Tölvumál - 01.09.1986, Blaðsíða 19

Tölvumál - 01.09.1986, Blaðsíða 19
Umræða um tölvur, tölvutækni og upplýsingar hefur verið afar einhliða. Hún hefur einskorðast við lofsöng uin hina nýju tækni og þá ótæmandi möguleika, sem menn telja blasa við okkur á þessu sviði. Það er löngu timabært að breyta umræðunni og horfast i augu við raunveruleikann. Ástæða er til að ætla, að fjárfesting okkar i tölvum hafi ekki skilað meiri árangri en gerst hefur í Bandarikjunum og hér hefur verið lýst. Á síðustu misserum orðið gjaldþrota. sæmilega tölvuvædd hafa lent i hinum hafa mörg fyrirtæki hér á landi Flest þeirra hafa þó verið á okkar mælikvarða. Mörg önnur mestu erfiðleikum með að laga rekstur sinn að breyttum efnahagsforsendum. Hröð og góð uppiysingamiðlun, stuttar boðleiðir og sveigjanleg stjórnun eru kostir tölvutækninngar eins og fyrr segir. Þeir hefðu átt að auðvelda fyrirtækjunum þá aðlögun, sem var nauðsynleg, þegar rekstrarforsendur breyttust. Einhver misbrestur hefur þó orðið á því. Allur dyrðaróður um dásemdir tölvutækninnar hefur því falskan tón, þar til menn hafa lært að nota hana á réttan hátt. Tölvan er i raun oft einungis notuð eins og um nýmóðins leikfang sé að ræða, sem forráðamenn fyrirtækja stilla upp á skrifstofum sínum, meira til skrauts en gagns. -si. 19

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.