Tölvumál - 01.09.1986, Blaðsíða 5

Tölvumál - 01.09.1986, Blaðsíða 5
félagsfundurinn verður haldinn siðar i þessum mánuði, eins og fram kemur á félagsmálasíðunum hér í blaðinu. Þar sem enn hefur ekki verið gengið endanlega frá starfsáætlun vetrarins og eftir er að ræða við ýmsa af þeim aðilum, sem leitað verður samstarfs við er ekki tímabært að fjalla frekar um starf vetrarins að þessu sinni. Það verður gert í októberblaðinu. TÖLVUMÁL hafa að sjálfsögðu mikilvægu hlutverki að gegna í þessu starfi. Eins og í fyrra mun blaðið koma út reglulega 10. - 15. hvers mánaðar fram í maí á næsta ári. Þetta blað er reyndar aðeins síðar á ferðinni þvi starfið hófst ekki fyrr en 1. september. Enn sem fyrr stendur blaðið öllum félögum tölvumanna opið. Við birtum fundarboð og tilkynningar þeirra, ef þær eru sendar til TÖLVUMÁLA. Tilkynningar þurfa að berast okkur i siðasta lagi fyrsta mánudag i þeim mánuði sem þær eiga að birtast. Ritnefnd TÖLVUMÁLA sendir lesendum bestu kveðjur og óskar eftir góðri samvinnu i vetur. Ritnefnd TÖLVUMÁLA Stefán Ingólfsson 5

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.