Vísir - 24.04.1962, Qupperneq 2
VISIR
Þriðjudagurinn 24. apríl 1962.
,^>4
11 r n w
1 1 „ V7////JL
“TT3 °T
íslendingar á forsíðu
Eins og getið var í fréttum hér
í blaðinu fyrir páskahátíðina fóru
á annað hundrað manns til Glas-
gow á laugardagsnóttina með
tveim flugvélum. Þessi viðbúnað-
ur vakti geysiathygli í Glasgow
og þegar fiugvélarnar komu var
þar fyrir hópur ljósmyndara og
blaðamanna, og eftir svo sem
klukkutíma var fréttin á forsíðum
blaðanna ásamt myndum. Fyrir-
sagnirnar hljóðuðu: Icelanders fly-
in — ÁFRAM St. Mirren o. s. frv.
íslendingarnir eyddu morgnin-
um til innkaupa, sem eru geysi-
hagstæð í Glasgow, en eftirmiðdag-
urinn fór að mestu í að komast til
Hampden og frá, enda umferðin
gífurleg þegar 130.000 manns er á
leið að sama punktinum.
Það var tilkomumikil sjón fyrir
okkur Islendingana, sem erum öliu
Aðeins sex í
víðavangshlaupi
47. VÍÐAVANGSHLAUP ÍR
fór fram að venju á sumardag-
inn fyrsta (skírdag).
Úrslit urðu þessi:
1. Kristleifur Guðbjörnsson,
KR, 9.24.2 mín.
2. Agnar Leví, KR, 9.24.6 mín.
3. Halldór Jóhannsson, HSÞ,
10.01.4 mín.
4. Reynir Þorsteinsson, KR,
10.43.5 mín.
5. Jón Guðlaugsson, HSK,
11.05.0 mín.
6. Kristján Mikaelsson, iR,
11.46.0 mín.
Minnstu munaði að þessi eini
ÍR-ingur í hlaupinu yrði ekki
með, en hann hafði unnið í tvo
sólarhringa samfleytt í fisk-
vinnu og sofið 3 tíma fyrir
keppnina, en mætti samt og
mættu margir frjálsfþróttamenn
læra af þessum unga manni. —
Þátttaka hefur aldrei verið
minni í hlaupinu en nú. KR
vann 3ja manna sveitakeppn-
ina, en engin 5 manna sveit
kom fram.
vanari 1000 áhorfendum teða eitt-
hvað þar um bil að sjá um 130 þús.
æpandi hausa, sem þegar voru
farnir að syngja baráttusöngva sína
rúmri klukkustundu fyrir leikinn.
Það vakti líka athygli okkar hve
var margt illa tii fara, tötralegt
og óhreint, margt áberandi drukkið
og jafnvel unglingarnir voru marg-
ir undir áhrifum áfengis.
Þegar leikmennirnir komu inn á
völlinn að loknum hátíðasýningun-
um ætlaði allt um koll að keyra.
Og út leikinn voru liðin hvött, oft
svo að maður fékk hellur fyrir
eyrun af hrópunum. Starfsmenn-
irnir niðri á leikvanginum höfðu
nóg að gera að flytja fólk af á-
horfendapöllunum, því þar leið yf-
ir fólk á nokkurra sekúndna milli-
bili vegna þrengsla og troðnings.
Rangers-iiðinu var haldið hóf á
St. Enoch Hotel við safnefnt torg,
en hótel þetta er steinsnar frá
skrifstofu Flugfélags Islands. Fyrir
utan hótelið var allan daginn og
langt fram á kvöld hundruð áhang-
enda Rangers, sem heimtuðu liðs-
menn fram á svalir hótelsins, hvað
þeir og gerðu öðru hverju. Segja
mætti mér að eitthvað hefði verið
sagt, ef ísle\nzkir íþróttamenn
hefðu fyllt sigurbikar sinn með
kampavíni og helt yfir mannfjöld-
ann eins og hinir glöðu Rangers-
leikmenn gerðu þarna. En Skotarn-
ir kalla ekki allt ömmu sína og
opnuðu bara munnana og reyndu
að ná sem mestu af freyðandi
kampavíninu sem átrúnaðargoðin
höfðu sent þeim.
Áhorfendur að þessum atburð-
um fannst mér einna líkastir því
að vera haldnir móðursýki svo
mikif er dýrkun þeirra. T. d. þegar
Millar, miðherji Rangers yfirgaf
samkvæmið, var eins og fagnaðar
og hrifningarbylgja færi um mann-
skapinn. Og þegar leikmenn köst-
uðu bláu féiagshálsbindunum sín-
um niður af svölunum ætlaði allt
um koll að keyra.
Margir 1 hópnum urðu til að á-
varpa okkur íslendingana, ekki sízt
er þeir sáu merki Flugfélagsins, og
þá tók ýmislegt að rifjast upp, einn
hafði verið í Fossvoginum á stríðs-
árunum og fannst Fossvogurinn
mjög skemmtileg „borg“ og ekki
fannst honum Hafnarfjörðurinn
síðri. Annar sagði okkur að við
hefðum heldur átt að sjá Beck gegn
Celtic, „þá var hann mörgum sinn-
um betri en nú“. Og þannig vor-
um við allt í eihu orðnir mál-
kunningjar fjölda Rangersaðdá-
enda, og er við urðum að fara nið-
ur í skrifstofu ICELANÐAIR
kvöddu okkur margir vinir með
handabandi, því þannig eru Skot-
arnir, þessir litlu, glaðlyndu og
kviku náungar.
