Vísir - 02.04.1962, Qupperneq 10
VISIR
Mánudagurirm 2. ap»i 14rw2.
W
Peler Freuchen -
Frh. af bls. 9.
bókunum, err hvassara tekið til
orð^ oft og tíðum, gagnrýnin
bitrari, dómar harðari. Allar
þes§ar bækur eru bráðskemmti
legar — einkum þó kannski
hinar fyrri tvær, en allar hafa
þær orðið mjög kunnar bæði á
Norðurlöndum og annars stað-
ar £ heiminum.
Ferðabækur Freuchens eru
einnig mjög læsilegar og þykja
sumar afbragð, ekki sízt „Si-
beriske Eventyr“.
Vísindalegar ritgerðir hefur
Freuchen skrifað nokkrar, og
ekki annað heyrzt en að þær
þættu góðar.
Loks skal minnzt á slðustu
bókina, er Peter Freuchen
samdi, en hana lauk hann við
tveim dögum áður en hann dó.
„Peter Freuchen’s Book of the
Seven Seas“ — „Bókin um höf-
in sjö“ — nefnist hún og þykir
mikið afrek; varð hún heims-
fræg þegar í stað og þýdd á
flest menningarmál. En árið áð
ur hafði hann unnið sextíu og
fjögur þúsund dollara £ sjón-
varpskeppni vestanhafs, þar
sem spurningarnar fjölluðu um
svipað efni og bók þessi. Um
leið og henni var lokið, hélt
hann af stað til Alaska og ætl-
aði þaðan til Thule £ Grænlandi
£ leit að nýjúm ævintýrum, sjö-
tíu og eins árs gamall. Hann
hafði þungar töskur meðferðis,
og er hann var f þann veginn
að stfga upp £ flugvél á velli
einum f Alaska, buðust sam-
ferðamenn til að hjálpa honum
að bera töskurnar. En hann af-
þakkaði það og stökk upp tröpp
urnar með sina töskuna i hvorri
hendi. Slikan galsa þoldi ekki
hið margreynda hjarta hans;
Pcíer Freuchen hné niður i
efstu tröppunni og var þegar ör
endur.
gETRI dauðdaga mun hann
vart hafa getað óskað sér
sjálfur, og hinir fjölmörgu vinir
hans gátu vel unnt honum þess
að sleppa við banasængina.
Hann dó á líkan hátt og hann
hfði: glaður og gunnreifur á
Ieið til ævintýralandsins. And-
látsfregn hans snerti hjörtun
víðsvegar um heiminn, þar sem
hann var kunnur sem maður og
skáld. Hann var ógleymanlegur
þeim, er kynntust honum, heill
vinur, drengja beztur.
Hinn bnnvæni
Framh. af 7. síðu.
En síurnar gera ekkert gagn.
Þær sia jafnvel minna af tjöru
frá en sjálft tóbakið í sígarett-
unni og hafi notkun þeirra það
í för með sér, að menn reyki
tóbakshluta sfgarettunnar alveg
upp eru þær verri en ekki, þvi
að tjörumagnið i síðustu sogun
um er þá mjög mikið. Bezt væri
því að fella síusígaretturnar aft
ur niður. Framleiðsla þeirra eða
notkun byggðist ekki á neinum
vísindalegum athugunum.
A myndinni sést stjóm Kvenfélags Laugamessóknar. Talið frá vinstri: Asta Jónsdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Vivian Svavarsson,
Ragnhildur Eyjólfsdóttir, Herþrúður Hermannsdóttir, formaður félagsins, Guðrún Helgadóttir og Sigríður Ásmundsdóttir.
Starf kvennanaa í Lqugarnessókn
Fyrir nokkru bauð Kvenfélag
Laugarnessóknar öldruðu fólki í
sókninni 4 skemmtun er fyrir það
var haldiá i Laugarnesskóla. Fé-
lagskonur fórnuðu hvorttveggja fé
og fyrirhöfn til að gera gamla
fólkinu þessa dagstund sem á-
nægjulegasta. Er fyrst að nefna að
íslenzkri gestrisni var þarna í
salnum hásæti búið, svo sem hátt-
ur er góðrar húsfreyju á heimili
hverju. Veittu félagskonur gestum
sínum af mikilli rausn. Meðan fólk
ið sat við hlaðin borðin skemmti
það sér við að hlusta og sjá. En
dagskrá samkomunnar var þessi;
1. Síra Garðar Svayarsson flutti
ávarp.
2. Frú Olga Hjartardóttir söng
einsöng. Söng frúin ýms okkar
fegurstu þjóðlög. Undirspil annað-
ist Jón ísleifsson organisti.
3. Frú Kristín Ólafsdóttir flutti
frumort kvæði
4. Helgi Kristófersson sýndi
kyrramyndir, voru það litmyndir
af ýmsum fegurstu stöðum lands-
ins. Mesta athygli og aðdáun
vöktu þó skínandi myndir af Öskju
gbsinu síðasta.
