Tölvumál - 01.09.1988, Page 7
HEIÐURSFÉLAGI LÁTINN
Gunnlaugur G. Björnson, fyrrver-
andi skipulagsstjóri Útvegsbanka
íslands og kerfisfræðingur hjá
Reiknistofu bankanna, lést 26.
ágúst s.l., 76 ára að aldri.
Gunnlaugur var einn af stofnendum
Skýrslutæknifélagsins og endur-
skoðandi þess frá byrjun.
Hann var stærðfræðingur að mennt
og einn af frumkvöðlum gagna-
vinnslumála hérlendis. Kunnur var
hann fyrir það hversu fljótt og
auðveldlega hann gat tileinkað sér
hina nýju tækni með sjálfsnámi.
Þeim hæfileika hélt hann allt til
síðasta árs.
Gunnlaugur gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum. Hann var m.a. um
áraraðir í stjórn Starfsmannafélags Útvegsbanka íslands, formaður
Sambands ísl. bankamanna, fyrsti formaður samstarfsnefndar um
Reiknistofu bankanna og um skeið formaður Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins.
Á 20 ára afmæli Skýrslutæknifélagins 6. apríl s.l. var Gunnlaugur
gerður heiðursfélagi í þakkarskyni fyrir störf að málefnum félagsins
og að þróun upplýsingatækni á íslandi.
Félagar í Skýrslutæknifélaginu senda fjölskyldu og ættingjum
Gunnlaugs samúðarkveðjur. - kþ.
TÖLVUMÁL 7