Tölvumál - 01.01.1988, Blaðsíða 6

Tölvumál - 01.01.1988, Blaðsíða 6
FRÉTTAPISTILL Námskeið: gervigreind, þekkingarkerfi og rökforritun. Dagana 15.-19. febrúar n.k. mun Endurmenntunarnefnd Háskólans standa fyrir námskeiði um gervigreind, þekkingarkerfi og rökforritun. Efni: Gervigreind, þekkingarkerfi, ályktunaraðferðir, framsetning þekkingar, rökforritun og Prolog, óvissuþættir, verkfæri til að hanna þekkingarkerfi, innsýn í þekkingarkerfið og forritun með því, verkefni. Námskeiðið er ætlað forriturum, kerfis- og tölvunarfræðingum. Markmið þess er að þátttakendur verði að námskeiði loknu færir um að taka þátt í hönnun þekkingarkerfa og velja til þess verkfæri. Leið- beinendur eru dr. Oddur Benediktsson, prófessor og Páll Jensson, forstöðumaður Reiknistofnunar Háskólans. Námskeiðið er alls 20 klst. og þátttökugjald er kr. 14.000,- auk kennslubókar. - Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa endurmenntunarstjóra, í síma 23712 og 687664. íslenska gagnanetið. Notendur sem tengdir eru gagnaneti Póst- og símamálastofnunar með upphringisambandi eru nú orðnir 600 talsins. Úthlutað hefur verið 190 númerum til fasttengdra notenda. Þar sem hver notandi getur haft mörg númer á sömu tengingunni er ekki hægt að segja til um fjölda fyrirtækja sem fasttengd eru. Ný sprengja frá IBM Innan þriggja mánaða verður kynnt ný tölvulína frá IBM. Sagt er að hún muni spanna sviðið frá 2 notendum til 600 notenda og að sú minnsta verði álíka og PS/2 tölva að afköstum, en sú stærsta muni nálgast afköst IBM 3090. Þessari tölvulínu er ætlað að koma í stað S/36 og S/38 tölvanna og nota samskonar reikniverk og S/38. Nýju tölvurnar eru sagðar ætlaðar jafnt fyrir viðskipti sem vísindi og verður forritunarumhverfið það sama frá þeirri smæstu til þeirrar stærstu. Hvað heitir fyrirbrigðið - IBM 9380 að sjálfsögðu! Fyrir skömmu sögðum við frá svari Digital við IBM 9370 línunni. - Hvert verður svar Digital við þessari sprengju? - 6 -

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.