgað bæjarstarfsmönnum um
2 síðustu fjögur árin þótt bæjarbúum hafi á sama tíma
fjölgað um 7.000, vekja verðskuldaða athygli.
Á bæjarstjórnarfundi í gær flutti borgarstjóri
ýtarlega ræðu um fjárhag bæjarins og framkvæmdir
sem fyrirhugaðar eru á næsta ári. Þegar litið er yfir
framkvæmdaáætlunina má sjá að þar er um öra fram-
þróun að ræða á flestum sviðum bæjarrekstursins.
Mörgum þeim málum, sem bæjarbúum er hvað mest
í mun að ötullega sé að unnið, verður mjög hraðað á
næstu árum. Þannig mun hitaveita verða komin í hvert
hús borgarinnar á næstu 4 árum og er það ærið afrek
út af fyrir sig. Og ekki er gatnagerð bæjarbúum síður
mikið hagsmunamál. Nú er ráðgert að allar götur sem
eru á skipulagi bæjarins verði fullgerðar á næstu 10
árum. Til þess þarf geysi mikið átak, því bærinn vex
óðfluga.
Þá er og í ráði að fjölga byggingum skólastofa, og
verða nú byggðar 25 á ári hverju. Ibúðarbyggingar eru
ekki síður hagsmunamál yngri kynslóðarinnar í bæn-
um og til þeirra mun bærinn veita aukið fé og aukinn
styrk, og munu allt að 40 millj. krónur verða veittar til
bygginga á næsta ári.
En krefjast þessar miklu íramkvæmdir ekki auk
inna útgjalda? Jú, en útsvör bæjarbúa næsta ár munu
þó ekki verða hærri en á þessu ári. Aftur á mót mun
rekstur bæjarins endurskoðaður með það í huga að
ýtrustu hagsýslu verði þar við komið Af þessu má sjá
að hér er unnið af ráðdeild, og með fjárhagsafkomu
hvers einstaks bæjarbúa í huga.
Mikilvæg barátta.
Lengi hafa fréttir frá Sameinuðu þjóðunum ekki
vakið eins mikla athygli hér á landi sem þessa dagana.
Það er ekki ofmælt þótt sagt sé að í Katanga berjist
Sameinuðu þjóðirnar fyrir lífi sínu. I Kongó hafa þær
í fyrsta sinn gerzt virkur baráttuaðili til styrktar friði
í heiminum.
Þær hafa notið nokkurs stuðnings, en því miður
hafa sterk öfl unnið gegn þeim í Kongómálinu. Það
hlýtur að vera von okkar Islendinga, sem annarra þjóða,
að Sameinuðu þjóðirnar beri hér góðan sigur af hólmi,
en friðarspillar verði fljótt yfirunnir.
ar nálgast Peking.
Vísir hefur áreiðanlegar
fregnir af því að helztu
háskólum í Sovétríkjunum
hafi verið boðið að senda
fulltrúa til að vera við
staddir 50 ára afmælis-
hátíð Háskóla Islands í
haust. En Rússarnir sendu
engan fulltrúa og heldur
ekki sendu þeir neinar
gjafir til Háskólans.
Nú er það auðvitað svo að
alls ekki var hægt að ætlast
beinlínis til þess að Rússar
sendu fulltrúa eða gjafir, en þó
vekur það undrun vegna þess,
að þeir hafa á undanförnum
árum gert sér mjög títt um Há-
skólann og íslenzkt menning-
arlíf. Þeir hafa oft áður fært
íslenzkum menntastofnunum
gjafir og haldið íslenzkar bók-
menntakvöldvökur í Moskvu.
En nú virðist einhver tregða
komin í hinn íslenzka menn-
ingaráhuga þeirra.
Háskólinn mun tímanlega
áður en Háskólahátíðin var
haldin hafa boðið þremur merk-
ustu háskólum Sovétríkjanna, í
Leningrad, Moskvu og Kænu-
garði að senda gesti til hátíðar-
innar. En þeir afsökuðu sig all-
ir og sendu engan fulltrúa.
Dregur
úr starfi MÍR.
Það hefur jafnframt vakið
nokkra eftirtekt að í vetur
virðist og muni stórfækka þeim
rússnesku listamönnum, sem
koma hingað til lands á vegum
MÍR. Er af sem áður var, þegar
aldrei var flóafriður fyrir alls-
kyns söngvurum og ballett-
meisturum austan úr Bolsjoj
og Grúsíu.
