Tölvumál - 01.12.1987, Qupperneq 7
geta að því hefur og verið haldið fram að svipuð þróun
væri að verða i bilaiðnaðinum og e.t.v. kæmi að þvi fyrr en
síðar að flestir bilar litu eins eða svipað út.
IBM eerir bað gott með sðlu 9370.
í siðasta tbl. TÖLVUMÁLA var talað um mikið verðstrið sem
hafið væri i USA á milli IBM og Digital vegna sölu á IBM
9370 og VAX tölvunum og kastað fram að gaman yrði að
fylgjast með baráttunni hér heima .....
Nú hafa TÖLVUMÁL frétt að baráttan gangi vel hjá IBM, þeir
hafi nú þegar selt fimm IBM 9370 vélar.
Tvær Micro-VAX 3600 seldar.
KÓS hf er búinn að selja tvær Micro-VAX 3600 tölvur, þá
fyrstu fyrir nokkrum vikum til Fiskveiðasjóðs íslands.
Fiskveiðasjóður hefur i mörg ár notað PDP-11/44 tölvu frá
Digital. Aðalkeppinautur KÓS i þessum slag var HP á
íslandi.
Þakkir til ritnefndarmanna.
Þetta fréttabréf er siðasta blað 12. árgangs TÖLVUMÁLA.
Nokkrir úr ritnefnd hættu störfum á árinu. Einn þeirra,
Grétar Snær Hjartarson, hafði starfað óslitið i ritnefnd
frá upphafi. En hann og Óttar Kjartansson hjá SKÝRR, sem
var ábyrgðarmaður TÖLVUMÁLA samfellt i sjö ár, eru þeir
ritnefndarmenn sem lengst hafa starfað fyrir blaðið. Við
þökkum fráfarandi ritnefndarmönnum kærlega samstarfið.
Undirrituð hefur að undanförnu fengið viðbrögð við fréttum
i pistli þessum og eru ekki allir jafn ánægðir. Við þvi er
litið að gera. Einnig eru farin að berast til okkar
fréttabréf sem við höfum ekki áður fengið. Ég hvet menn
eindregið til þess að senda okkur efni eða hafa samband við
Kolbrúnu Þórhallsdóttur á skrifstofu Skýrslutæknifélagsins,
ef þeir telja sig hafa fréttir að færa.
Guðriður Jóhannesdóttir
7