Tölvumál - 01.09.1988, Blaðsíða 12
ooo
ooo
N Á M S K E I Ð
Verulegum fjármunum hefur verið varið til hugbúnaðargerðar og virðist
hafa farið vaxandi á síðustu árum. Með því að beita nýjustu aðferðum
við kerfisgerð má ná fram mun betri stjórn á hugbúnaðargerð, auk
þess sem viðhald og endurnýjun kerfa verður mun einfaldara og
ódýrara.
Skýrslutæknifélag íslands heldur námskeið í
HUGBÚNAÐARGERÐ
26. - 30. september 1988
á Holiday Inn
Námskeiðið var áður haldið í nóvember s.l. og þótti takast mjög
vel. Það er einkum œtlað þeim, sem þurfa að skipuleggja og
stjórna stórum hugbúnaðarverkefnum, s.s. kerfisfrœðingum,
ráðgjófum, tölvunarfrœðingum og verkfrœðingum.
Kjarni námskeiðsins er fyrirlestrar, jafnframt því sem þátttakendur
fást við verkefni tengd efni þeirra. Þátttakendur kynnast nýjustu
aðferðum við kerfisgerð og beitingu þeirra. M.a. verður fjallað um
kröfugreiningu, kerfisgreiningu, kerfishönnun, gangsetningu tölvu-
kerfa, hjálpartæki, s.s. forritunarmál af fjórðu kynslóð, frumgerðir
("prototypes"), hugbúnaðarverkfræði, prófanir tölvukerfa, verkefnis-
stjórnun, gæðamat og gæðaeftirlit, mat á stærð hugbúnaðarverkefna,
hagkvæmnisathuganir á rekstri tölvukerfa, staðla, útboðslýsingar og
tilboðsgerð.
Kennarar:
Dr. Oddur Benediktsson, prófessor í tölvunarfræði við Háskóla
íslands.
Bjarni Júlíusson, framkvæmdastjóri TölvuMynda h.f. og kennari í
kerfisgreiningu og kerfishönnun við Háskóla íslands.
12 TÖLVUMÁL