Vísir - 25.04.1962, Side 9
Miðvikudagur 25. apríl 1962
9
VíSIR
Hvað gera heilbrigðisyfirvöldin?
Alvarlegasta vandamálið er reykingar unglinga
1
3
w
gíðan það varð ljóst fyrir
nokkrum árum að náið sam-
band var milli sígarettureyk-
inga og lungnakrabba hafa
heilbrigðisyfirvöld í ýmsum
löndum farið að grípa til sér-
stakra ráðstafana til að reyna
að draga úr reykingum.
Málið er þó ekki auðvelt við-
ureignar. Sígarettur eru nú lang
vinsælasta og útbreiddasta
nautnalyf heimsins. Þær eru al-
mennt reyktar í hverju einasta
landi heims og neyzla þeirra
hefur stöðugt verið að aukast.
Þýðing þeirra er mikil í félags-
lífi og skemmtanalífi manna. En
þeir sem eitt sinn hefja neyzlu
á sígarettum eiga mjög erfitt
meo að venja sig af þeim.
Eitt hið alvarlegasta við síga-
rettureykingar síðari tíma er
það að menn eru almennt farnir
að hefja sígarettureykingar
miklu fyrr en áður tíðkaðist.
Aldursmörkin færast æ neðar.
Fyrir tveimur áratugum var
það sjaldgæft að menn færu að
yekja sígárettur fyrr en yfir tví-
tugt. Nú hefur orðið gerbreyt-
ing á þessu. Rannsóknir á reyk-
ingavenjum skólabarna sýna að
það er nú orðið all algengt að
unglingar hefji sígarettureyk-
ingar um 15 ára aldur.
þessi breyting er þegar málið
er nánar athugað mjög ai-
varleg. Það er staðreynd, að
krabbamein í lungum kemur
ekki að jafnaði fram fyrr en
mörgum áratugum eftir að
menn hefja reykingar. Svo
virðist sem meðgöngutími sjúk-
dómsins sé um það bil 30 ár
eftir að menn hófu reykingar.
Þess vegna væri það eitt mikil
úrbót ef hægt væri að breyta
reykingaháttum þannig að menn
færu minnsta kosti ekki að
reykja fyrr en 25 ára. Kæmist
sá siður á mætti vænta þess, að
verulega tæki að draga úr sjúk-
dómnum, þegar áhrifanna af
þeirri breytingu færi að gæta.
Það má nú telja víst, að öll-
um sé kunnugt orðið um hin
skaðværilegu áhrif tóbaksreyk-
inga. Og samt halda menn á-
fram að reykja sígaretturnar og
nýir sígarettureykendur bætast
enn í hópinn. Vissulega er mjög
erifitt að fást við þetta vanda-
mál. Nautnalyfið vekar þannig,
að menn eiga mjög erfitt með
að venja sig af sígarettunum
og svo kemur hitt til ,að þó
menn viti nú hver hætta stafar
frá sígarettunum er hún svo
fjarlæg, að hún hefur ekki mikil
áhrif á menn. Menn hugsa ör-
yggisráðstafanir ekki 30 ár fram
í tímann.
Menn svíkjast oft um og
trassa að gera við öryggistæki
á bifreiðum sínum og setja sig
þannig í beina lífshættu. Hvers-
vegna ættu menn þá að vera
svo forsjálir að fara að verjast
gegn sjúkdómi sem þeir eiga á
hættu að fá eftir 30 ár. Og enn-
fremur er fjarri þyí að allir
reykingamenn fái krabbamein i
lungu. Það er eins og hjól örlag-
anna eða happdrætti sem dreg-
ið verður i eftir 30 ár, hvort
maður sleppur eða ekki.
I^n þegar litið er á mann-
dauðaskýrslurnar þá sést að
hættan af lungnakrabbanum er
enginn hégómi. Þúsundir og
hundruð þúsund manna látast
nú orðið úr lungnakrabba í
hverju landi. Aukning sjúk-
dómsins er mjög mikil nú um
þessar mundir og er það bein
afieiðing af aukningu sígarettu-
reykinga fyrir 30 árum, upp úr
1930. Það má heita að línurit
þessara tveggja þátta með 30
ára millibili fylgist að.
