Vísir


Vísir - 11.01.1962, Qupperneq 8

Vísir - 11.01.1962, Qupperneq 8
8 V 1 S I R •í'immtudagur 11. janúar 1962 ÚTGEFANDI: BLAÐAÚTGÁFAN VÍSIR Ritstjórar: Hersteinn Pólsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjór- ar: Sverrir Þórðarson, Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur: Laugavegi 27. Auglýsingar og afgreiðsla: Ingólfsstrœti 3. Áskriftargjald er krónur 45,00 á mónuði. í lausasölu krónur 3,00 eintakið. Sími 1 1660 (5 línur). •— Félags- prentsmiðjan h.f. Steindórsprent h.f. Edda h.f. Efling rannsókna. Smám saman er að aukast skilningur á því að undirstaða sannra framfara eru fullkomnar rannsóknir og grundvallar fræðistörf. Fátækt þjóðarinnar hefir fram til þessa að mestu komið í veg fyrir að unnt væri að vinna hér undirstöðurannsóknir nema í mjög litlum og ófullnægjandi mæli. Það er fyrst eftir styrjöldina, sem hvort tveggja hefir skeð: viðurkenning manna hér á landi á nauðsyn rannsókna og að sæmileg efni hafa fengizt til þeirra. Fiskirannsóknirnar eru dæmi um það hve hagnýtt gildi rannsóknarstarfsemin getur haft. Rannsóknir í landbúnaði og iðnaði sanna árlega gildi sitt. Ot frá hinu fjárhagslega sjónarmiði er því fé tvímælalaust vel eytt, sem til slíkra rannsókna í þágu atvinnuveganna fer. Það kemur aftur í gulldölum sem eytt var í kopar. Nú verðum við að beina rannsóknum okkar æ meir að iðnaðinum og hinni miklu framtíð sem hans bíður. En það eru ekki aðeins hinar hagnýtu rannsóknir í þágu atvinnuveganna, sem verður að efla. Húmanist- isk fræði ættu ekki að sitja svo mjög á hakanum sém þau hafa gert til þessa. Enn er Háskólinn ekki orðinn sú rannsóknarstofnun á því sviði, sem stjórnendur hans og aðrir myndu óska. Stofnun íslenzkra fræða er enn órisin, rannsóknardeild í hagfræðum og lögfræði væri æskilegt að stofnuð yrði sem fyrst. Það er kominn tími til að kveða niður þá bábilju að þær rannsóknir, sem ekki gefa samstundis arð séu fánýtt grúsk. Síldin og kommúnistar. Þjóðviljinn er stundum á hrakhólum með efni og þá grípur hann til þess fangaráðs að semja furðusögur úr viðskipta- og stjórnmálalífinu, sem eiga sér engan stað utan ritstjórnarskrifstofanna á Skólavörðustígnum. Herstöðvar Þjóðverja voru gott dæmi um slíka dálka- fyllingu og í gær birtist önnur: að ríkisstjórnin hefði lokað mörkuðunum fyrir síld austan tjalds af mann- vonzku sinni. Kannski trúa einhverjir Þórsgötumenn sögunni, en þeir verða fáir aðrir. Sölumiðstöðin er nýbúin að skýra frá því opinberlega að mjög hafi verið reynt að selja síld austur af hálfu Islendinga. En það voru Rússar, sem neituðu nýlega að eiga frekari viðræður og báðu um frest. Og Tékkar og Austur-Þjóðverjar eru komnir í skuld á vöruskiptareikningi sínum hér á landi svo erfitt reynist um sölu þangað. Ástæðan er auðvitað sú, að íslenzka þjóðin vill heldur kaupa fyrsta flokks vöru frá Vestur-Evrópu ef hún er fáanleg, en þriðja flokks frá kommúnista- ríkjunum. Það skilja allir nema kommúnistar. Svið í Night of the Iguana. Frá vinstri: Margaret Leighton (Hannah), Bette Davis (Ekkjan Faulk) og Patrick O’Neal (Shannon) í hengirúminu. Tennessee Williams réttir hlut sinn. anGifimjíBaiemóh Bandaríska leikrita- skáldið Tennessee Will- iams sendi nýlega frá sér nýtt leikrit, sem nú er byrjað að sýna á Broadway með leikur- unum Bette Davis, Margret Leighton og Patrick O’Neil í aðal- hlutverkunum. gvalirnar á Costa Verde hó- telinu eru auðar, en bað- aðar í hita. Þær eru eins og fleki á hinu græna hafi mexi- kanska frumskógarins. Eitt af öðru safnast saman fjögur úr hópi útskúfaðra. Maxine Faulk, er nýlega orðin ekkja, eigandi hótelsins, skapmikil nautnalífskona, sem sér sál sína í líki síns fáklædda lík- ama. T. Lawrence Shannon, er ofdrykkjumaður, prédik- ari, sviptur kjól og kalli, sem smalar kvenferðalöngum út af leiðum ferðamannabækl- inga, en er sjálfur kvalinn af botnlausri sektartilfinningu. Hannah Jelkes, er piparmey frá Nantucket, nærri 40 ára gömul, sem málar andlits- myndir til að eyða tímanum í hættulega far”altri tilveru, Nanno, auglýstur, sem elzta lifandi og starfandi skáldið, skemmtir með lióðaupplestri og ber sig borginmannlega, þegar hann glímir við hrörn- andi minni sitt til að slá botn- inn í nýtt kvæði. það sem verður um þessar persónur í Iguana er ekki eins þýðingarmikið og það, sem hefur gerzt í fortíð þeirra. Þau verða að berjast við sigraða drauma en ekki framtíðarvonir. Leikritið er brotakennt, en efnið heillegt. Það er um efni, sem Tenn- essee Williams hefur lengi haft í huga, misboðið hjarta — misboðið með kúgun, sulti, grimmd, einangrun. Tilfinningin fyrir einmana- leikanum og þrá mannsins eftir mannlegum samskiptum er efst á baugi í þessu leik- riti. Með þessu leikriti hefur Williams rétt hlut sinn gagn- vart leikhúsgestum, eftir hið innantóma Sweet Bird of Youth, endurreist þann Tennessee Williams. sem kann að ska-i. li^g í andn máli, persónu og hugmynd- um, sem eru jafn sjálfsagður og jörð, loft, eldur og vatn. Kannske er þetta viturleg- asta leikrit, sem hann hefur samið. Jguana í heiti leiksins er risaeðla, fjötruð undir svölunum, klórandi eftir frelsi — rétt eins og Shann- on, hinn afsetti er reyrður við hengirúm í taugaáfalli. Shannon og Hannah drottna í leiknum. Stríðandi í fjötr- um líkama og sálar tekst þeim að brjótast til nánari skilnings, hvort á öðru. Hann segir frá því hvernig hann var útilokaður úr kirkju sinni fyrir „hórdóm og trú- villu — í sömu vikunni“. Hefnd hans: Saurlifnaður með unglingsstúlkum, meðal þeirra einni, sem fer klór- andi að dyrum hans, í van- virðulegri angist. Hannah segir honum frá viðkvæmum augnablikssnertingum við ástina. Hrærður við tilhugs- unina um gagnkvæmar þrár spyr Shannon, hvort þau geti ekki reynt sig við lífið í sam- einingu. Hannah leysir Shannon sem hverfur í faðm ekkjunnar Faulk. Boðskap- urinn er sá, að mannlegt eðli sé óumbrevtanlegt, að í ást- ir-n' <=or-i ngru. sækjast sár um líkir.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.