Tölvumál - 01.12.1988, Side 11
hugmynd um það hvernig
einkatölvan muni líta út að tíu árum
liðnum!
Tölvurnar
Hraðvirkari örgjörvar munu líta
dagsins ljós, en einnig mun tölvum
sem byggja á 386S gjörvanum frá
Intel fjölga og á þann hátt verður
reiknikrafturinn ódýrari.
Arið 1989 verður ár grafískra
notendaslúla sem munu krefjast
Öflugari örgjörva og meira
vinnuminnis.
Þá munu spjöld sem nýta kosti
MC tengibrautar IBM loksins koma
á markað, en á það hefur skort.
EISA-tengibrautin mun ekki líta
dagsins ljós fyrr en seint á árinu
1989, ef þá samningar takast ekki á
milli IBM og EISA samsteypunnar.
Apple mun setj a á markað fartölvu
byggða á Macintosh SE tölvunni og
enn öflugri Macintosh II tölvu
(Macintosh III?). Boðin verður SE
tölva með 68030 örgjörva.
Sama þróun mun eiga sér stað
hjá IBM og líklegast að sett verði á
markað IBM PS/2-90 tölva sem
verður öflugari en þær tölvur sem nú
eru á markaði.
Macintoshinn verður með
diskdrifum sem geta lesið og ritað
IBM form auk Macintosh forms og
samskonar drif munu koma á IBM
þó að síðar verði.
Minnisstærðir
OS/2 stýrikerfið og ný forrit á
Macintosh og PC munu kreíjast
aukins minnis. í dag er 1 MB
algengast, en árið 1989 mun verða
ár 2 MB vinnuminnis og í mörgum
tilvikum stærra. Sömuleiðis mun
diskiýmið aukast í 2 - 3 MB.
Verð á minnisrásum mun lækka,
þar sem markaðurinn er smám
saman að jafna sig á
viðskiptaþvingunum
Bandaríkjamanna gegn Japan.
Þróunin i vél- og hugbúnaði mun
ekki þola þá stöðnun sem
áframhaldandi hátt verð á
minnisrásum hefur í för með sér.
Stýrikerfin
Á árinu mun notkun OS/2 og
útbreiðsla aukast. Það er þó háð því
að verð á minni lækki svo og á
stýrikerfinu sjálfu.
Æ fleiri notendur munu kreíjast
þess að hafa myndræn notendaskil.
Stýrikerfi sem uppfylla það skilyrði
munu því verða ofaná, íyrr en margur
ætlar.
Fjölnotendastýrikerfi á PS
tölvumar verður ekki markaðsfært
fyrr en 1991 eða 1992, þó að það sé
líklega tilbúið í dag.
MSDOS mun verða stórlega
endurbætt sérstaklega vegna
háværra krafna frá notendum slíkra
véla og þeirrar staðreyndar að lítið
hefur dregið úr eftirspum eftir DOS
vélum, þrátt fyrir nýja strauma.
Nýtt stýrikerfi fyrir Macintoshinn
lítur dagsins ljós á næsta ári með
bættum íjölverkaeiginleikum og enn
fullkomnari notendaskilum.
Spuming er hvort það verður
gmnnurinn að íjölnotendastýrikerfi
en það væri eðlileg þróun hjá Apple.
TÖLVUMÁL 11