Vísir - 02.04.1962, Page 1
VISIR
Samii við lækna—nf
mæli: HíWARVAKI
Ljósmynd þessi, tekin úr lofti, sýnir aðstæður þar sem Drangajökull strandaði í Tálknafirðinum. Skipið er alveg
uppi í fjöru, en svo aðdjúpt er þama, að það losnaði á flóði f gær. Vatnajökull er við síðuna á hinu strandaða skipi.
Um helgina var gerður
samningur milli Læknafé-
lags Reykjavíkur og
Sjúkrasamlagsins um kjör
lækna, en um þau hefur
gilt 3ja mánaða bráða-
birgðasamkomulag, sem
rann út á laugardag.
Hinn nýi kjarasamningur er í
aðalatriðum mjög svipaður bráða-
birgðasamkomulaginu, sem gert
var um áramótin. Þó var bætt við
Í£ flestum greinum 3,5% gjaldi, er
rennur til námssjóðs lækna, sem
mun veita þeim styrk, er hyggjast
Ifara tii framhaldsnáms erlendis.
þeir sérfræðingar, sem stundað
hafa sérgrein sína einvörðungu,
hafa fengið nokkru hærri greiðslu
frá SK en hinir, sem lagt hafa
stund a almennar lækningar með
sérgrein sinni. Sá munur mun hald
ast áfram, en greiðslur frá sjúkl-
ingum hækka ekki.
Eftir er að semja um næturvakt
; lækna, en væntanlega semst fljót-
; lega um hana, og þangað til verð-
Framh. á 5. síðu.
JULLA FERÐ AFTURABAK"
06 DRAN6AJÖKULL LOSNADI
Vélskipið Drangajökull komst
á flot. á Tálknafirði síðdegis í
gær fyrir eigin vélarafli og
tókst þar vel og giftusamlega
til. Hafði um helming farmsins
verið uppskipað í Vatnajökul og
: •
með flóði kl. 5 síðdegis komst
skipið á fiot.
Til Reykjavíkur á morgun.
Ingólfur Möller skipstjóri
sagði £ sfmtali við Visi, að skip
ið virtist lítið sem ekkert
skemmt, enginn leki á þvf. Það
er þvi að þakka, sagði hann að
klappirnar eru vaxnar miklum
þang- og þaragróðri. Sagði Ing-
ólfur, að þeir byggjust við að
verða komnir til Reykjavíkur
eftir hádegi á morgun, þriðju-
dag, en þá verður Drangajökull
dreginn upp f slipp og skoðun
á botninum látin fara fram.
Drangajökull strandaði við inn
siglinguna inn á Hópið á Sveins
eyri við Tálknafjörð aðfaranótt
laugardagsins. Var skipið á tals
verðri ferð, þegar þetta gerðist,
en innsiglingin er erfið og þarf
að taka beygju í henni. Lenti
skipið uppi í fjöru á svonefndri
Hvammseyri. í fyrstu voru varð
skip beðin um að koma til að-
stoðar. Kom varðskipið Óðinn
á staðinn skömmu fyrir hádegi
á laugardag.
Umhleðsla ákveðin.
En þá var búið að taka á-
kvörðun um að reyna að koma
skipinu ;á flot án aðstoðar og
hvarf varðskipið því aftur á
burt. Drangajökull var með um
670 tonn af freðfiski. Um kl. 4
á sunnudagsmorgun kom Vatna
jökull á staðinn, en hann er
eign sömu útgerðar, Jökla hf.
Lagðist hann sfbyrt við Dranga
jökul, en nóg dýpi var öðru
megin við hið strandaða skip.
Var þegar f stað hafizt handa
um að umhlaða fiskinn og setja
hann um borð í Vatnajökul. Var
uniiið rösklega að því og er þvf
var hætt kl. 16.45 f gær var bú
ið að umhlaða um 350 tonn. Þá
voru þrfr stundarfjórðungar til
háflæðis og fyllti nú sjó undir
skipið.
Losnaði samstundis.
Á flóðinu var vélin í Dranga
jökli sett af stað fulla ferð aft-
urá bak og losnaði skipið þá
samstundis af grunni.
í morgun þegar Vísir átti tal
við skipstjórann lágu báðir
„Jöklarnir" á hópinu og átti að
umhlaða allan farminn. Síðan
siglir Vatnajökull með hann til
Murmask.
Frá fréttaritara Vísis.
Höfn í morgun.
Nú er inflúenzan
komin og er svo út-
breidd orðin, að veldur
vandræðum á mörgum
sviðum.
bóliuu
Hinsvegar ætlaði Drangajök-
ull síðar að sigla upp að
bryggju á Sveinseyri og taka
þar þau 75 tonn af freðfiski er
hann átti að taka þar hjá frysti
húsi kaupfélagsins. Verður sá
farmur í skipinu þegar það kem
ur suður .
Héraðslæknirinn telur, að
inflúenzan sé búin að leggja
um 300 manns í rúmið hér
og er það há tala, þegar at-
hugað er, að þorpsbúar eru
aðeins um 630. í morgun
komu til dæmis aðeins 24
nemendur af tæplega hundr-
að, sem mæta áttu í skólan-
um og var þá sýnt, að til-
gangslaust er að halda
kennslu áfram.
Veikindin baka einnig
Framhald á bls. 5.
HáHur bæriott í
ÞóróHur gegn teltíc — MynJsjá, Iþróttír