Vísir - 02.04.1962, Blaðsíða 15

Vísir - 02.04.1962, Blaðsíða 15
Mánudagurinn 2. apríl 1962. VfS IR CECIL SAINT-LAURENT & & KAROLIN (CAROLINE CHÉRIE) hafði hún neyðst til að taka að sér kennslustarf hjá frú de Pi- evré, sem aldrei hafði látið sér annt um hana, en komið fram við hana af þeirri tillitssemi, sem hún átti kröfu til vegna þess að hún var aðalsættar. Kennslukonan vissi mæta vel hvern hug markgreifafrúin bar í brjósti til hannar og taldi sig ekki standa í neinni þakkar- skuld við hana. Vissi kennslu- konan mæta vel, að þegar leiðir þeirra skildu mundi markgreifa- grúin ekki verða sein á sér að lýsa yfir þeirri skoðun sinni, að það væri uppspuni frá rótum, að hún væri aðalsættar. En báð- ar voru konurnar metnaðarrík- ar. Markgreifafrúin taldi þó heppilegt, að viðurkenna hinn eðla uppruna kennslukonunnar. Og kennslukonan vissi, að með því að upphefja virðuleik fjöl- skyldunnar, sem hún starfaði hjá, jók það álit annarra á henni sjálfri. Og þannig uxu börnin upp í skjóli þessara tveggja kvenna, sem komu fram af mik- illi virðingu hvor gagnvart hinni vegna þess, að þær voru aðals- ættar — og vegna þess, að lífs- kjör þeirra voru ekki á borð við kjör efnaðra borgara, fyrir- litu þær allt, sem ekki mátti til aðals rekja, enn innilegar en ella myndi. Uppeldisáhrifin frá þessum tveimur konum höfðu haft mest áhrif á Louise af börnunum. Hún var móttækilegri fyrir þau en hin. Var hún tveimur árum eldri en Henri og þremur árum eldri en Karolína. — Hugarfar Henri og Karólínu var um margt svipað — og þó um margt ólíkt. Henri mundi aldrei láta mark- greifatitil sinn hvað sem í boði væri, en hann taldi sér enga minnkun að því að leika sér með börnunum í þorpinu. Hann bjó yfir fjörugu ímyndunarafli og átti í því sammerkt með Karolínu systur sinni. Raunveru leikinn fékk á sig skáldlegan blæ í huga hans. Hann skóp sér konungsríki og tók sér konungs stöðu og konungs réttindi, og lét alla nákomna sér njóta hárra titla, en stofnaði í eigin hags- muna skyni annan aðal, þar sem synir — handiðnaðarmanna, skógarverðir pg ráðsmenn og smiðir voru hertogar og greifar. Lifði hann svo langa hríð í þess- um draumheimi, en fór svo að þreytast á honum, og hlakkaði loks mjög til að fá að fara til j Parisar og eiga þar heima, því að þar mundi hann verða kynfur Hreinsum allan fatnað Hreinsum vel \ Hreinsum fljótt Sækjum — Sendum Efnolaugin LENDl m. Hafnarstræti 18 Skúlagötu 51 Sími 18820. Sími 18825. v.v.v. I við hirðina og hitta fyrir jafn- ingja sína. Og honum þótti gott til framtíðarinnar að hugsa og þess heiðurs, sem/hann mundi verða aðnjótandi. Og nú sat fjölskyldan að mat- borði. Það voru ekki nema fáar klukkustundir liðnar frá því hún settist að í þessu húsi, og svo sem að líkum lætur var enginn sem gat fellt sig við — enn sem komið var — þetta einkenni lega hús, sem de Fondanges greifi hafði leigt handa þeim. Ekki var neitt hægt að setja út á legu hússins. Það var í nágrenni hallar de Broglie-ætt- arinnar «g næstum gegnt húsi Bourbon-Busset fjölskyldunnar. Froissy, sem átti húsið, var far- inn til sveitarseturs síns í Languedoc, til þess að taka við jarðeignum, sem hann hafði erft. Hafði hann fallist á að leigja markgreifanum húsið fyrir 4000 franka á ári, og var það í raun- inni fjárhag fjölskyldunnar of- viða að greiða þá leigu. Og þegar loks kom orð yfir varir markgreifans var það um þetta efni: — Mér virðist leigan allt of há. Málningin hefur flagnað af veggjunum. Húsið er mikillar viðgerðar þurfi. Á fyrstu og annari hæð hefur vart verið búið seinustu fimmtíu árin. Hér er saggi, — ég gæti bezt trúað — — Þú berð, held ég, lítið skyn á þetta, greip markgreifafrúin fram í fyrir honum. Salirnir á grunnhæðinni líta ágætlega út og það er aðalatriðið. Þótt að ýmsu megi finna hér á efri hæð- unum kemur það ekki að sök, því að við bjóðum ekki gestun- um hingað, — kynnist þeir að eins sölunum dæma þeir allt húsið eftir þeim. ' ■ Þar, næ^Uvar farið að ræða 'hversu sKipa skyldi í herbergi. Markgreifafrúin knúði í gegn, að þjónustufólkið — tvær mann- eskjur fengju heila hæð til um- ráða, því að þá hefði fjölskyldan hæð út af fyrir sig, og kom hún sér þvl fyrir á hinni, þótt þröngt væri fyrir hana. Stærsta og fallegasta herbergið skyldi vera setustofa, hið næststærsta svefn herbergi hjónanna, en tvö lítil og dimm herbergi sem vissu út að húsagarði voru ætluð kennslu konunni og börnunum, Henri annað, kennslukonunni og systr- unum hitt. — Skyldi það rætast, hugsaði Karólína, er hún hallaði höfði að svæflinum í lokrekkjunni þá um kvöldið, að ég eigi eftir að .