Tölvumál - 01.09.1986, Qupperneq 9
Frá NordDATA 86
Hin árlega NordDATA ráðstefna var að þessu sinni
haldin i Stokkhólmi dagana 16.-19. júní.
Þessi langstærsta tölvuráðstefna, sem haldin er á
Norðurlöndum ár hvert, hefur fyrir löngu unnið sér
þann sess i hugum manna að vera hápunktur umræðu um
tölvumál og upplýsingavinnslu i Skandinaviu.
Skyrslutæknifélgið gerðist aðili að samtökum Nordisk
DATAunion fyrir u.þ.b. 4 árum. Siðan hefur þeim
íslendingum sifellt farið fjölgandi, sem sækja Nord-
DATA.
Að þessu sinni voru tveir íslendingar meðal fyrir-
lesara á ráðstefnunni. Það voru þeir dr. Jörgen
Pind, deildarstjóri tölvudeildar Orðabókar Háskóla
íslands og dr. Jóhann P. Malmquist, prófessor i
tölvunarfræði við Háskólann.
Það hefur löngum þótt nokkur viðurkenning að fá að
flytja fyrirlestur á NordDATA. Umsóknir þar um eru
alltaf miklu fleiri en hægt er að veita viðtöku og
þvi eru þeir sem fjalla um áhugaverðustu efnin og
senda inn best unnu gögnin valdir úr.
Á ráðstefnunni sjálfri starfar dómnefnd, sem metur
fyrirlestrana sem haldnir eru og fjórir þeir bestu
eru verðlaunaðir.
Dr. Jörgen Pind var einn þeirra fjögurra, sem fengu
verðlaun fyrir sinn fyrirlestur. Hann bar
yfirskriftina "The Computer meets the Historical
Dictionary". Dómnefndin, sem var skipuð einum manni
frá hverju Norðurlandanna, byggði úrskurðinn á þvi að
fyrirlesturinn fjallaði um nytt og spennandi efni,
sem væri að nýta tölvutæknina sem verkfæri við
tungumálrannsóknir og gerð orðabókar. Einnig væri
hann sérlega vel fluttur og uppbygging mjög góð.
Eins og margir lesendur TÖLVUMÁLA muna, þá vann
íslendingur einnig til verðlauna á NordDATA 85, en
það var dr. Páll Jensson, forstöðumaður
Reiknistofnunar Hí. Það er þvi ástæða til þess að
hvetja íslendinga til að taka þátt i þessari
9