Tölvumál - 01.01.1988, Side 13
('Mvndflötur birtis sem getur birt sviprit. / Dæmi: Myndflötur
mvndlamoa-) og mótald (Búnaður sem mótar og afmótar merki. / Eitt
af hlutverkum mótalds er að gera kleift að senda stafræn gögn um
gaenarás sem ætluð er fyrir flaumræn gögn. ...).
í þessum sem flestum öðrum tilfellum þarf venjulegur tölvunotandi
sem hugsanlega er unglingur í grunnskóla (gætið að því að venju-
legur tölvunotandi í dag er ekki sambærilegur við venjulegan
tölvunotanda fyrir fimm árum) stutta einfalda og hnitmiðaða
skýringu sem segir á venjulegu máli hvað orðið á við: skjár: sá hluti
tölvunnar þar sem letrið birtist, og mótald: tæki til að senda um
síma gögn úr einni tölvu í aðra.
Hér sést líka annar munur á hinni almennu málnotkun og staðli
íðorðasafnsins. Venjulegur tölvunotandi í dag hefur enga sérstaka
þörf fyrir hina nákvæmu aðgreiningu staðalsins. Hann getur sem best
notað orðið skjár (og gerir það hiklaust) yfir myndflötinn, mæninn
(e: monitor) og jafnvel tölvuna alla ef hún er diskalaus. Screen.
Cathode-rav Tube. Visual Displav Unit. Monitor og Video Terminal
heitir allt skiár í munni almennings. Jafnvel öll tölvan getur heitið
skjár, t. d. þegar menn tala um að sitja við skjáinn (en það er þá
væntanlega pars pro toto).
Hér hefur verið bent á það að vegna hinnar skyndilegu og öru
tölvubyltingar er brýn þörf fyrir tölvuorðasafn fyrir almenning sem
styðst að svo miklu leyti sem kostur er við orðaforða Tölvuorða-
safnsins. Almenningur getur ekki notað Tölvuorðasafnið nema að litlu
leyti af eðlilegum ástæðum. Það er hins vegar ekki æskilegt að reyna
samsteypu íðorðasafns og tölvuorðasafns fyrir almenning. Til þess eru
markmið slíkra safna of ólík. Tölvuorðasafn fyrir almenning myndi
styrkja stoðir Tölvuorðasafnsins mikið ef rétt er að staðið. Nýyrði
verða að fá bæði kynningu og notkun til þess að öðlast líf, sum fá
ekki líf þrátt fyrir það, en þá koma önnur þeirra í stað. Það er
nefnilega öruggt að almenningur stendur ekki orðlaus gagnvart
tækninni.
Vilhjálmur Sigurjónsson er kerfisfræðingur hjá Microtölvunni hf.
13 -