Tölvumál - 01.01.1988, Side 18
öld". Og nú er þjarmað að skólunum, og heimtað, að þeir sjái
börnum, fimm ára og eldri, fyrir tölvukennslu. Hér er meiri háttar
tískubóla á ferð. Og þessi tískubóla er að líkindum ekki eins
léttvæg og þær, sem áður hafa farið hjá. Nú á að móta hug ung-
viðisins á nýjan hátt. Og þetta er ekki aðeins til skemmtunar.
Varðar þetta að einhverju leyti tölvuleikina, sem ég hef rætt um hér?
Já, að minnsta kosti á tvo vegu.
Eitt er það, að á litlu tölvurnar, sem settar eru í skóla, má leika
flesta vinsælustu tölvuleikina. Og það eru slíkir leikir, sem laða
margt barnið að tölvum í upphafi. Við getum m.ö.o. vænst þess, að
þau verði "menntuð" til ofbeldis án sektarkenndar, til sálardoða af því
tagi, sem sækja má í leiksalina og oft í heimilistölvuna líka. Það
félli þá í hlut skólanna að styrkja slíka "þjálfun".
Annað er svo það, að forritunarkennsla sú, sem skólar munu að
líkindum standa að til að búa ungviðið til þátttöku í upplýsingaþjóð-
félaginu svonefnda, mun fela í sér hönnun líkana meðal annars. Og
sú iðja hentar ekki síður til að rjúfa tengsl milli verks og afleiðinga
verks en tölvuleikirnir, sem ég hef rætt um. í eðli sínu er hún þó
öllu lævísari. Það er vissulega hægt og auðgert að kynna ungviðinu
gerð reiknilíkana, án þess að skaði sé að. Til þess þurfum við ekki
annað en vökula kennara, sem sjálfir vita, hvað líkön eru; hvað læra
má af þeim og hvað ekki.
Ég ræði um líkön og fræðikenningar í bókinni. Það sem hér skiptir
máli, er að líkön fela aðeins í sér meginatriði þess, sem þeim er
ætlað að koma til skila. Eigi að prófa bíl í vindgöngum, skiptir ytra
form bílsins eitt máli. Sæti og allt annað, sem finna má inni í
raunverulegum bíl, skiptir ekki máli í slíku líkani. Það er með öllu
háð ásetningi höfundar líkansins, hvaða þáttum raunveruleikans hann
sinnir og hverjum ekki. En það er sama, hvert markmiðið er. Líkan
- og hér hef ég í huga tölvulíkön af ákveðnum þáttum raunveru-
leikans -, hlýtur eðli síns vegna að verða svipt næstum öllu, sem
felst í þeim raunveruleika, sem það á að spegla. Og þess vegna er
það í öllum tilvikum afar takmarkað, sem hægt er að læra af líkani.
Sá kennari sem veit þetta og gerir sér fulla grein fyrir því í
tölvukennslu, á þess því kost að forða nemendum sínum frá allri
oftrú á þeim verkum, sem þeir vinna á tölvur.
En raunin er hins vegar sú, að sárafáir kennarar (á hvaða skólastigi
sem er), gera sér grein fyrir þessum takmörkunum líkana og átta sig
framh. á bls. 20
18 -