Tölvumál - 01.04.1986, Blaðsíða 14

Tölvumál - 01.04.1986, Blaðsíða 14
Undanfarin ár hefur verið lögð mikil áhersla á að þýða erlend tækniorð tölvumanna á íslensku. Mikið hefur áunnist í þeim efnum. Ef til vill eru nu tímamót I þeim efnum eins og Jöhann Gunnarsson vekur athygli á I þessu blaði. Þess má glögglega sjá merki á málfari blaða og tlmaritsgreina um tölvumál að Islenskan vinnur sífellt á. Engu að slður vita þeir, sem starfa við tölvur, að tæknimenn tala margir sln á milli hrognamál, sem er oft torskilið venjulegu folki. Ástæðan er vafalaust sú að samskipti þeirra og tölvanna fara ekki fram á okkar mððurmáli. Fyrirskipanir til tölvanna eru oftast á ensku. Sama máli gegnir um skilaboð frá tölvunni til þess er notar hana. Einnig fer öll forritun fram á erlendu tungumáli. Tölvan skilur setninguna "GO TO X" en setningin "FAR TIL X" finnst ekki I hugskoti hennar. Þegar haft er I huga hvaða áhrif það hefur á málfar fullorðinna manna að "ræða við" tölvur á erlendu máli, er ekki erfitt að Imynda sér hvað gerast muni þegar börn innan við fermingu eiga I hlut. Ef nemendur þurfa að eiga samskipti á erlendu máli við tölvur, sem þeir eru að læra að nota I grunnskóla, mun það vissulega hafa áhrif á orðaforða þeirra og málnotkun. Til þess að fella tölvutækninga að Islensku máli og gera hana eðlilegan þátt úr menningu okkar er nauðsynlegt að börn, sem eru að kynnast tölvum I fyrsta sinn geti skipt við þær á mððurmáli okkar. Þau eiga að geta ritað fyrirskipanir til tölvunnar á íslensku og einnig lesið skilaboð hennar af skjá eða blaði. ÍSLENSK STJÖRNKERFI - EKKI ANNAÐ Lausn þessa máls er einföld. Þegar keyptar eru tölvur til skólakerfisins á menntamálaráðuneytið að gera þær kröfur að allar skipanir I stjórnkerfum tölvanna séu á íslensku og að forrita megi þær með Islenskum útgáfum af viðurkenndum forritunarmálum. Tölvur sem ekki uppfylli þessar kröfur komi ekki til greina að kaupa. 14

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.