Tölvumál - 01.04.1986, Page 17
Reyndar fullyrði ég að hann sé opnari fyrir hinum
íslenska.
Allt fram undir þennan dag hefur fátt verið um
tölvuforrit, þar sem boð og önnur samskipti við
stjornanda vélarinnar væru a íslensku. Á dögum
runuvinnslunnar var þetta eðlilegt, enda tiltölulega
fábreytileg tjáskipti iðkuð. Fjölgun smárra tölva og
gagnvirk vinnsla, sem þeim fylgir, breytir hinsvegar
þessu ástandi. Forrit af Islenskum uppruna eru að
sjálfsögðu jafnan með íslenskum skjámyndum og leið-
beiningum (oft eru leiðbeiningar reyndar af skornum
skammti,en það er önnur saga). Erlendir forrita-
pakkar og stýrikerfi voru löngum látin óþýdd, þótt
vinsæl hafi orðið.
Ef til vill er Skrif, ritvinnsluforrit Reiknistofn-
unar Háskólans eitt fyrsta forritið af erlendum
uppruna, sem fær íslenska umgerð og leiðbeininga-
bækling. Sxðar komu svo forrit fyrir einkatölvur,
svo sem Ritvinnsla II frá Atlantis og Hugriti/Hugsýn
frá Hugbönaði. Fleiri stök dærai mætti tína til. Mér
finnst hins vegar að nu megi til tlðinda telja það
stórátak sem IBM er að gera I þýðingu forrita, bæði
fyrir einkatölvur og System/36. Það frumkvæði leiðir
svo aftur af sér handbækur og kennslubækur á
móðurmálinu, sem framtakssamir einstaklingar eru
þegar farnir að senda frá sér.
Málfar sérfræðinga mðtast jafnan af því umhverfi, sem
þeir sækja þekkingu sína I. Verður það að teljast
eðlilegt, þótt almenningi þyki afkáralegt á að hlýða
(Dæmi: ljóð Jðns Ingvars Jðnssonar í feb. hefti
Tölvumála). Frá upphafi hefur gætt rlkrar viðleitni
til að finna íslensk orð yfir hugtök gagnavinnslu-
málsins, og er rétt að leggja áherslu á frumkvæði
Skýrslutæknifélagsins I því efni. Margir bregða
reyndar helst fyrir sig tölvuíslensku I formlegu
máli, riti og ræðu. En eins og áður er sagt eru nú
að verða tlmamðt. Tölvur eru ekki lengur tæki
sérfræðinga, heldur almenningseign. Eins og áður
hefur gerst við tæknibyItingar í þessu landi sættir
fólk sig ekki við annað en frambærilegan íslenskan
orðaforða um tölvumálið. Hið nýja orðasafn Skýrslu-
tæknifélagsins, sem væntanlegt er síðar á þessu ári
og su vinna, sem £ það hefur verið lögð, er enn einn
17