Vísir - 02.04.1962, Page 3
Ménudagurinn 2. apríl 1962,
VISIR
3
Um helglna beindist athygli
manna mjög að undanúrslita-
leiknum í Glasgow þar sem
hinn 22 ára gamli KR-ingur og
Vesturbæingur Þórólfur Beck
kom mikið við sögu. Þórólfur
var valinn í St. Mirren Iiðið,
sem innherji og átti þátt £ öll-
um þrem mörkum liðs síns, sem
skoruð voru í fyrri hálfleik og
skoraði það síðasta sjálfur.
MYNDSJ
Þessar bráðgóðu myndir
voru teknar fyrir Vísi á Ibrox-
vellinum, er leikur þessi fór
fram á laugardaginn og komu
þær samdægurs til Reykjavík-
ur með Loftleiðavél. Sýna þær
allar Þórólf í Ieiknum, en yfir-
leitt kemur Þórólfur lltt við
sögu hjá ljósmyndurum, er
sjaldnast í skotfæri þar eð hann
liggur oftast aftur og „matar“
félaga sína sem liggja frammi.
!
..............................................................................
■
’
.
»181
. :
Þessi mynd var tekin á 34.
mínútu leiksins. Þórólfur
fékk sendan góðan bolta ut-
an af hægri kanti inn að
markteig Celtic og það var
ekki að sökum að spyrja, Þór-
ólfur skoraði viðstöðulaust
eins og myndin sýnir og ró-
aði þar með þúsundir aðdá-
enda St. Mirren, sem sungu
stríðssöng St. Mirren „When
the Saint go marchin in“.
Og hér er Þórólfur aftur að
sækja á Haffey markvörð,
Þórólfur var mjög sókndjarf-
ur og hættulegur í þessum
leik og var af öllum Glasgow-
blöðunum talinn einn beztu
manna leiksins.
Hér sjáum við Þórólf í einu ►
af einvígjum sínum við Haff-
ey, markvörð Glasgow Celtic.
Vel má greina á myndinni, að
Þórólfi er ekkert að vanbún-
aði hvað viðvíkur þjálfun, og
léttur og lipur er hann, það
sannar þessi skemmtilega
mynd. í baksýn sjáum við hið
geysimikla mannvirki Ibrox,
sem er þó harla lítilmótlegt
þegar það er borið saman við
Hampden Park, þar sem úr-
slitaleikur þessarar keppni
fer fram laugardaginn fyrir
páska.