- jbp -
Þér gengur betur næst -»
segir Guðrún Beck, systir Þórólfs hughreystandi eftir tapleikinn
á laugardaginn. Guðrún kom í heimsókn til Þórólfs á þriðjudaginn
var og hyggst vera viku i viðbót í Glasgow. Hún hefur orðið
forsíðuefni blaðanna í Glasgow og viðtöl við hana birzt. Þórólfur
heldur á mingjagrip um góðan árangur St. Mirren í Bikarkeppn-
inni og er heldur stúrinn á svip. „Mér fannst ég hafa „skúffað“
íslendingana, sem komu um svo langan veg“.
rslitunum
Það vantaði ekkert á stemning-
una og æsinginn i sambandi við
úrslitaleik skozku knattspyrnunn-
ar á laugardaginn. Ramminn utan
um leikinn var stórkostlegur. Mikl-
ar sýningar, sekkjapípu og lúðra-
sveitir á 3. hundrað manna og ekki
sizt áhorfendaskarinn, sem opin-
berlega var talinn 127.940, en ef-
laust er rétta talan yfir 130.000.
Áhorfendurnir voru farnir að
streyma til Hampden fyrir kl. 2, en
kl. 3 e. h. hófst leikurinn. Syngj-
andi og veifandi hrossabrestum og
Þórólfur fékk boltann á 28. mínútu fyrri hálfleiks og drap hann fallega á brjóstið eins og myndin
sýnir og skaut fallegu og föstu skoti í bláhornið en Ritchie varði mjög vel. Þetta skot var bezta
tilraun St. Mirren í leiknum og mjög fallega gert hjá Þórólfi. Hægra megin á myndinni er Kerrin-
gan,’ miðherji og vinstramegin er Galdow, fyrirlliði Rangers, sem misst hefur af boltanum. Twar-
ton dómari er aftan til á myndinni.
öðrum hávaðatólum komu- aðdá-
endurnir til leiksins, margir áber-
andi tötralegir, drukknir og á okk-
ar vísu „ekki vallarhæfir". Á
nokkrum stöðum mátti sjá ung-
linga, sýnilega drukkna, sem lent
höfðu í orðaskaki og minnstu mun-
aði að lentu saman í áflogum. All-
flestir áhorfendur báru trefla, ann-
áðhvort bláa-rauða-hvíta (Rang-
ers) og þeir voru í stórum meiri-
hluta, eða svarta-hvíta (St. Mirren).
1 stæðunum var blár litur líka á-
berandi mjög og Rangers virtust
hafa yfirgnæfandi meirihluta með
sér.
Yfirburðunum svarað
með heppni Saints.
Klukkan 14.55 komu leikmenn
hlaupandi út á leikvöllinn með
fjölda ungra hlaupapilta í farar-
broddi, Ranger.; í bláum búningum
og hvítum buxum eins og Framar-
ar hér,, en St. Mirren hvítir og
mjög líkir Real Madrid, a. m. k.
áður en leikurinn hófst, því leikur
þeirra reyndist yfirleitt heldur
slakur og miklum mun verri en hjá
Rangers.
Rangers hófu þegar sókn, en þó
ekki þunga fyrstu mínúturnar. Á
11. mínútu kom fyrsta verulega
tækifærið i leiknum, en þá voru
tveir leikmenn Rangers í góðu færi
á markteig en báðir „kiksuðu". Á
12., 13. og' 14. mínútu áttu Rang-
ers-menn góð færi, Williamsson
varði fallega skot frá Henderson
og á . 19. mínútu björguðu St.
Mirren-menn á yfirnáttúrlegan hátt
a. m. k. tvisvar.
Þórólfur skapaði
fyrsta tækifæri St. Mirren.
Á 28. mínútu skapaði Þórólfur
fyrsta tækifærið, sem eitthvað
kvað að hjá St. Mirren. Þórólfur
fékk háan bolta innan vítateigs,
drap hann á brjóstið Iíkt og við
sáum hann svo, oft gera, er hann
lék með KR, síðan lagði hann bolt-
ann fyrir sig og skaut hörkuskoti
í v. hornið >en nú kom Ritchie
markvörður til skjalanna og varði
meistaralega í horn, en naumlega
þó. Og enn hélt yfirburðum Rang-
ers áfram og blái liturinn í áhorf-
endaröðunum öskraði villimann-
lega og heimtaði mörk, sem i raun
Framh á 10. síSu
HAMPDEN
Meðal áhorfendánna á Hamp-
den Park í Glasgow á lgugar-
daginn var íþróttafréttaritari
frá Vísi, en hann tók sér far í
Viscount-flugvél sem fór með
53ja manna hóp til Glasgow.
Hér á siðunni er frásögn
fréttamannsins á leiknum og á-
horfendunum í Glasgow.