Vísir - 25.04.1962, Qupperneq 1
VISIR
52. árg. — Miðvikudagur 25. apríl 1962. — 92. tbl.
Kennedy ákveðinn að
hefja sprengingnr
Kennedy Bandaríkjaforseti
hefur heimilað Kjamorkuráði
Dæmafátt spellvirkií G.A.
Um páskana var unnið
hræðilegt spellvirki á Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar í
Skólavörðuholti. Einhverjir
ókunnugir menn réðust 'á rúð
urnar í leikfimishúsi skólans
og mölbrutu þær með grjót-
kasti. Rúðumar voru vír-
bundnar og hefur þurft mikið
átak til að brjóta þær. Alls
voru brotnar hvorki meira né
minna en 40 stórar rúður.
Vísir átti tal við húsvörð
skólans Tryggva Marteinsson
og sagði hann að aðkoman í
leikfimissalinn á Páskadags-
morgun hafi verið hræðileg.
— Hafið þið nokkra hug-
mynd um, hver framdi verk-
ið?
— Nei, en það hljóta að
hafa verið drukknir menn, því
ótrúlegt er að allsgáðir menn
hegði sér svo svívirðilega.
— Ekki vissi húsvörðurinn
hve mikið tjónið myndi nema
í krónum, en það skipti á-
byggilega mörgum þúsund-
um, ef ekki tugþúsundum.
Það er nú verið að vinna að
því að setja nýjar rúður í og
tók ljósmyndari Vísis hjá-
liggjandi mynd af tveimur
smiðum að verki. Annar held-
ur á grjóthnullungi, sem not-
aður var við spellvirkið.
Það er einna verst, sagði
húsvörðurinn, hvernig allt
leikfimishúsið er útsóðað f
glerbrotum, bæði salurinn,
gangar og búningsklefar. Það
verður að hreinsa það vel til
áður en unglingar geta farið
að ganga berfættir um gólfin.
Grjótinu var líka kastað svo
fast að olli skemmdum á gólfi
og veggjum í húsinu.
Bandaríkjanna, að hefja til-
raunir með kjamorkuvopn á
Kyrrahafi u^dir eins og við
verður komið, og er nú talið
víst, að þær hefjist undir eins
og veðurskilyrði eru hagstæð
— ef til vill innan sólarhrings.
Samtímis berast fréttir, sem
benda til að fundur æðstu
manna kunni að verða haldinn
innan tíðar.
Mikill viðbúnaður hefur átt
sér stað að undanförnu og
fjölda mörg herskip hafa að
undanfömu verið að safnast
saman suður og vestur af
Hawaii vegna hinna fyrirhug-
uðu tilrauna og eru á skipa-
flota þessum 12.000 menn. Að-
altilraunirnar fara fram á Jóla-
eynni (Christmas Island) og
þar í grennd. Reynd verða
kjamorkuvopn, sem aldrei hafa
verið reynd (sprengd) fyrr með
kjarnaoddum, svo sem Polaris-
skeytin, en tiiraunir hafa ver-
ið gerðar með slík skeyti ó-
kjarnaeydd. Einnig verða gerð-
ar slikar tilraunir með Mini-
teman-skeytin og vafalaust
kjarnorkuvopn, sem öllu hefur
verið haldið leynd um.
Þetta er í fyrsta skipti í
nærfellt 4 árjt sem Banda-
ríkin sprengja í lofti, og er
gert ráð fyrir, að alls verði
um 25 kjarnorkusprenging-
ar eða tilraunir að ræða í
þessum þætti tilraunanna.
Talsmaður Kjarnorkuráðs
sagði, eftir að Kennedy hafði
veitt heimildina, að fyrsta til-
raunin kynni að verða gerð
innan sólarhrings, en þó færi
það eftir veðri, en ekki mundu
margir sólarhringar líða, þar
til fyrsta tilraunin yrði gerð.
Tilkynnt er i London, að
brezkir kjarnorkuvisindamenn
verði viðstaddir tilraunimar,
en þeir verði þar sem athug-
endur, en ekki sem þátttakend-
ur, og engin brezk kjamorku-
vopn verði reynd.
fíanbogi Rútur
ekki í framboSi
Á fundi, sem kommúnistar
í Kópavogi héldu í gær var
ákveðinn framboðslisti þeirra I
og kom það þar í ljós, að
Finnbogi Rútur Valdimars- j
son, sem hefur verið aðai-
foringi kommúnista þar var
ekki á Iistanum og styður
hann ekki einu sinni. Var
hvorki Finnbogi né kona hans ,
Hulda Jakobsdóttir bæjar- j
stjóri á listanum. Það kom
ennfremur fram að Finnbogi
væri óánægður með listann,
en efstu tveir menn á honum
eru Þormóður Pálsson og \
Ólafur Jónsson.