Lungnakrabbi er þegar orð-
inn einn skæðasti sjúklómur-
inn í flestum löndum þar sem
sígarettureykingar voru orðnar
algengar upp úr 1930, En hver
verða áhrifin af stórauknum
reykingum unglinga á síðustu
árum. Hver verða t. d. áhrifin
af því að unglingar eru nú
farnir að reykja um 15 ára ald-
ur? Það er eftir afleiðingum af
þessu, sem menn bíða með ugg
og ofvæni. Það er hugsanlegt
að meðgöngutími sjúkdómsins
styttist jafnvei niður i 20 ár,
þegar unglingar byrja mjög ung
ir að reykja.
Ef svo heldur áfram sem nú
horfir er útlit fyrir það að á
næstu tveim áratugum skelli
vöxtur lungakrabbans yfir okk-
ur eins og holskefla og sjúkdóm
urinn verði innan skamms orð-
inn mesta böl mannkynsins.
yið siíkar framtíðarhorfur er
svo komið, að heilbrigðis-
yfirvöld landanna geta ekki
lengur horft aðgerðarlaus á.
Ástandið er nú að verða þannig
og útlitið svo uggvænlegt, að
það verður að teljast eitt brýn-
asta viðfangsefni heilbrigðisyf-
irvaldanna í hverju landi, að
fara að hamla á móti sígarettu-
reykingunum. 1 nokkrum lönd-
um eru aðgerðir þegar hafnar,
í sumum eru þær að hefjast
fyrir hvatningu frá vísindamönn
um og læknum sem skilja bezt
þá hættu sem yfir vofir. Það
tekur þó langan tíma að koma
þessu á stað, því að viðfangs-
efþið',e!r"-Va!naasamt.
í skýrslu '"hirtnar dönsku
læknanefndar um samband
sígarettureykinga og lungna-
krabba er það nokkuð rakið, í
hvaða löndum sé farið að hefja
aðgerðir gegn sígarettureyking-
unum. Skal hér nú gefið stutt
■yfirlit yfir það:
J Ástralíu hafa heilbrigðisráð
hinna einstöku fylkja hafið
útbreiðsluherferð gegn tóbaks-
reykingum með auglýsingum,
bæklingur.i og beinni kennslu í
skólum. Sérstök áherzla er lögð
á að forða ungu fólki frá því
að byrja reykingar. Rannsókn-
arstofnur. alþýðutrygginga
Ástralíu hefur gefið út skýrslu
um sambandið milli sígarettu-
reykinga og lungnakrabba og
krafizt þess, að dregið verði úr
og eftirlit haft með sígarettu-
auglýsingum í sjónvarpi, út-
varpi og blöðum.
★
Mikið starf hefur verið unn-
ið af opinberum aðiljum i Kan-
ada á síðustu árum til að vara
við hættunni frá sígarettum.
Heilbrigðismálaráðuneyti Kan-
ada hefur vakið athygli þjóðar-
innar á sambandinu milli síga-
rettureykinga og lungnakrabba
og beitt sér fyrir rannsóknum
á þessu sviði. Læknum í ýmsum
fylkjum Kanada hafa verið
sendar ákveðnar tilkynningar
um þessi vandamál. f júní 1960
hóf kanadíska krabbameinsfé-
lagið víðtæka upplýsingastarf-
semi i gagnfræðaskólum lands-
ins bæði með kvikmyndum, fyr-
irlestrum og greinum. Félagið
hefur einnig gefið út bæklinga
um málið, sem dreift hefur ver-
ið í skóla. ^
★
Austur á eynni Ceylon í Ind-
landshafi hafa yfirvöldin gert
ýmsar ráðstafanir til að draga
úr reykingum. Meðal þeirra má
nefna að banna reykingar í
kvikmyndahúsum og öðrum op-
inberum stöðum. Rannsóknir
hafa farið fram á reykingum
meðal skólafólks.
