Vísir - 02.04.1962, Qupperneq 8
8
VISIR
Mánudagurinn 2. apríl 1962.
Útgefandi: Blaðaútgáfan VtSIR
Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G Schram
Aðstoðarritstjóri: Axe) Thorsteinsson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur: Laugaveg: 178
Auglýsinga og afgreiðsla: Ingólfsstræti 3.
Áskriftargjald er 45 krónur á mánuði.
f lausasöiu 3 kr, eint - Simi 11660 (5 línur).
Prentsmiðja VIsis. — Edda h.f.
Hví erum við íil?
Nú um helgina hefir Alþýðubandalagið setið á
rökstólum hér í höfuðstaðnum. Þingið hefir verið eitt
meiriháttar sjónarspil, þar sem bandingjar kommún-
ista, menn eins og Hannibal Valdimarsson, hafa geng-
ið fram á sviðið og reynt að sannfæra áheyrendur
um að Alþýðubandalagið eigi sér sjálfstætt líf, frá-
skilið kommúnistaflokknum. En slíkar tilraunir eru
fyrirfram dauðadæmdar. Innrætið breytist ekki þótt
nú séu það refseyru í stað úlfs, sem upp standa.
Hannibal Valdimarsson og vinir hans eru valdalausir
bandingjar mannanna frá Moskvu, leikbrúður, sem
áskapað er að troða einn eilífan Sovétdans, þar til
yfir lýkur.
Fyrir ráðstefnunni lágu tvær spurningar, segir
Þjóðviljinn. Hvað vannst við stofnun Alþýðubanda-
lagsins? og: hvers vegna fór vinstri stjórnin frá völd-
um? Er ekki nema að vonum, að snillingunum sem
að bandalaginu standa, þyki tilhlýðilegt að reyna að
gera sér einhverja grein fyrir tilgangi þess sjö árum
eftir stofnun þess. En kannski er þeim þó vorkunn.
Spurningunni er reyndar svo vandsvarað, að sjö ár
er harla stuttur tími til þess að finna svar við því,
hvað unnizt hafi með stofnun bandalagsins.
Ekki ætti eins erfitt að reynast fyrir Hannibal
og félaga hans að finna svar við því hvers vegna
vinstri stjórnin fór frá. Hún átti ekki fylgi þjóðarinn-
ar og var þar að auki búin að gera í bólið sitt. En það
er sálfræðileg staðreynd, að mönnum er leitt að hug-
leiða mistök sín og misgerðir og því má greina sárs-
aukastunurnar á síðum Þjóðviljans, þegar þetta mikla
vandamál er nú krufið, tveimur árum eftir andláts-
daginn.
Vinstri stjórnin hrökklaðist frá völdum vegna
þess að hún gat ekki yfirunnið þær torfærur, sem hún
sjálf Húfði lagt á veg sinn. Jólagjöf hennar var átta
hundruð milljón króna skattabyrðar, úrræðaleysi í
iandhelgismálinu, yfirklór í togaraútgerðarmálinu, og
svo mætti lengi telja.
Vinstri stjórnin hratt þjóðinni út á botnlaust dýpi
efnahagsvandræða og skildi við skútuna skipreika.
Henni verður ekki aftur fengin skipsstjórnin.
Snilld Tímans
Jesús var Gyðingur. Þeim
kristnu mönnum, sem er
gjamara að leggja meiri á-
herzlu á það, sem skilur að
trú þeirra og Gyðingatrúna,
en hitt, sem er þeim sameig-
inlegt hættir ti! að gleyma
því. — I bókinni Jesus of
Nazareth: The Hidden Years,
leitast franski sagnfræðing-
urinn, Gyðingurinn Roþert
Aron, við að sýna hve djúp-
tæk áhrif ísraels voru á Jes-
úm er hann var að þroskast.
Kristnir menn eins og De
Gaulle, sem er kaþóliki, og
Albert Schweitzer, sem er
mótmælendatrúar hafa hrós-
að hinni ályktanakenndu en
hugmyndaríku ritgerð Arons,
sem byggð er á því sem vitað
er um líf Jesú og þá tíma,
sem hann lifði.
Nýja testamentið hefur frá
aðeins einu atviki í lífi Jesú
um æskuár
esú Krists
þeirra með þekkingu sinni. En
Aron álítur að Jesús hafi að
öllum líkindum verið alinn upp
eins og hver annar drengur frá
Biblíutímunum. Með þv£ að
skilja eðli barnauppeldisins á
þessum tíma eiga kristnir
menn auðvéldara með að skilja
mennskan persónuleika þess,
sem þeir tilbiðja sem son Guðs.
Málið, sem Jesús talaði, var
aramiska, skyld hinni sígildu
hebresku. Sérstæðir eiginleikar
hennar knúðu Jesúm til að
hugsa eftir vissum leiðum.
Aramiska, gagnstætt latínu og
grísku á fá orð, sem skýra
heimspekileg hugtök og verður
í staðinn að notast við hlutlæg-
ar líkingar, í ræðum um and-
legustu efni. Þegar Jesús, t. d.
