Tölvumál - 01.12.1987, Blaðsíða 10
Við þurfum hins vegar að gefa þeim þáttum, sem hafa áhrif á
árangur tölvuvæðingar, betur gaum en verið hefur. Tölvu-
væðing hefur núorðið ósköp lítið með forritun að gera.
Flest nauðsynleg forrit má kaupa tilbúin út úr búð.
Tilbúnum forritxam má beita á fleiri en einn veg og laga þau
þannig að viðfangsefnum og vinnuhefðum. Það er mesti
misskilningur að hvert fyrirtæki sé svo allt öðru visi en
önnur að það krefjist stórkostlegrar aðlögunar á forritum.
"Við og okkar sérstöku þarfir" sem margir stjórnendur
fyrirtækja bera oft fyrir sig er ekkert annað en tregða til
að breyta úreltum og stöðnuðum vinnuaðferðum."
Oftrú á tækninni
"Tölvufræðingar eru mjög vel menntaðir i tækninni en þekkja
alltof litið til viðfangsefnanna sem unnin eru á skrifstof-
um. Þeir eru þvi ekki vel i stakk búnir til að takast
almennilega á við að koma á sjálfvirkni á skrifstofum. Við
þurfum þvi að mennta tölvufræðinga með meiri þekkingu á
viðfangsefninu. Sú leið sem Verslunarskólinn ætlar að fara
i tölvumenntun er rétt þótt deila megi um nafnið. Hins
vegar hefur alltof miklu púðri verið eitt i deilur um
nafnið. Það er inntak menntunarinnar sem skiptir máli. Ég
sé mikla þörf í atvinnulifinu fyrir menn með þá menntun sem
Verslunarskólinn ætlar að veita og vona að þeim takist vel
til.
Það er ekki nóg að senda starfsfólkið á námskeið og búast
siðan við að sjálfvirknin komi af sjálfu sér. Það er
alltof algengt að starfsmenn, gjarnan ritarar, eru sendir á
tölvunámskeið þar sem þeir þurfa að innbyrða mikla þekkingu
á skömmxim tima. Þeim tekst sjaldan að vinna úr þvi magni
upplýsinga sem þeir hafa fengið. Og loks þegar þeir koma á
skrifstofuna aftur biða þeirra svo mörg verkefni að þeir
hafa ekki tima til þess að nýta það sem þeir hafa lært.
Forsvarsmenn verða að móta stefnuna um sjálfvirkni og ganga
á undan með góðu fordæmi og hagnýta sér hana. Það er lika
nauðsynlegt að tölvuáhugamenn finnist meðal starfsmanna sem
hafa elju og nennu til að læra á tæknina og miðla sam-
starfsmönnum sinum af kunnáttu sinni. En hvatning verður
að koma ofan frá.
Hér þarf að ganga skipulegar til verks. Það þarf að
endurskipuleggja vinnuganginn á skrifstofum með tilliti til
tölvuvæðingarinnar. Að öðrum kosti verður tölvan og vinnan
i kringum hana meira eða minna viðbót við allt það sem
10