■AV.WWAV.V.V.V.V.W. ferðast og ferðast, eins og hjart- að lystir? En brátt seig henni blundur á brá í hinu nýja og lítt vinsam- lega umhverfi. II. kapituli. Grímudansleikurinn. Mademoiselle de Tourville fór síðdegi hvert með börnin í dansskóla roskinna hjóna, sem nutu mikils álits. Þar kynntust þau börnum á sínu reki, m. a. dóttur de Fondanges greifa, er frá upphafi sýndi hún Karolínu vinahót og samúð. En þó var það svo, að þegar fyrsta daginn varð Karolína hrifnari af annari stúlku, Karlottu Berthier, sem var mjög andlitsfríð, augun stór og skær, tillit þeirra dálítið kank víslegt, en munnsvipurinn alvar legur. Kennslukonunni var ekki um það, að þær urðu vinstúlkur Karolína og Karlotta. Hún sagði við Karolínu, að það væri fyrir neðan virðingu hennar að stofna til vinskapar við stúlku borgara- legrar stéttar, og ungar aðals- stúlkur myndu líta niður á hana fyrir vikið. Louise fór að ráðum hennar, er hún valdi sér vin- stúlkur, en Karolína mátti ekki til þess hugsa, að slíta vinskapn- um við Karlottu og tók hana sér til fyrirmyndar. Karlotta end urgalt tilfinningar hennar og bauð henni til tedrykkju á heim- ili foreldra sinna. Og það var boðið í þessa te- drykkju, sem leiddi til fyrstu umgengnis-vandræða eftir kom- una til Parísar — og ekki hinna síðustu. Karlotta hafði beðið móður sína að fara sjálf og bjóða til tedrykkjunnar. Þegar svo frú Berthier dag nokkurn kom og sótti Karolínu, spurði hún de Tourville kennslukonu, hvort hún vildi koma með þeim Louise og Karolínu í dálítið boð næstkomandi miðvikudag, kom hrokinn upp í kennslukonunni, sem sagði við frú Berthier að það væri frekjuskapur af henni að bjóða ungum aðalsdætrum á heimili sitt, væri það einvörð- ungu vegna þess, að gamlir, hefðbundnir siðir væru ekki lengur í heiðri haldnir, að Kar- lotta hefði kynnst þeim. Slíkt og þvílíkt hefði verið alveg óhugs- andi fyrir 30 árum. Og um kvöldið sagði hún markgreifa- frúnni frá borðinu og hvað mót- tökur frú Berthier hefði fengið hjá sér. Hún bætti því við,, að Barnasagan Kalli kaftpinn ★ KALLI OG HAFSÍAIM Tommi kíkti út um glugg- ann til að ganga úr skugga um að prófessorinn væri ekki ð leiðinni til ká- etu sinnar á ný. Síðan fór hann að rannsaka tilraunastot- una vandlega. öll þessi furðu- legu verkfæri, sem ýmist suðu sða tikkuðu, komu hugmynda- flugi hans í gang. „En sniðugar v$ask‘uíaifsg£i Ænas sér' „þær standa áreiðanlega í sam bandi við hafsíuna, en gaman væri að vita...“ Svo kom hann auga á stóra skífu með vfsi, sem titraði til og frá. Drengur- inn klifraði upp til að vita hvers konar tæki það væri, en þá heyrði hann allt í einu fótatak á þilfarinu. Hann stökk niður til þess að sleppa burt, en hras aði og um leið greip hann ó- vart í handfang, sem augsýni- lega setti einhverja vél 1 gang, því að allt í eihu sat Tommi fastur á káetuólfinu og gat sig hvergi hreyft. _________________w ef hún gæti átt von á því, a6 slíkur frekjuskapur sem þessi bitnaði á sér á ný, væri bezt að hún hætti að fara með börnun- um á dansæfingarnar, og væri þá kannske rétt að fela Jeanne að gera það. De Biévre markgreifi, sem enn frekar en áður eftir að til Parisar kom lét allt afskipta- laust, lét sér nægja að hrista höf uðið, en markgreifafrúin ávítaði Karolínu fyrir tillitsleysi gagn- vart kennslukonunni, þar sem kunningsskapurinn við Karlottu hafði leitt til óþæginda fyrir hana. Bannaði hún svo Karolínu að hafa nokkuð saman við Kar- lottu að sælda og kvað hana líkjast „búðartelpum“. — Það er alls ekki satt, sagði Karolína, hún er ekkert lík búð- arstelpum, hún er alveg yndis- Fyrst þú þarft endilega að fá þér miðdagslúr, geturðu þá ekki lagzt þar sem svefnherbergið á að vera? Og f staðinn fyrir þetta, þá hjálp ar konan mér við að búa um. v^.+(afpór 0uÐMvmm /71 'ííæo ..<Su7ii 2597o tMNHEIMTA LÖOFRÆQI&TÖKP PÁLL S. PÁLSSON hæstaréttarlögmaður Bergsstaðastrætr 14 Sími 24200. EINAR SIGURÐSSON, hdl. Málflutningur . Fasteignasala Ingólfsstræti 4 . Sími 16767 MAGNÚS THORLACIUS Málaflutningsskrifstofa Aðalstræti 9 . Sími 1-1875

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.