Jesús í hópi kennimanna — eftir málverki Dúrers.
að segja frá þeim tíma er
fjölskylda hans setzt að í
Nazareth og til þess tíma þeg-
ar Jesús er skírður, þrítugur
að aldri: Þegar Jesús kemur í
musterið í Jerúsalem og eyðir
þar þrem dögum í samræður
við prestana og vekur undrun
notaði þessi orð Móse: „auga
fyrir auga og tönn fyrir tönn“
þá var hann ekki að segja, eins
og margir halda, að réttlætið
krefjist ofsafullrar refsingar við
ofsafullu afbroti. „Það hefði
verið andstætt kenningum Gyð-
inga um að menn eigi að elska
náungann eins og sjálfan sig
og sýna óvinum sínum misk-
unn“, segir Aron. „Þetta er
dæmigerð um hvernig Gyðingar
myndu orða slíka hugsun og
hún merkir að til sé viðeigandi
refsing við sérhverjum glæp.“
Slðan leitast Aron við með
skynsamlegum ályktunum að
sýna hvers konar uppeldi Jesús
hefur fengið og með saman-
burði hvar kenningar samtím-
ans birtast í orðum hans.
Aron heidur því t. d. fram
að bænin „Faðir vor“ sé að-
eins soðin upp úr gamalli ara-
miskri bæn, Kaddish, sem Jesús
hlýtur að hafa lært I æsku.
Jafnvel sæluboðin 1 Fjall-
ræðunni eru ekki annað en
endursögn gamalla trúarsetn-
inga Gyðinga, sem Jesús hlýtur
að hafa heyrt I prédikunum
prestanna í samkomuhúsinu í
Nazareth. „Sælir eru miskunn-
samir, því að þeim mun misk-
unnað verða", hefur eflaust
minnt áheyrendur Jesú á
þessi orð prestanna: „Guð
mun hafa meðaumkun með
sérhverjum þeim er aumkar
annan mann“.
Aron álítur að Jesús hafi
einkum aflað sér fræðilegrar
þekkingar hjá Fariseum, sem
hann síðar ásakaði fyrir harð-
ýðgi f hjarta þeirra. Eins og
Kristur þá prédikuðu þeir ást
til allra manna. Eins og Kristur
reyndu þeir einnig að halda sér
utan við pólitískar hreyfingar
síns tíma. „Gjaldið keisaranum
það sem keisarans er og Guði
það sem Guðs er“, er kenni-
setning í samræmi við hefðir
Fariseanna. Dæmisöguformið
sem Jesús notaði oft var mik-
ið notað af Fariseum.
Sem Gyðingur, vill Aron ekki
fallast á að Jesús hafi verið
guðlegrar ættar, en segir að
hlutverk hans hafi verið guð-
lega innblásið, og það var ekki
hlutverk, sem átti að leika með-
al ísarelsmanna heldur heið-
inna þjóða.
Metaflabrögð og hækkandi verð á útflutnings-
vörum eru skýringar Tímans á því að gjaldeyrisstað-
an hefir farið mjög batnandi. Núverandi stjórnarstefna
á þar auðvitað engan hlut, segir blaðið.
Aumingja Tíminn. Seinheppnara blað er víst ekki
gefið út á íslandi. Veit hann ekki um hinn gífurlega
aflabrest á vertíðinni í fyrra? Þekkir hann ekki afla-
leysi togaranna að undanförnu? Veit hann ekki, að
markaðshrun hefir orðið á síldarlýsi og mjöli erlendis?
Má það vera að fávizka blaðsins sé svo mikil?
SÉRFRÆÐINGAR Fiskideildarinn-
ar sem vinna að ýmiskonar rann-
sóknum og athugunum á vertíðar-
fiskinum, hafa komizt að þeirri
niðurstöðu að allmiklu meira magn
hefur ve.ið af 12 ára gömlum
þorski, en þeir höfðu búizt við.
í Fiskideildinni er stöðugt unnið
að aldursgreiningu á vertíðarfiskin
um, en það er gert með kvarna-
rannsóknum og berast kvarnir víða
að en einkum af Akranes; og frá
Vestmannaeyjum.
Undanfarin ár hefur sá þorskur
-sem nú er búinn að ná 12 ára aldri
verið mikið veiddur. Höfðu fiski-
fræðingar talið, að svo væri gengið
á aldursflokk þenna, að hann
myndi aðeins um 6 — 7% af aflan-
um
Athuganir í Fiskideildinni hafa
leitt 1 ljós að hundraðshluti þessa
12 ára gamla þorsks í afla bátanna
er miklu meiri en fiskifræðingarnir
höfðu búizt við, og stundum kom-
ist allt upp í 25%.
Ein er sú skýring á þessu að
fiskurinn hafi komið hingað frá
Grænlandsmiðum. Fundizt hafa
tveir þorskar merktir af dönskum
fiskifræðingum við Grænland og
war annar þeirra 12 ára en hinn í
ára aldursflokki.
í ár er aðalgöngufiskurinn í 7 ára
aldursflokki, einnig nokkurt magn
af 9 ára aldursflckknum.
Jón Jónsson forstöðumaður Fiski-
deildarinnar er nú 1 rannsóknarleið
angri með varðbátnum María Júlía,
er lét úr höfn I fyrradag, í rann-
sóknarleiðangur þennan, hér úti í
Faxaflóa og víðar.