5. Frú Aðalheiður Georgsdóttir
og tvö börn hennar kváðu rlinur.
Gerði frúin þessari þjóðlegu fþrótt
góð skil. Og mikil hrifningaraldi
fór um salinn er þessi tvö fallegu
börn komu fram á svalirnar og
hófu upp gamla kvæðastemmu.
Þau skiluðu sfnu hlutverki með á-
gætum.
Allt sem þarna fór fram vakti ó-
blandna gleði hinna öldnu sam-
komugesta.
Er þó einn skemmtiþáttur ótal
inn, en það var almennur söngur
er vel tókst.
Eftir meir en þriggja klukku-
stunda dvöl í skólanum fóru allir
heim með þakklæti f huga fyrir -
nægjulega stund. Alls munu lafa
sótt samkomuna um áttatíu
manns, en boðsgestir voru nálægt
Aðstoðarstúlku
til sýklarannsókna vantar nú þegar. Þarf helzt að hafa
stúdentsmenntun. Námstími tvö ár, en síðan laun
samkvæmt X. flokki launalaga Umsókn með upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf sendist Rann-
sóknastofu Háskólans, Barónsstíg.
sextíu. Voru þeir mun færri en
boðnir voru og kveffaraldurinn
hefur valdið því.
Kvenfélagið heldur slfkar sam-
komur árlega.
★
Kvenfélag Laugarnessóknar hef-
ur á undanförnum árum starfað
svo sem konum einum er bezt lag-
ið, að margskonar menningar- og
mannúðarmálum. Auk ýmiskonar
líknarstarfsemi og styrkja tií bág-
staddra, hefur félagið starfað af
Idráti
zwn
1,5 og 4 q, margir litir
BJÖLLUVÍR
2x06 og 2x0.8 q
PLASTSTRENGUR
2x1,5, 2x2,5 4x10 q
tyrirliggjandi.
GUMMITAUG
2x0,7 og 3x0,75 q.
G. Marteinsson hí.
Umboðs- og heildverzlun.
ankastræti 10 Slmi 15896
Heimasími 34746.
Vibratorar
fyrir steinsteypu leigðir út.
Þ. ÞORGRIMSSON & CO.
Borgartúni 7. - Sfmi 22235.
Heilbrigðir fætur eru undir-
staða velliðunar. Látið þýzku
Berkanstork skóinnleggin
lækna fætur yðar
Skóinnleggstofan
Vífilsgötu 2
.Opið kl. 2-4,30.
miklum dugnaði og fórnfýsi fyrir
kirkju sína.
Laugarneskirkja er fagurt guðs-
hús og söfnuðinum til sóma. Kirkj-
an er stílhrein og fagurlega
skreytt. Kvenfélagið kostaði skreyt
inguna að öllu, og mún kostnaður
hafa orðið nær 30 þúsund krónur
á þeim tím.a Síðan hefur félagið
árleg; gefið kirkjunni ýmsa dýra
muni. Má meðal annars nefna
messuskrúða, altarisklæði fagur-
lega gert, veglega kertastjaka,
fermingárkyrtla á sjötfu og tvö
börn og jafnmarga altarisbikara.
Allt hefur þetta kostað stórfé og
mikið starf. En mest er þó um-
vert þann sálarþroska er störfum
stjórnar og kærleiksandann er í
verkunum býr. Hér sannast sem
jafnan um . frjáls samtök kvenna,
að þau helga sér hin góðu mál-
efnin og fara um þau mjúkum en
styrkum höndum. Meðan svo er
almennt þarf ekki að óttast um
framtíð æskunnar, þó marga
skugga béri á frá öðrum öflum.
Sfgildur sannleikur eru þessar
Ijóðlínur þjóðskáldsins:
„í sálarþroska svanna
býr sigur kynslóðanna".
Svo er það og mun verða.
★
Stjórn Kvenfélags Laugarnes-
sóknar skipa nú þessar konur:
Form. frú Herþrúður Hermanns-
dóttir, meðstjórnendur eru frú
Vivian Svavarsson, frú Ragnhildur
Eyjólfsdóttir, frú Ásta Geirsdóttir,
frú Guðný Helgadóttir, frú Sigríð-
ur Ásmundsdóttir og frú Kristín
Ólafsdóttir.
Mikill áhugi ríkir hjá félagskon-
unum fyrir framtíðarstarfi félags-
ins.
26. marz 1962.
Stgr. Davíðsson. •
sr mgótivaNii
CFZCt IWMIs
mma
Loftlesting ^ '
Veggfesting
Mælum upp \ — Set jum upp
Stúlka eða kona
óskóskast til að leysa af í forföllum, þarf að geta bakað.
VEITINGAHÚSIÐ LAUGAVEGI 28 B
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa Uppl. á staðnum.
BAKARlIÐ LAUGAVEGI 5l