Vísir - 25.04.1962, Qupperneq 8
Otgetandi Blaðaútggtan VlSIK
Ritstjórar- Hersteinn Pðlsson. Gunnar G Schram.
Aðstoðarritstión AxeJ Phorstemsson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ö Thorarensen
Ritstjórnarskrifstofur: Lauga-'eg: 178
Auglýsingr rg afgreiðsla: ' ugólfsstræti 3
Áskriftrrgjald et 45 krónui ? mánuði
í lausasf’u 3 kr ’int Slmi 11660 f5 llnur).
Prentsmiðja /isis — Edd a h.t
------------------------------ j
Vöruskiptin við útlönd
Hagstofan hefir birt bráðabirgðaskýrslu um vöru-
skiptajöfnuðinn við útlönd á fyrsta fjórðungi ársins,
og er hann hagstæður, svo að nemur 192 milljónum
króna á þessum þrem mánuðum. Það er úr sögunni,
að íslendingar eyði meiri erlendum gjaldeyri en þeir
afla með útflutningi á framleiðslu sinni, og nú er þjóð-
in í óða önn að safna gjaldeyrissjóðum, jafnframt því
sem hún greiðir þær gjaldeyrisskuldir, sem söfnuðust
fyrir á uúdanförnum árum, þegar allt var látið reka
á reiðanum.
Óhætt mun að segja, að fyrir nokkrum árum
hefir almenning vart grunað eða þorað að spá því, að
innan skamms” mundu íslendingar flytja mun meiri
varning út en þyrfti til kaupa á erlendum nauðsynjum.
Svo vanir voru menn orðnir því, að þjóðin lifði um
efni fram, keypti meira frá útlöndum en hún hafði
fé til að greiða úr eigin sjóðum, að margir munu hafa
talið þá búskaparhætti eðlilega í alla staði og að aðrir
kæmu í rauninni ekki til greina.
En þannig var vitanlega ekki hægt að halda áfram
um alla eilífð. Fyrr en varir kemur að skuldadögun-
um - ef þjóðin sættir sig ekki við að lifa af ölmusum -
og þegar vinstri stjórnin var að renna skeið sitt til
enda, var íslendingum farið að skiljast, að þeir urðu
að breyta lífsvenjum sínum. Ella hefði þjóðin lent í
stórkostlegri vandræðum og erfiðleikum en nokkru
sinni fyrr á þessari öld, ef ekki á enn lengri tímabili.
Það var líka þjóðin, sem tók loks í taumana í
kosningunum 1959, þegar Hermann Jónasson og
vinstri stjóm hans hafði svikið öll gefin heit og marg-
faldað vandann, sem hún hafði lofað að leysa. í kosn-
ingunum 1959 sýndi þjóðin, að hún heimtaði nýjar
leiðir í efnahagsmálunum, og þær eru nú farnar að
bera árangur eins og fjölmargar opinberar skýrslur,
sem komið hafa fram á síðustu vikum og mánuðum,
hafa leitt ótvírætt í ljós.
Hin síðasta þeirra er vöruskiptaskýrsla Hagstof-
unnar, sem getið er hér að framan. En fleira mætti
íelja, svo sem skýrslu Seðlabankans um þróun pen-
ingamálanna á síðasta ári .Þar ber allt að sama bmnni
— þjóðin safnar sjóðum á öllum sviðum, hún er ekki
að eyða fé, sem hún á í rauninni ekki til, og stofna
þar með fjárhagslegu sjálfstæði sínu í voða. Þetta er
sú mynd, sem til hefir orðið fyrir viturlega og einarða
íorustu ríkisstjórnarinnar.
En menn verða að muna, að kommúnistar og
bandamenn þeirra vilja eyðileggja þessa mynd. Þeir
vilja skapa vandræði, og til þess reyna þeir nú að æsa
til verkfalla. Hver maður, sem telur að vel hafi verið
stjórnað að undanförnu, verður að berjast gegn verk-
Mlsbrölti beirra.
-- VI S I R ■—- ... Miðvikudagur 25. apríl 1962.
Salan bíður dóms
í Santé-fangelsinu
Hershöfðingjarnir fjórir, sem | ur að halda andspyrnunni áfram.
voru forsprakkar í byltingunni, I í gær gekk í gildi ný reglu-
hafa þannig allir verið handteknir. j gerð fyrir öryggisliðið. Núna mega
Fréttaritarar segja, að þeim hafi ' hermenn og lögreglumenn skjóta
Raoul Salan
Raoul Salan fyrrv. hershöfö-
ingi var handtekinn á föstudag-
inn Ianga f Algeirsborg og flutt-
ur handjámaður loftleiðis til
Parísarborgar og hefur siðan
verið fangi í hinum ramlega vig-
girta og varðaða Santé-fangelsi
þar. — Hann var svikinn i hend-
ur Frökkum af fyrrverandi sam-
herja. Kona hans Lucienne og
dóttir þeirra voru einnig hand-
teknar.
Salan fór til Algeirsborgar með
leynd til þess að dveljast með fjöl-
skyldu sinni um páskana. Var hann
handtekinn í Ibúð í nýtízku fjöl-
býlishúsi f miðhluta boorgarinnar.
