Tölvumál - 01.09.1988, Page 22
HÁSKÓLI ÍSLANDS
ENDURMENNTUNARNEFND
SKÝRSLUTÆKNIFÉLAG ÍSLANDS
FÉLAG ÍSLENSKRA IÐNREKENDA
MENNTUNARÁTAK FYRIR
ÍSLENSKAN HUGBÚNAÐARIÐNAÐ
Á vegum Endurmenntunarnefndar Háskóla íslands, í samvinnu við
Félag íslenskra iðnrekenda og Skýrslutæknifélag íslands, verður í
vetur boðið upp á röð námskeiða fyrir þá sem starfa við hugbúnaðar-
gerð. Markmið þessarar samvinnu er að efla íslenskan hugbúnaðar-
iðnað. Á námskeiðunum verða kynntar nýjungar í tölvunarfræðum,
nýjar aðferðir við þróun og framleiðslu hugbúnaðarkerfa og kennd
verður verkefnastjórnun við hugbúnaðargerð. Er það von aðstandenda
að með þessu megi auka afköst og gæði í þessari nýju hátæknigrein
og stuðla að aukinni samræmingu innan hennar.
Námskeiðin hafa skipulagt:
Frá Háskóla íslands; Oddur Benediktsson, prófessor, Páll Jensson,
prófessor og Helgi Þórsson, forstöðumaður Reiknistofnunar H.í.
Frá hugbúnaðariðnaðinum; Bjarni Júlíusson, framkvæmdastjóri Tölvu-
Mynda h.f., Björgvin Schram, viðskiptafræðingur og Bergur Jónsson,
framkvæmdastjóri tæknisviðs Verzlunarbanka íslands.
Nánari upplýsingar um námskeiðin verða í næsta tölublaði TÖLVU-
MÁLA.
22 TÖLVUMÁL