Tölvumál - 01.12.1988, Blaðsíða 4
NOKKUR KVEÐJUORÐ
Þegar undirritaður var að grafa í gömlum gögnum fyrir skömmu rakst
hann á minnisatriði sem verðandi ritnefnd hafði sent til stjórnar
Skýrslutæknifélagsins haustið 1985. Hugmyndirnar voru samþykktar.
Að því loknu var samið um að ritnefndin tæki alla ábyrgð á útgáfu
blaðsins. Hún mótaði til dæmis ritstjórnarstefnuna. Á þennan hátt
hafa Tölvumál verið gefin út undanfarin 4 ár. f ársbyrjun 1986
breytti blaðið um svip. Af hálfu ritnefndar var sú breyting hugsuð
sem skref í átt til bættrar útgáfu. Ef vel tækist til var hugmyndin
að unnt væri að auka og bæta útgáfuna. Tölvumál hafa komið út í 13
ár. Nú hafa komið út 4 árgangar samkvæmt samningnum sem áður var
nefndur. Alls hafa komið út 35 tölublöð með rúmlega 1100 blaðsíðum.
Blaðið hefur alltaf komið út á réttum tíma ef frá eru talin síðustu tvö
tölublöð. Má leiða að því líkum að Tölvumál hafi gagnast félaginu vel
á þessum tíma.
í minniatriðum til stjórnarinnar, 1985, segir verðandi ritnefnd:
"TÖLVUMÁLUM verði unninn fastur sess á þann hátt að næsta vetur
(1986) verði lögð áhersla á að halda núverandi útliti (broti) blaðsins
og senda það til félagsmanna eins og fyrr en efnistökum breytt og
því komið á framfæri við fjölmiðla með það fyrir augum að festa það í
sessi. Takist þetta er næsta skref að breyta útliti og rekstrarformi í
þá átt að selja megi blaðið til annarra aðila."
í minnisatriðunum var ritstjórnarstefnan kynnt þannig:
"TÖLVUMÁL eru gefin út af helstu félagasamtökum um upplýsinga-
tækni á landinu. Hlutverk blaðsins er því fyrst og fremst að vinna að
framgangi á stefnu SÍ. Sérstaklega ber að leggja áherslu á séríslensk
atriði. íslensku máli séu fengnir fastir þættir í samræmi við starf SÍ
að útgáfu tölvuorðasafns. Blaðið leggi sig fram um að vekja athygli á
málum sem varða hagsmuni tölvunotenda á þann hátt að eftir verði
tekið."
í leiðara októberblaðs 1985 lýsti formaður ritnefndar því hvaða marki
nefndin stefndi að með útgáfunni.
"Við viljum reyna að skapa léttan upplýsingamiðil með stuttum fréttum
og greinum. Fréttabréfsformið er handhægt, ódýrt og fljótunnið. Það
hentar því vel fyrir lifandi fréttir og skilaboð. Lesendur Tölvumála
hafa undanfarin ár fengið það í hendur mánaðarlega yfir vetrar-
4 TÖLVUMÁL