Með því að Finnbogi Rútur
hverfur nú úr forustuliði
kommúnista í Kópavogi er al-
mennt álitið að pólitískum
ferli hans sé að ljúka. Hann
hefur löngum þótt harður f
hom að taka sem stjómmála-
maður en nú mun klofningur
og deilur í hópi kommúnista
valda því að hann hættir af-
skiptum af bæjarmálum.
T emplarsaf ramboð
Vísir hefur fengið þær fréttir
hjá Templurum, að listi bindindis-
manna við borgarstjórnarkosning-
arnar verði lagður fram í dag.
Efstu menn bindindislistans eru:
Gísli Sigurbjörnsson forstjóri Elli-
heimilisins, Benedikt Bjarklind full
trúi borgarfógeta, Sigþrúður Péturs
dóttir frú, Loftur Guðmundsson
blaðamaður, Indriði Indriðason á
skattstofunni og Sveinbjörn Jóns-
son forstjóri Ofnasmiðjunnar.
Síldveiðin orðin milljón tunnur
Þátfaskil með árvissum síldveiðum við Suður- og Vesturland
Þau merkilegu tíðindi hafa nú
gerzt á vetrarsíldveiðunum við
Suður- og Vesturland, að allinn
er kominn upp fyrir milljón upp
mældar tunnur. Útgerðarmenn,
sem Vísir talaði við f morgun
sögðu að með þessum vetrarsíld
veiðum væru mörkuð tfmamót,
þannig að þær muni verða ár-
vissar héðan í frá. Um leið ber-
ast fréttir af því að sumargots-
síldin sé að koma í Faxaflóa ut-
an af hafi, og hafa bátar fengið
góðan afla, jafnvel tvíhlaðið í
Flóanum.
REYKJAVÍK HÆST
Aflinn skiptist þannig milli
veiðistöðvanna, að mest hefur
komið á land i Reykjavík, en
Akranes kemur næst, skiptist
það þannig:
. Reykjavík 313 þús. tunnur.
Akranes 170 þús. tunnur.
Keflavík 155 þús. tunnur.
Hafnarfjörður 121 þús. tunnur
Vestmannaeyjar 115 þús. tn.
AFLAHÆSTU SKIPIN
Alls tóku 108 skip þátt í veið-
unum til áramóta, en fór síðan
fækkandi þegar línu og netja-
vertíð hófst. Aflahæstu skipin
eru.
Víðir II Garði 40,039
Höfrungur II Akranesi 34,758
Guðm. Þórðarss. Rvík 29,603
Bjarnarey, Vopnafirði 24,304
Jón Trausti, Raufarh. 23,734
Bergvík, Keflavík 23,145
Haraldur, Akranesi 23,057
Eldborg, Hafnarfirði 20,940
SÍLDIN HEFUR ALLTAF
VERIÐ t FLÓANUM
Vísir átti í morgun stutt sam-
tal við Sturlaug Böðvarsson á
Akranesi.
— Síldin hefur alltaf Verið
hér í Flóanum, sagði Sturlaug-
ur. Hún hefur alltaf veiðzt hér
1 reknet. Ég man eftir því, er ég
var ungur kringum 1920 að faðir
minn saltaði þá síld hér fram
í júnímánuð. Það var mokveiði
í reknetin, en þá voru ekki til
tæki til að leita að henni og
veiða hana í stórum stíl í herpi-
nætur.
Það eru nýju tækin, kraft-
blökkin og leitartækin, sem hafa
skapað þessa síldarvertíð, sem
er árviss. Nú eru erfiðleikarnir
mestir á að nýta síldina og koma
henni í gott verð. Við erum að
frysta hana, en viðskiptin hafa
minnkað við Tékka og Austur-
Þjóðverja, sem keypt hafa mest
af frystri síld.
Sturlaugur skýrði frá því að
tveir af bátum þeirra feðga,
Haraldur og Höfrungur væru
enn á síldveiðum. Aflahluturinn
væri betri þar en á öðrum bát-
um m.a. vegna þess að netja-
veiðin hefði verið treg. En það
er ekki heppilegt að alltof marg-
ir bátar séu á síldveiðunum.
BÁTAR HVERFA FRÁ
NETJAVEIÐUM
Vísir átti einnig tal við Björn
Guðmundsson útgerðarmann í
Vestmannaeyjum og sagði hann
m.a.:
Framhald á bls. 5.