Tölvumál - 01.04.1986, Side 13

Tölvumál - 01.04.1986, Side 13
GREIN FYRIR SVERRI HERMANNSSON Þessi stutta grein er rituð í þeirri von að mennta- málaráðherra, Sverrir Hermannsson, lesi hana. í henni felst áskorun til hans um að menntamála- ráðuneytið beiti sér fyrir því að tölvutæknin verði íslenskuó fyrir skðlakerfi landsins. Ráðuneytið sjái til þess að við tölvukennslu I grunnskólum og framhaldsskðlum verði notuð Islensk stjórnkerfi á tölvunum. Einnig Islensk forritunarmál. Ef innflytj- endur hugbunaðar láta ekki þýða kerfi sln á íslensku fái ráðuneytið sérfræðinga til að utbúa innlend kerfi og geri kröfur um að einungis verði keyptar tölvur, sem geta notað þau. RÁÐHERRA TSKNI- OG MENNTAMÁLA. Sverrir Hermannsson, menntamálaráðherra, hefur gððar forsendur til að átta sig á mikilvægi þessa máls. Hann var iðnaðarráðherra I rúmlega tvö ár, áður en hann tók við núverandi embætti. Mál á mörkum tækni og menningar eru honum þvl væntanlega hugleikin. Þá er áhugi Sverris á íslensku máli vel þekktur. Afstaða hans til ritmálsins fór ekki leynt I umræðum á Alþingi um stafsetningu Islenskunnar. Enda var eitt fyrsta verk hans sem menntamálaráðherra að efna til ráðstefnu um varðveislu tungunnar. Eftirfarandi grein er rituð I þeirri von að andstæðingar ráðherrans, sem sumir hverjir halda þvl fram að honum láti betur að ræða um áform sln en hrinda þeim I framkvæmd, tali ekki af reynslu. TÖLVUNÁM Á ERLENDRI TUNGU Nám I tölvunotkun hefur breiðst mjög út I skólakerfinu á undanförnum árum. Sífellt yngri nemendur læra aó nota tölvur. Þó að skoðanir manna séu skiptar um hversu ung börn muni hefja nám á tölvur er ljðst að tölvukennsla verður grunnskðlafag innan tlðar. Nemendur, sem ekki hafa náð tökum á undirstöðuatrióum I erlendum málum, munu þá sitja við tölvuskjái, lesa at þeim skilaboó og rita skipanir til tölvanna á lykilborð þeirra. 13

x

Tölvumál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.