Svo ugglaus var hann, að með
honum voru aðeins tveir samstarfs-
menn. Hann hafði litað hið hvíta
hár sitt svart og var með efri-
vararskegg.
ÖIIu varðandi handtökuna var
stjórnað beint frá París. Fylgzt var
með ferðum hans eftir komuna til
borgarinnar. Samherjinn fyrrver-
andi hafði sagt hvert hann myndi
fara, í tiltekna fbúð, sem er
skammt frá Háskólanum. Til þess
að vekja sem minnsta athygli fóru
nokkrir lögreglumenn í aðeins
einni bifreið til hússins, og er þang
að kom beint upp í fbúðina. Auk
fjölskyldunnar voru þar fyrir tveir
menn aðrir, Jean Ferrandi aðstoð-
armaður hans, og ofursti nokkur,
báðir liðhlaupar, allir vel klæddir.
Salan sat við skrifborð sitt. Hann
neitaði hver hann væri, kvaðst
vera Louis Carriéere, forstjóri frá
París, en er hann var leiddur fyrir
Charles Ailleret hershöfðingja, yf-
irhershöfðingja í Alsír þar til fyrir
nokkrum dögum, er Michel Four-
quet tók við, var tilgangslaust að
neita lengur. „Þér vitið hver ég
er,“ sagði Ailleret, en Salan svar-
aði engu, og hlustaði á hann fölur
og fálegur, en án þess að mæla
orð af vörum.
Og nú bfður Salan, 62 ára,
sæmdur 56 heiðursmerkjum, yfir-
hershöfðingi f Alsfr og stjómar-
fulltrúi, unz honum var vikið frá
af De Gaulle ,sfðar leiðtogi f mis-
heppnaðri byltingu, og leiðtogi
OAS, nýs dóms í Santé-fangelsi.
Hann var dæmdur til lffláts, en
dómurinn var upp kveðinn að hon-
um fjarverandi. Nú verður lögum
samkvæmt að taka mál hans fyrir
á ný. Handtaka Salans kann að
seinka ákvörðun De Gaulle varð-
andi náðun Jouhaud hershöfð-
ingja, sem fyrir skemmstu var
dæmdur til lífláts fyrir þátttöku
sfna f byltingunni og samsæri gegn
stjórn Iandsins. Hinir tveir hers-
höfðingjarnir, sem þátt tóku i bylt-
ingunni Challe og Zeller, fengu
fangelsisdóm upp á 15 ár hvor sem
kunnugt er.
virzt Salan bugaður. Hann hafi
verið búinn að sjá fram á tilgangs-
leysi með að halda áfram barátt-
unni. Kona hans, Lucienne, var f
rauninni miklu harðari, og hvatti
hann til andspyrnunnar. Sjálfur var
Salan ekki vel liðinn meðal sam-
herja siiina, sem kölluðu hann
Kínverjann eða mandarinann.
Hvað sem sagt verður um Salan
er handtaka hans áfall fyrir OAS
— mesta áfallið, sem samtökin
hafa orðið fyrir, en vafalaust er
talið, að reynt verði eitthvað leng-
S.l. laugardag var opnuð heims-
sýningin f Seattle á Kyrrahafs-
strönd. Gerði það John F. Kennedy
forseti Bandarfkjanna, með því að
þrýsta á hnapp austur á Florida-
skaga.
Það hefur vakið alheims athygli,
að valin hefur verið 600.000 íbúa
borg þar sem var leirsvað í minni
elztu manna, til fyrstu heimssýn-
ingarinnar f Bandaríkjunum næst
á eftir sýningunni 1939, sem hald-
in var í New York, og sigraði
Seattle nú í beinni keppni við
New York, og hlaut 13 milljóna
dollara ríkisframlag. Yfir 60 þjóð-
ir sýna þarna. Tákn sýningarinnar
á OAS-menn hvar sem til þeirra
sést — á grunsamlegt fólk á húsa-
þökum og á svölum. í nýju örygg-
isliði, sem stofnað er til samkvæmt
vopnahlénu, eru bæði Serkir og
Frakkar, en Frakkar bera þó
ábyrgðina, þar til Alsír fær sjálf-
stæði.
í gær var fyrsti dagur hinnar
nýju reglugerðar og dró mjög úr
hryðjuverkum. Aðeins 4 menn voru
drepnir f Algeirsborg í gær — en
að meðaltali 15 daglega undan-
genginn hálfan mánuð.
er yfir 200 metra hár trun, Geirn-
nálin (Space needle) sem tákn
framsóknar mannkyns til rann-
sókna á himingeimnum, en sú
framsókn er einkennandi fyrir
nútímann.
Geimnálin - . yggð af Seattle-
borg, — er fyrir Seattle það sem
Eiffelturninn var fyrir París á
heimssýningunni þar 1899.
Það er líka tímans tákn, að af
þeim þjóðum, sem sýna í Seattle,
eru 28 frá Afríku — en aðeins eitt
kommúnistaland sýnir — Júgó-
slavfa.
Myndasíða frá sýningunni var
fyrir nokkrt bir' hé- ' blaðin-
Kennedy opnar
heimssýninguna