★
í Tékkóslóvakíu hefur vís-
indaráð landsins látið fram-
kvæma rannsóknir á skaðsemi
tóbaksreykinga og eru aðgerð-
ir hafnar á grundvelli þeirra
rannsókna sem stefna að því
að stöðva tóbaksauglýsingar,
að hefja áróður gegn reyking-
um með öllum útbreiðslutækj-
um, að berjast sérstaklega gegn
reykingum unglinga.
Þá beitir heilbrigðismálaráðu-
neytið sér sérstaklega fyrir
námskeiðum fyrir lækna um
skaðvæni tóbaks.
★
í Englandi hafa heilbrigðis-
yfrivöldin fyrirskipað heilbrigð-
isyfirvöldum hvers héraðs að
kynna almenningi vandlega þá
hættu sem felst i tóbaksreyk-
ingum.
Þegar enska læknafélagið
birti ýtarlega skýrslu um hætt-
una frá sfgarettureykingum
urðu miklar umræður um þessi
mál i þinginu o„ er nú búizt
við að ekki líði á löngu áður
en tollar verða hækkaðir á síga-
rettum og eftirlit sett með síga-
rettuauglýsingum.
★
í Hollandi var sérstök opin-
ber nefnd skipuð árið 1954 til
að rannsaka sambandið milli
tóbaksreykinga og lungna-
krabba. Hún hefur gefið út
skýrslur þar sem svo er mælt
að sambandið, milli sigarettu-
reykirfga og lungnakrabba sé
augljóst. önnur nefnd starfar
nú að því að kanna hvaða að-
gerðir eigi að framkvæma til að
hamla gegn slgarettureykingum
og sérstaklega hvernig eigi að
koma á upplýsingastarfi meðal
unglinga.
Öllum herlækhum hafa verið
gefin fyrirmæli um að ræða við
hermenn og gera þeim ljósa
hættuna af miklum reykingum.
Almennum læknum hefur og
verið séð fyrir hjálpargögnum
og ætlast til að þeir taki þátt f
upplýsingastarfinu.
í Hollandi er þó ekki lögð
áhe'PzIa á að hræða menn til
að hætta að reykja, heldur að
reyna að koma í veg fyrir að
unglingar hefji reykingar. Þar
er lögð sérstök áherzla á það
að læknar skuli gefa mönnum
fordæmi með því að reykja ekki
sjálfir.
★
I írlandi gaf heilbrigðismála-
ráðuneytið 1959 út tvo bækl-
inga um hættuna af tóbaksreyk
ingum. Anriar þeira var ætlaður
fullorðnum, hinn fyrir unglinga
og var honum dreift í skólum
og æskulýðssamtökum um allt
landið.
★
Heilbrigðismálaráðuneyti Nýja
Sjálands fór þegar 1948 að hefja
baráttu gegn tóbaksreykingum
á grundvelli þeirra upplýsinga
sem þá voru fengnar um sam-
band tóbaksreykinga og lungna-
krabba. Síðan hefur verið hald-
ið uppi víðtækri upplýsingastarf
semi í útvarpi, með auglýsing-
um og bæklingum. Auglýsinga-
spjöld hafa verið prentuð og
sett upp.
Síðustu ár hefur ■Heilbrigðis-
málaráðuneytið lagt sérstaka á-
herzlu á að koma í veg fyrir
að unglingar hefji reykingar.
Víðtækar rannsóknir eru hafnar
á reykingavenjum unglinga í
skólum og þegar niðurstaða er
fengin á að hefja allsherjar her
ferð gegn reykingum unglinga.
★
í Svisslandi hefur hættan frá
sígarettureykingum verið rædd
í þjóðþinginu en ekki hefur þó
enn verið samþykkt nein lög-
gjöf í málinu. Krabbameinsfé-
lag iandsins og félög lækna og
skólalækna hafa gefið út rit
um skaðsemi sígarettureykinga.
V
í Sovétríkjunum hefur verið
gripið til sérstakra ráðstafana
vegna hættunnar af sígarettu-
reykingum. Eru nú allar tóbaks-
auglýsingar bannaðar þar og
bannað að selja börnum tóbak.
Mjög víða er bannað að reykja.
Frh. á bls. 13
xsrcv i
*