Tölvumál - 01.09.1988, Blaðsíða 14
DV í HÓPI STÆRSTU TÖLVUSALA?
Könnun Tölvumála bendir til aö árlega séu seldar 600
til 800 notaöar ET tölvur fyrir allt aö 40 milljónum
króna. Af þeim seljast 500 til 600 í gegnum auglýs-
ingar í DV. Velta smáauglýsingadálka DV er 25 - 30
milljónir króna aö mati Tölvumála. Þaö skipar þeim í
hóp umsvifamestu tölvusala á landinu.
Endursölumarkaður
Tölvur endast í skamman tíma. Við mat á fjárfestingum eru tæki og
hugbúnaður afskrifuð á 5 árum. Fjölnotendatölvur verða verðlausar á
fáum árum eftir að hætt er að framleiða þær. Því veldur ekki síst
mikill viðhalds- og rekstrarkostnaður. Tölvur úreldast á fáum árum.
Nýjar og ódýrari gerðir koma sífellt á markaðinn. Þær eru fyrirferðar-
minni, hraðvirkari og krefjast minna viðhalds en hinar eldri. Talið er
að verð á tölvum lækki um 20% á ári reiknað á föstu verðlagi. Þessi
þróun veldur því að hefðbundnar tölvur eru ekki varanleg eign.
Erlendis er víða nokkur markaður fyrir notaðar tölvur. Hann er þó
minni en ætla mætti sökum þess hversu illa tækin endast. Með
tilkomu einmenningstölvanna breyttust þessar forsendur. ET tölvur
eru mjög öruggar. Það kosta minna að reka þær en fjölnotendatölvur.
Mikið af ódýrum og góðum hugbúnaði er fáanlegur fyrir þær. Auðvelt
er að auka afköstin. Bæta má seguldiskum, segulminni og hraðvirkum
örgjörvum í gamlar vélar og skipta um skjái. Reynslan sýnir að vegna
þessara eiginleika endast ET tölvurnar lengur en eldri tölvugerðir. í
landinu eru nú 13 - 15 þúsund einmenningstölvur. Árlega seljast 3000
til 3500 nýjar vélar. Af þeim sökum má vænta þess að hér á landi
komi upp líflegur markaður fyrir notaðar ET tölvur eins og gerst
hefur í öðrum löndum.
Tölvumarkaður DV
Hér á landi er enn sem komið er tæplega unnt að tala um skipulegan
endursölumarkað fyrir ET tölvur. Stærstu tölvusalarnir taka þær ekki
í endursölu. Eigendur einmenningstölva leita þó oft til tölvusalanna
til að fá upplýsingar um endursöluverð. Nokkrir tölvusalar sem
Tölvumál leituðu til voru sammála um að tölvur af gerðum sem enn
eru framleiddar seljist notaðar fyrir 65% til 75% af verði nýrra.
Tölvur sem hætt væri að framleiða seljist með enn meiri afföllum.
14 TÖLVUMÁL