Hafa menn verið að velta því
fyrir sér hvers vegna Rússar
hafi nú allt í einu misst áhug-
ann á menningartengslum við
fsland.
Kínversk list
í Snorrasal.
En fyrir nokkrum dögum
gerðist atburður í menningar-
höll kommúnista sem er e. t. v.
svarið við þessu. Kristinn
Andrésson formaður Máls og
menningar opnaði nýlega sýn-
ingarsal í húsi félagsins við
Laugaveg, sem kallaður er því
virðulega heiti: — Snorrasalur.
En með hverju er þessi salur
vígður? Hann er vígður með
kínverskri listsýningu.
Hér ber því margt að sama
brunni. Bandaríska vikuritið
Time sagði nýlega frá því að
íslenzku kommúnistarnir á
flokksþinginu í Moskvu hafi
stutt Albani. Það virðist því
engum blöðum um það að
fletta, að Kristinn Andrésson
og fleiri forsprakkar kommún-
ista hér á landi halda enn fast
við Stalin-dýrkunina og leita nú
miklu fremur tengsla við Pek-
ing en Moskvu.
Voru þrjá §ólar-
hringa á leiðinni.
Færð enn slæm sunnanlands.
Bílalest, sem fó_- frá Akurevri
S.l. þriðjudagsmorgun áleiðis
til Reykjavíkur kom hingað í
morgun eftir erfiða og harðsótta
ferð.
Vegagerðartæki voru send
frá Akureyri bílalestinni til
aðstoðar vestur í Skagafjörð og
tók sú ferð hátt upp í sólarhring.
Komust bílarnir um hálf sex-
leytið á miðvikudagsmorgun í
Varmahlíð. Eftir nokkra hvíld
var haldið áfram á miðvikudag-
inn til Blönduóss og gist þar.
En í gærmorgun lagt af stað
þaðan og á 7. tímanum í gær-
kvöldi komu bílarnir suður að
Fornahvammi, en um klukkan
5.30 í morgun hingað til
Reykjavíkur.
í Eyjafirði er enn þungfært,
en þó komast mjólkurbilar leið-
ar sinnnr. Litlir bílar hreyfa sig
hinsvegar ekki nema aðeins
um götur Akureyrar. Þær hafa
verið ruddar undanfarna daga
og umferð um þær orðin sæmi-
lega greið Ekki bætzt neitt við
snjóinn þar síðustu dagana og
veður verið gotl, en kalt. í
morgun var 7 stiga frost þar, í
fyrrinótt 10 stig og nóttina þar
áður 14 stig.
Hér syðra hefur skafið tals-
vert bæði í gær og í morgun og
færð þyngst sumstaðar af þeim
sökum, en mjólkurbílar og
aðrir stórir bílar samt komizt
leiðar sinnar. En 'bæði Hellis-
heiði og 'Krýsuvíkurleið munu
hafa verið þungfærar fyrir litla
bíla í morgun. Gert var ráð
fyrir að báðar leiðirnar myndu
verða ruddar í dag.
í Kollafirði hefur skafið tals-
vert í gær og í morgun og næsta
örðugt um vik að rvðja leiðina
vegna þess að það skefur jafn-
harðan í brautina.
Þá hefir færð þyngzt til
muna í Borgarfirði, einkum á
leiðinni frá Gljúfrá og upp að
Fornahvammi. Á þeirri leið er
komin þyngslafærð, en vega-
gerðin er með tæki á veginum
til að ryðja af honum snjónum
eftir því sem tök eru til.
I Katanga
Framh. af 1. síðu.
Flutningur liðs og birgða til
stöðva Sþ. í Katanga frá Leo-
poldville í bandarískum flugvél-
um er aftur hafinn.
Þeir stöðvuðust í gær, eftir
að skotið var á bandaríska
flutningaflugvél og hún löskuð,
er hún ætlaði að lenda, og varð
hún að hverfa aftur til Leopold-
ville.
Tsjombe er nú kominn inn
í Katanga, ferðast laindleiðis
frá Ndola í Angola. Hann fór
flugleiðis frá París til Brazza-
ville og þaðan til Ndola.
Home utanríkisráðherra Bret-
lands sagði í gær á þingi, að Sir
Roy Welensk hefði hvatt
Tsjombe til að komast heim og
reyna að finna leiðir til friðsam-
legrar lausnar á vandamálun-
um.